Samtíðin - 01.06.1943, Page 27

Samtíðin - 01.06.1943, Page 27
SAMTÍÐIN 23 sagt, að menn fái að rækja „orðsins Iist“ með þeim hælti, sem hverjum hentar. Ef hr. Gr. F. vill yrkja rím- laust, finnst mér meinsemi af öðrum að amast við þvi. En ef aðrir vilja yrkja með rími, finnst mér hann geta látið það hlutlaust. En — að kalla það „ljóð“, sem vantar ljóðstafi, sluðla, rím, og reglu- hundna lengd hendinga, — eða með öðrum orðum allt það, sem lengst hefur verið lálið greina ljóð frá ó- bundnu máli, finnst mér mjög ó- heppilega að orði komizt, og þykist ég þess fullviss, að i þessu atriði liggi meginorsök þessarar deilu. Islenzk tunga er og hefur verið auð- ugt mál. Hún býður því hverjum orð- högum manni, sem kann hana sæmi- lega, æskileg skilyrði lil þess að láta í ljós hugsanir sínar, án þess að mis- þyrma þeim, jafnvel þótt í bundnu máli sé. En auður málsins kemur ekki í veg fyrir það, að fjölga þurfi orðum, jafnóðum og hugtökum fjölg- ar. Vil ég nefna hér lítið, hversdags- legt dæmi: Rétt efíir s. 1. aldamót harst liingað til lands ný tegund veiðiskipa. Þá var ekki, sem ekki var heldur von, til i málinu nafn, sem þeim lientaði. Þetta var hagaleg vöntun, því að oft þurfti að nefna þau. Byrjað var með afbök- un úr útlendu nafni, en síðar var rej'nt að húa til íslenzkt nafn, og urðu þau víst fleiri en eitt eða tvö, sem reynd voru. Með tímanum varð þó eitt svo gjörsamlega ofan á, að nú heyrast þau varla nefnd öðru nafni. En — hvað mundu menn nú segja, ef einhver eða einhverjir færu að nefna hverja fleytu, sem eittlivað dregur úr Bækur Pappír Ritföng BÓKAVERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR Kemisk verksmiðja „ |UNO“ Framleiðir eftirtaldar fyrsta flokks vörur: Dekkhvítu Zinkhvítu No. 1 Olíurifna málningu, flesta liti, Mattfarfa i flestum litum Gólflakk Gæði „JUNO“-framleiðslu eru þegar búin að vinna hylli þeirra, er notað hafa. Söluumboð: Gotfred Bernhöft & Co. h.f. Sími 5912 — Kirkjuhvoli

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.