Samtíðin - 01.10.1943, Síða 6

Samtíðin - 01.10.1943, Síða 6
SAMTÍÐIN 2 Islandsklukkan Skáldsaga eftir Halldór Kiljan Laxness. Halldór Kiljan Laxness Eftir þriggja ára hlé er komin út ný skáldsaga eftir Halldór Kiljan L a x n e s s. Er hún eins og sagan af Ólafi Kárasyni byggð að verulegu leyti á sannsögulegum viðburðum. Þetta er sag'a Jóns Hreggviðssonar og Árna Magnússonar. Sagan um Jón Hregg- viðsson er eitthvert stórbrotnasta „drama“ í íslenzkum sögum. Jón eyddi miklum hluta ævi sinnar til þess að endurheimta frelsi sitt og rétt til að lifa eins og frjáls maður í sínu eigin landi, en hann strauk úr fangelsinu, þar sem liann beið Jiess að öxin og' jörðin tækju við honum. ÍSLANDSKI.UKKAN fjallar um at- burði löngu liðins tíma, en hún er að sjálfsögðu fyrst og fremst brot af sögu islenzku þjóðarinnar, listræn túlkun liöf- undarins á liinni eilífu baráttu liennar fyrir frelsi sínu og rétti. íslandsklukkan er þraulhugsað snilldarverk, hver setning er meitluð og fáguð. Stórfengleiki og fegurð þessa verks getur enginn tileinkað sér lil fullnustu, nema hann lesi hana aftur og aftur. Málverkið á kápu bókarinnar er eftir Þorvald Skúlason listnnálara. Er það áhrifamikil og dramatisk mynd úr sögunni. Skuggi Jóns Hregg- viðssonar fellur á höggstokkinn, en ljósrák frá opnum dyrum fanga- klefans kastar nístandi birtu á morðtólin, öxina og liöggstokkinn, og drykkjarkönnu fangans.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.