Samtíðin - 01.10.1943, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.10.1943, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 17 glundroða. Nú iala sumir um að verma sér við ljóð skiáldsins, en hitt kvað Einar rétt: „Að verma sitt hræ við annarra eld“ (þolfall með verraa). Rangt er að binda einhverju föstu, en rétt að binda eitthvað fast (með einhverju). Rangt er að þora því ekki, en rétt að þora það ekki. Þol- fall fylgir réttilega þorra hinna ó- persónulegu sagna um líðan, veðr- áttu, hátlu dagstíða o. fl.: Mig þyrst- ir, niig svengir, mig dreymir, sjóinn skefur, snjóinn leysir, storminn hæg- ir og lægir, frostin lierðir, ísana brýt- ur af ám, og klakann rignir úr holl- um, daginn lengir, nóttina stvttir. Nokkrar liafa þágufall: Mér batnar, mér versnar, mér kólnar, þokunni léttir, vetri lýkur. Þeir, sem eru í vafa, en finnst þolfall geta staðizt, ætfu þá yfirleitt að liafa það, en ekki þgf. né nf., því að oftast er villan sú, að þf. liættir við að breytast í annað hvort hitt fallið. Samt skal segja. Ég lilakka til. Ernir hlakka yfir veiði. Málspilling er það og oft af erlend- um rótum að setja forsetningarlið i stað andlags, sem á að vera, t. d. „nota sér af einhverju“ fyrir: nota sér eilt- hvað, nota einhvern hlut (í dönsku: henytte sig af noget). Miðstig lýsingarorða og atviksorða hefnr oft með sér þágufall, en ekki önnur föll sér til ákvörðunar. Dæmi: Þetta barn er miklu stærra eða nokkru stærra en liin, sem eru litlu yngri og engu óþroskaðri en gerist. Þeim mun verra sumar, því minni heyfengur, nema því betur hafi vilj- að til. — Rangt er þess minni, þess betra, þess fyrr, rnikið stærra, ekk- ert óþroskaðri o. s. frv. I dæmunum er svonefnt þágufall mismunarins og má ganga úr skugga um, að það sé, með því að selja orðin þeim mun i stað „þess“ (þeim mun yngri t. d.). Ef þá fæst rétt mál, er skylt að liafa þgf. Og enginn getur sagt: þann mun stærra (sbr. „mikið“ stærra) né þess munar betra, svo að ekki þarf frek- ar vitna við, að mikið á að vera miklu og þess að vera því í orðasam- böndunum. Hér er að ræða um villur, sem örlar á þegar í elzta máli, en voru þá kveðnar niður af lítt lærðum mönnum með rökrétta málkennd. Hví skyldi það ekki verða nú, þegar allt slikt er auðveldara? ------ —m l — Hef ég sagt bér skemmtilegu söguna, sem ég liegrði i gær? —• Var hún skemmtileg? — Já, reglulega. — Þá hefurðu ekki sagt mér hana. Ef það vantar tölur í biixurnar þínar og sokkarnir þínir ern göl- ugir, áttu gnnaðhvort að gifta þig cða sækja um skilnað. Ræðumaður einn fékk svo lélegl hljóð á fundi, að hann kallaði: Ég heyri tæplega til sjáilfs mín! Rödd frá áheyrendunum: — O —- þér farið. ekki mikils á mis. Munið Eikarbúðina Skólavörðustíg 10, Rvík. Sími 1944, Pósthólf 843.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.