Samtíðin - 01.10.1943, Side 22

Samtíðin - 01.10.1943, Side 22
18 SAMTlÐIN HARRY M. DAVIS: Ratarinn — hið nýja undratæki T YRJ ALD ARALFRÆÐINNI hefur nýlega áskotnazt orðið ratari. Ratari er heiti á tæki, sem bandamenn nota til þess að leita sldpa og flugvéla óvinanna. Það get- ur ákveðið stefnu þeirra og fjar- lægð, þótt um óraleiðir sé að ræða. Tækið er skylt útvarpinu og vinnur því jafnt í niðamyrkri sem á lijört- um degi. Tækni nútímans hefur gjörbreytt fjarlægðunum á jörðinni. Lofther- irnir geysast sem þrumuveður yfir Ijæi og borgir og gjöreyða þeim, ef varnartækjum er eigi beitl, en vörn- in byggist fyrsl og fremst á því, að vitað sé um hættuna. Hraði sprengju- flugvélánna hefur gert bin gömlu blustunartæki gagnslaus. Þær kom- ast nú um 400 mílur á klukkustund, en bljóðið fer aðeins 700 mílur á sama tíma. Ef Bretar hefðu einungis reitt sig á hlustunartæki i orustunni um England haustið 1940, mundi Hitler ráða þar ríkjum nú. Brezka stjórnin skýrði frá því í júlí 1941,. að tækið ratari befði gert hinu tak- markaða flugliði Breta kleift að mæta ætíð flugflota Þjóðverja þar, seni þörfin var brýnust í bráðina. Þetta byggðist á því. að aðvaranir um árásir bárust liðinu með Ijóssins braða — 186.000 mílur á sekúndu. Mcð aðstoð ratarans geta hermenn bandamanna baft hinn rammasta galdur í frammi. Þeir geta ákveðið stefnu og stöðu óvinaflugvéla í margra mílna fjarlægð. Þeir geta skotið niður flugvélar, sem eru ósýnilegar, skýjum ofar o. s. frv. Þeir miða fallstykkjum flotans svo nákvæmlega út í bláinn, að kúlunum rignir niður á þiljur fjarlægra óvina- skipa. Þeir verja strendur sínar og víg- stöðvar gegn óvæntum árásum með binum óþreytandi öldum ljósvakans. Er lesandinn sér þetta, bugsast bonum ef til vill, að ratarinn liafi brugðizt, er Japanar gerðu bina ó- væntu árás á Pearl Harbor, kyrr- settu þar Kyrrahafsflotann og eyði- lögðu flugvélarnar, sem flatmöguðu á völlunum í Oaliu. Því var eigi þannig farið. Ratar- 'inn brást eigi fremur venju. Ólánið var í því fólgið, að amerískra flug- véla var vænzt úr þeirri átt, sem árásin kom, svo að aðvörunum rat- arans var eigi sinnt. Atburðurinn í Pearl Harbor sýnir glöggt gildi ratarans og fánýti binna fullkomnustu véla og varnartækja, ef stjórnin bregzt. Síðan hefur sagan breytzt. Eigi er lengur komið að oss óvörum. Rat- arinn reynist stöðugt þýðingarmeiri í þessum albeimsófriði. En líkur sækir líkan heim. Oss til angurs og erfiðis höfum vér komizt að raun um, að bæði Þjóðverjar og Japanar bafa áþekkt tæki í fórum sínum, svo að tími óvæntra árása er hvarvetna liðinn bjá. Mikilvægi þessara miðunartækja

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.