Samtíðin - 01.11.1943, Page 28
26
SAMTÍÐIN
Skopsögur
Úr syrpu HANS KLAUFA
AVÍÐ BÓNDI á Arnbjargarlæk
í Borgarfirði er mjög orðhepþ-
inn og á það til, ef svo ber undir, að
vera dálítið stríðinn. Eitt sinn, er
liann var með „Laxfossi“ á leið frá
Reykjavík til Borgarness, heyrði
hann á tal nokkurra manna, þar iá
meðal Norðlendinga, er töluðu mik-
ið um óliagstæða tíð og harðindi
fyrir Norðurlandi. Hlustaði Davíð á
tal þeirra um stund, en gat loks ekki
stilll sig um að segja:
— Ekki vorkenni ég þessum Norð-
lendingum, ég held, að þeir ættu að
geta lifað á montinu, þó ekki væri
nema svona þriggja vikna tima.
T£ AUPMAÐUR EINN á Austur-
landi átti örðugt með svefn
fyrri part nætur og svaf þess vegna
nokkuð fram eftir. Ilann hafði
nokkur liænsni sér til búbætis, þar
á meðal hana, sem fann npp á þeim
ósið að bvrja að gala fyrir allar ald-
ir og vekja með því sjnn svefn-
stygga eiganda. Eftir fáeinar and-
vökunætnr sá eigandi hanans sér
ekki annan kost vænni en að taka
bann og liöggva. Nokkrir gárungar i
þorpinu, sem vissu um aftökuna og
ástæðuna fyrir henni, tóku sig til og
fóru snemma á fætur næsta morgun
og göluðu eins og hani fyrir utan
glugga kaupmannsins. Hann vakn-
aði við vondan draum, hljóp, fram
úr rúminu og hrópaði:
— Galar hann enn og var drep-
inn í gær.
Lýsissamlag
íslenzkra
botnvörpunga
Símar: 3616, 3428
Símn.: Lýsissamlag
Reykjavík.
•
Stærsta og fullkomnasta
kaldhreinsunarstöð á íslandi.
•
Lýsissamlagið selur lyfsölum,
kaupmönnum og kaupfélögum
fyrsta flokks kaldlireinsað með-
alalýsi, sem er framleitt við hin
allra beztu skilyrði.
Vér framleiðum
eftirtaldan varning:
Allar almennar tegundir af gulum
olíufatnaði. Svartar olíukápur á
l'ullorðna og unglinga. Gummíkáp-
ur á fullorðna og unglinga. Yinnu-
vettlinga, tvær tegundir með blárri
og rauðri fit. —- Rykfrakkar úr
Ullar-Gaberdine og Poplinefnum á
konur og karla.
Varan er fjdlilega samkeppnisfær
við annan hliðstæðan varning á ísl.
markaði, hvað verð og gæði snertir.
r
Sjóklæðagerð Islands h.f.
Símar 4085 & 2063