Samtíðin - 01.05.1951, Síða 14

Samtíðin - 01.05.1951, Síða 14
10 SAMTIÐIN Hann þreifaði í buxnavasa sinn, dró þaðan rauðröndóttan tóbaks- klút. Eitt horn ldútsins var bundið i hnút. Gamli maðurinn lagði klút- inn kirfilega á skrifborðið og fór að leysa hnútinn. Eftir nokkurt puð og bjástur opnaðist peningageymsl- an, og fjársjóðurinn kom i dagsljós- ið: nokkrir eins og tveggja króna málmpeningar og fáeinir fimm og tíu króna bankaseðlar. Ég taldi seðlana, en sagði öldungn- mn, að málmurinn væri ekki innkall- aður. Svo rétti ég honum bláa blaðið, sem liggur hérna á borðinu. Hann las það vandlega, tók pennastöng- ina, deif pennanum óhönduglega í blekbyttuna, útfyllti eyðublaðið eftir minni fyrirsögn og skrifaði nafnið sitt undir. Hönd hans titraði, vinnu- lúin hönd, kreppt og sigggróin, með kartnögl á vísifingri. Skriftin var á- ferðarfalleg og læsileg. Síðan þakkaði hann innilega fyrir alla fyrirhöfnina, kvaddi og livarf brosandi út úr skrifstofunni, elli- brumur heiðursmaður, með nýja bankaseðla — fimmtíu og fimm krónur — í rauðröndóttum tóbaks- klút. Og þarna á bláa blaðinu var jarð- neskt sparifé hans komið undir smásjá eignakönunarinnar. „NEI, ég hef ekki álit á Jóni sem skáldi. Hann drekkur ekki, slæst aldrei — slær mann heldur ekki um peninga — og svei mér, ef hann ætl- aði bara ekki að fara að kjafta um bókmenntir við mig á dögunum!“ • Spurt op svurað O j ÞESSUM þætti er leitazt við að svara spurningum frá lesendum „Samtíðarinnar.“ Stúdent spyr: „Hvernig á ég að fara að því að útvega mér námsvist á stúdentagarð- inum Nordisk Kollegium í Kaup- mannahöfn, sem „SamtíðSn“ bárti ágæta frásögn um í 1. hefti 1948?“ Svar: Reyndu að skrifa Chr. Wester- g&rd-Nielsen, umsjónarmanni garðs- ins. Oss er það mikið ánægjuefni, að greinin hér i i’itinu hefur vakið athygli á þessari ágætu stofnun, þar sem ísl. stúdentar hafa dvalizt og notið fullkomnustu þæginda gegn ótrúlega vægu gjaldi. En vér höfum heyrt, að ekki þýði að sækja um vist á N. K., fyrr en eftir að stúdentar séu hyrjaðir á námi í Khöfn. íþróttamaður spyr: „Getur þú, „Samtíð“ góð, sagt mér livað er átt við með Davis cup verð- launum, og fyrir hvað þau eru veitt? Svai’: „Davis cup“ er farandbikar, sem dregur nafn af gefandanum, Dwight F. Davis, sem var amerískur her- málaráðherra m. a. (f. 1879, d. 1945). Bikar þessi er veittur fyrir frábær afrek í tennis, og eru engin önnur verðlaun eftirsóttari í þeirri grein. gEGIÐ vinum yðar frá efni „Samtíðar- innar“ og berið verð hennar (25 kr. á ári fyrir 10 hefti) saman við verð á öðr- um íslenzkum tímaritum.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.