Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 2

Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 2
2 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR lyf? Kynntu þér þinn rétt á lfi.is Þarft þú að nota lyf að staðaldri? Frumtök • Hjartaheill • Beinvernd • Lyfjafræðingafélag Íslands v María, er lukkupotturinn þægilegur? „Já, sérstaklega potturinn í Kópa- vogslauginni.“ María Níelsdóttir datt í lukkupottinn þegar hún varð 500 þúsundasti gesturinn í Kópavogslaug í fyrradag og fékk blóm, árskort í sund og líkamsrækt og gjafa- pakka að gjöf. ICESAVE Úrslit Icesave-frum- varps ríkisstjórnarinnar ráðast á Alþingi í dag. Óvíst er hvernig atkvæði falla. Tveir þingmenn VG, Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir, greiddu atkvæði gegn málinu að lokinni annarri umræðu. Ásmund- ur Einar Daðason, þingmaður VG, boðaði að hann tæki ekki endanlega afstöðu fyrr en við lokaatkvæðagreiðslu um málið, sem er í dag. Ekki náðist í Ásmund Einar í gær. Samfylkingarþingmenn, sem rætt var við í gær, sögðu framhald ríkisstjórnarsamstarfsins ráðast af atkvæðagreiðslunni í dag. Þ ei r h a f i fengið skilaboð frá forystu VG um að Ásmund- ur Einar mundi styðja málið í dag. Þar með sé tryggt að það hljóti meiri- hluta atkvæða frá þingmönn- um ríkisstjórn- arflokkanna, óháð því hvort Þráinn Bertels- son, þingmaður utan flokka, greiði atkvæði með málinu eins og hann gerði að lokinni annarri umræðu. Ekki sé viðunandi fyrir ríkisstjórnina að koma þessu veigamikla máli ekki í gegn um Alþingi án þess að reiða sig á stuðning þingmanna utan þing- flokka ríkisstjórnarinnar. Þingfundur hefst klukkan tíu fyrir hádegi í dag. Þar lýkur þriðju umræðu um frumvarp til laga um ríkisábyrgð á Icesave-skuldbind- ingunum. Formenn flokkanna taka einir til máls í umræðunni og hefur hver þeirra fimmtán mín- útna ræðutíma, samkvæmt sam- komulagi sem fyrir liggur. Við atkvæðagreiðsluna verða lagðar fram tillögur stjórnarandstöðu um að málið verði borið undir þjóðaratkvæði. -pg Enn óvissa um atkvæðagreiðslu vegna Icesave: Óvíst um afstöðu Ásmundar SJÁVARÚTVEGUR Útgerðarfélagið Völusteinn ehf. hefur keypt eign- ir þrotabús Festar ehf. í Hafnar- firði. Kaupverðið er 3,2 millj- arðar króna. Völusteinn yfirtók ekki gamlar skuldir Festar, held- ur voru kaupin fjármögnuð með eigin fé og nýjum lánum. Um er að ræða rekstur og sex báta, fisk- vinnslu og aflaheimildir. Völusteinn, sem er í eigu Ólafs Jens Daðasonar og Gunnars Torfasonar, mun taka við rekstri þrotabúsins nú um áramótin. Fyrir gerir félagið út línubátinn Hrólf Einarsson frá Bolungarvík. Ekki er á döfinni að færa starf- semi Festar þangað, segir Gunn- ar. „Það verður gert út frá Bol- ungarvík og Suðurnesjum og afli bátanna fer til vinnslu í Hafnar- firði, líka af Hrólfi Einarssyni,“ segir hann. Hann segir félagið nú hafa um 2.000 þorskígildi til umráða en fyrir kaupin átti Völu- steinn ríflega 300 þorskígildi. Farið verður í hagræðingu á félaginu strax í janúar. „Það verður allt gert til þess að halda starfsfólki. Það sem við erum að kaupa eru aflaheimildir, fram- leiðslutæki og mannauður. Án mannauðs væri ekki hægt að sækja þennan fisk.“ Það var Landsbankinn sem sá um sölu þrotabúsins í umboði skiptastjóra. Alls bárust 36 tilboð í eignirnar. - þeb Vestfirskt útgerðarfélag kaupir eignir þrotabús Festar í Hafnarfirði á 3,2 milljarða: Vinnslan áfram í Hafnarfirði FESTI Rekstri fyrirtækisins verður haldið áfram á sínum stað í Hafnarfirði, að sögn nýrra eigenda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÁSMUNDUR EINAR DAÐASON ORKUMÁL Kaup Magma Energy á HS Orku kunna að fara á svig við íslensk lög, að mati Lagastofnunar Háskóla Íslands. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Samkvæmt lögum um fjárfest- ingu erlendra aðila mega fyrir- tæki og einstaklingar utan EES ekki eiga í íslensku orkufyrirtæki. Magma er kanadískt félag, en keypti hlutinn í HS Orku í gegnum sænskt félag. Nefnd sem sér um að fylgja lög- unum eftir hefur haft þetta mál til skoðunar. Lagastofnun Háskól- ans hefur unnið lögfræðiálit fyrir hana og eru kaupin á gráu svæði samkvæmt því. - þeb Hlutur Magma í HS Orku: Kaupin gætu verið ólögleg LÖGREGLUMÁL Rökstuddur grun- ur leikur á að í kringum fimmt- án kílóum af kókaíni, sem tveir Íslendingar voru teknir með í Madrid um miðjan mánuð- inn, hafi átt að smygla hingað til lands, samkvæmt upplýsing- um Fréttablaðsins. Maður og kona, rétt um tvítugt, sitja í haldi ytra vegna málsins. Þeim hefur verið útvegaður lögfræðing- ur, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Parið var handtekið á Barajas- flugvelli í Madrid 17. desember síðastliðinn. Það var þá að koma frá Perú. Fullvíst er talið að mað- urinn og konan séu burðardýr, sem hafi verið ætlað að koma efnunum hingað til lands. Kókaínið höfðu þau falið í ferðatöskum. Tollgæslu- menn á flugvellinum stöðvuðu þau við komuna til landsins. Þau voru í kjölfarið úrskurðuð í gæsluvarð- hald og eru nú í fangelsi um þrjátíu kílómetra utan við borgina. Karl Steinar Valsson, yfirmað- ur fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir rann- sóknina alfarið í höndum lögregl- unnar á Spáni. Hún vilji ekki að upplýsingar um málið séu veittar á þessu stigi þess. Hann kveðst því einungis geta staðfest að íslenska fíkniefnalögreglan hafi vitneskju um það. „Við höfum verið í samvinnu við spænsku lögregluna vegna máls- ins,“ segir Karl Steinar. „En allt annað er algjörlega á þeirra for- ræði, þar með talin upplýsingagjöf og eftir því förum við.“ Pétur Ásgeirsson, sviðsstjóri rekstrar- og þjónustusviðs hjá utanríkisráðuneytinu, segir ráðu- neytið hafa verið í sambandi við unga parið í gegnum ræðismann Íslands í Madrid. Hann kveður ráðuneytið ekki gefa upplýsingar um einkamál skjólstæðinga, nema þeir samþykki það eða beinlínis fari fram á það. „Í þessu tilviki er ekki ætlast til þess að við séum að upplýsa um málið,“ segir Pétur. Hann segir ræðismanninn aðstoða fólkið eftir mætti. „Við munum fylgjast með fram- vindu málsins eins og við gerum yfirleitt þegar svona nokkuð kemur upp,“ segir Pétur. „Almennt talað er okkar aðkoma sú, að þegar fólk er handtekið fær það leyfi til þess að hafa samband við íslenskan ræðismann eða sendiráð á viðkom- andi stað. Síðan gengur málið sinn gang í réttarkerfi viðkomandi ríkis. Hlutverk ráðuneytis er einkum félagslegur stuðningur við fólk.“ jss@frettabladid.is BARAJAS-FLUGVÖLLUR Íslendingarnir tveir, maður og kona sem bæði eru um tvítugt, voru handteknir með fíkniefni á Barajas-flugvelli í Madrid 17. desember og sitja nú í haldi ytra. Kókaínið í Madrid átti að koma hingað Íslendingarnir sem handteknir voru á flugvellinum í Madríd voru með í kring- um fimmtán kíló af kókaíni. Rökstuddur grunur leikur á að smygla hafi átt kókaíninu til Íslands. Maðurinn og konan eru talin vera burðardýr. SJÁVARÚTVEGUR Afturkalla á lög um afnám sjómannaafsláttar, að mati sjómannadeildar Starfs- greinafélagsins Afls. Ef það verð- ur ekki gert eiga sjómenn að fá dagpeninga. Þetta kemur fram í ályktun félagsins. Í ályktuninni eru stjórnvöld átalin fyrir lagabreytingar á skattaumhverfi sjómanna án þess að tekið sé tillit til sögu sjó- mannaafsláttarins. „Krafa fund- arins er að lögin verði afturköll- uð eða að sjómenn fái í hans stað dagpeninga líkt og aðrar stéttir sem stunda vinnu fjarri heim- ili og skorar fundurinn á útvegs- menn að standa með sjómönnum í þessum efnum,“ segir einnig í ályktuninni. - þeb Afnám sjómannaafsláttar: Sjómenn fái dagpeninga SVISS, AP Yfirmaður Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar (WHO) segir of snemmt að lýsa því yfir að svínaflensufaraldurinn hafi náð hámarki á heimsvísu. Dr. Margaret Chan segir að H1N1 flensan hafi náð hámarki í Bandaríkjunum, Kanada og nokkrum öðrum löndum á norð- urhveli jarðar. Hér er flensan í rénun samkvæmt Farsóttafrétt- um Landlæknis. Chan segir ekki öll lönd jafnvel sett og enn sé langt eftir af vetri. - óká Of snemmt að fagna sigri: Flensan ekki enn í hámarki JÓLI FÆR FLENSUSPRAUTU Jólasveinn fær svínaflensubólusetningu á æfingu fyrir jólahátíð í Búdapest. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hafnaði í gærmorgun frá- vísunarkröfu í meiðyrðamáli Viggós Sigurðssonar handknatt- leiksþjálfara gegn útgáfufélag- inu Birtíngi, ritstjórum og blaða- manni DV og hjónum sem voru viðmælendur blaðsins. Viggó stefndi hópnum vegna ummæla sem hjónin létu fjalla í samtali við DV þess efnis að þau hefðu kært hann fyrir að stela 40 feta gámi af lóð þeirra. Viggó hefur látið hafa eftir sér að lög- reglan hafi tjáð honum að engin slík kæra hafi borist. Hann lítur því svo á að um ærumeiðandi ummæli hafi verið að ræða. - sh Héraðsdómur Reykjavíkur: Frávísun í máli Viggós hafnað ÚKRAÍNA, AP Samkomulag hefur náðst milli orkufyrirtækis Úkra- ínu og Rússlands um flutninga á olíu og gasi um Úkraínu til Evrópu. Valentín Zemljanskí, talsmaður Naftogaz, orkufyrirtækis Úkra- ínu, segir Rússa hafa fallist á að hækka flutningsgreiðslur vegna Evrópu um þriðjung. Þá segir hann Rússa hafa fallist á að færa greiðslur úr Bandaríkjadölum yfir í evrur. Með samkomulaginu er bægt frá hættunni á því að olíu- flutningar frá Rússlandi stöðvist. - óká Sættir Rússlands og Úkraínu: Olíuflutningar raskast ekki FUNDAÐ Rússar semja við fleiri en Úkraínu um orkumál. Myndin er frá fundi forseta Túrkmena og forseta Rússa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.