Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 20
20 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Á ramótum fylgir iðulega ákveðinn tregi en tilhlökkun á sama tíma. Sennilega munu þó ekki margir Íslendingar horfa með söknuði til þess er árið 2009 kveður enda hefur það verið landsmönnum erfitt að mörgu leyti. Það sem hefur þó reynst flestum erfiðara að takast á við er ekki endilega hrunið sjálft með öllum sínum veraldlegu fylgi- kvillum heldur miklu frekar það sundurlyndi sem tók sér bólfestu í þjóðarsálinni í kjölfar þess. Samstaðan – sem þessi fámenna þjóð hefur iðulega sýnt á erfiðleikatímum – riðlaðist. Þegar við lítum til baka eftir nokkur ár og reynum að gera okkur grein fyrir allri þeirri reiði sem þjóðin hefur verið að takast á við á undanförnum mánuðum verður ein skýringin sennilega sú að hrunið kom þjóðinni algjörlega í opna skjöldu – við trúðum því aldrei að þetta gæti gerst. Við vorum grandalaus og óviðbúin og því varð skellurinn svo stór þegar hann kom. Þjóðin fylltist vantrú og reiði og leitin að sökudólgunum hófst. Fyrir jól birtist viðtal í DV við frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrr- verandi forseta, þar sem hún segir meðal annars: „Öll erum við mannleg. Það getur alla hent að gera mistök. En við getum valið milli þess að sópa þeim undir teppið eða viðurkenna þau og læra af þeim. Í þessum síðari kosti er máttur mannsins og opinna sam- félaga ekki síst fólginn; að umbera gagnrýni, viðurkenna mistök og læra af þeim.“ Á þetta hefur skort hér á landi og þessi afstaða hefur haldið þjóðinni í ákveðinni gíslingu – í ákveðinni kyrrstöðu. Þeir eru fáir sem þola gagnrýnina, enn færri sem viðurkenna mistökin og svo til enginn hefur beðist afsökunar á sínum þætti í hruninu. En ástæða þess er ekki eingöngu að viljann hefur skort til að viður- kenna mistök og biðjast afsökunar – heldur ekki síður að andinn í þjóðfélaginu hefur verið með þeim hætti að þjóðin hefur ekki verið móttækileg fyrir afsökunarbeiðnum og eftirsjá. Þjóðin hefur verið í vígahug – heimtað „blóð“, útskúfun og þunga refsidóma. Án vafa munu á endanum einhverjir hljóta dóma fyrir sinn þátt í hruninu, hafa unnið til þess og munu taka út sína refsingu. Hins vegar er það jafnljóst að flestir gerðu ekkert ólöglegt – sinntu einfaldlega sinni vinnu – urðu reyndar margir græðginni að bráð og vildu án efa í dag hafa gert hlutina á annan hátt. Þjóðin getur valið um það að halda þessu fólki áfram úti í kuldanum eða skapa jarðveg til sátta. Til þess að svo megi verða þurfa þeir sem þátt tóku að viðurkenna mistök – sýna eftirsjá. En ekki síður verður þjóðin sjálf að vera tilbúin til að fyrirgefa – því án fyrirgefningar mun afsökun ein og sér gera lítið. Fátt yrði þjóðinni til meiri gæfu á komandi ári en að afsökun og fyrirgefning héldust hönd í hönd því þannig gæti þjóðin tekist sameiginlega á við núverandi erfiðleika. Við munum líka vinna okkur í gegnum erfiðleikana þó að reiðin, sundurlyndið og skort- ur á fyrirgefningu haldi áfram. Þá verður hins vegar svo miklu leiðinlegra að búa í þessu landi – svo miklu leiðinlegra að vera Íslendingur. Iðrun og fyrirgefning fari saman á nýju ári. Árið 2009 kvatt án eftirsjár MARGRÉT KRISTMANNSDÓTTIR SKRIFAR UMRÆÐAN Guðjón Sigurðsson skrifar um sam- félagsmál Þó lífið sé flókið og einfalt í senn, hefur hagsmunasamtökum, stjórnvöldum og ekki síst embættismönnum tekist að flækja líf fólks sem þarf aðstoð óendanlega. Ef maður þarf aðstoð þá er byrjað á að finna „kassa“ sem hægt er að setja þig í. Ert þú: barn, fullorðinn, eldri borgari, andlega veikur, líkamlega veikur, langveikur, „stutt“ veikur, með krabbamein, með MND, með SMA og svo má lengi telja. Ekki má svo gleyma aðal kassanum „hvar á landinu býr viðkomandi“. Til að kóróna ruglið þá verður barnið fullorðið og sá fullorðni eldri borgari sem þýðir að finna verður nýjan kassa til að setja þau í. Fram að þessu þá hafa úrræðin verið stofnanatengd, valdsviptandi, ósann- gjörn, rándýr og um leið mannréttinda- brot á viðkomandi einstaklingi og nán- ustu ættingjum og vinum. Lausnin er ákaflega einföld, hagkvæm og tryggir mannréttindi allra borgara landsins. Látum notandann stýra sinni aðstoð og þá gildir einu hvort viðkom- andi býr í Hafnarfirði eða á Raufarhöfn. Fjármagnið fylgi einstaklingnum. Ég er Íslendingur og þarf ákveðna aðstoð og mér er flatt sama um í hvaða kassa aðrir vilja setja mig. Ósk mín fyrir árið 2010 er að við berum gæfu til að að gera Ísland að fyrirmynd annarra þjóða í velferðarmálum. Höfundur er formaður MND félagsins. Að setja fólk í kassa og engan eins GUÐJÓN SIGURÐSSON Útreikningar talnaglöggra hagfræðinga sýna að eftir bankahrunið hafi efnahagur Íslands færst aftur um áratug eða svo. Í efnahagslegu tilliti höfum við semsé glatað heilum áratug. Og meiru til raunar því nú skuldum við svo miklu meira en áður. Við lok fyrsta áratugar nýrrar þúsaldar, eftir kerfis- hrunið sem varð í fyrrahaust, getur því verið sársaukafullt að horfa í baksýnisspegilinn. Fyrir vegferðina fram á við er það hins vegar nauðsynlegt. Í upphafi aldarinnar virtust okkur Íslendingum allir vegir færir. Við fórum létt með að hrista af okkur eftirhreytur netbólunnar sem sprakk eins og hver önnur sápukúla og hófum að klífa upp á efstu tinda í alþjóðavæddum fyrir- tækjarekstri. Með aðstoð nán- ast ókeypis lánsfjár gleyptu nýeinkavæddir bankarnir hvert alþjóðlega stórfyrirtækið á fætur öðru og kornungir útrás- ardrengir vopnaðir nýslegnu viðskiptafræðiprófi og glopp- óttri barnaskólaensku settust í stjórnir rótgróinna erlendra félaga. Talað var um nýtt hag- kerfi þar sem lögmál þess gamla giltu ekki lengur. Hver skuld- setta yfirtakan á fætur annarri var klöppuð upp sem viðskipti ársins: Magasin du Nord, Illum, Nyhedsavisen, Debenhams, House of Frasier, Heritable bank, FIH-Erhvervsbank, Sin- ger&Friedlander. Flest okkar hrifust með. Að beiðni djarf- huga viðskiptamanna nútím- ans afnámu stjórnvöld svo gamal dags reglur og glansblöð- in bjuggu til stjörnur úr skulda- kóngunum. Árið 2006 lagði Viðskiptaráð til að Ísland hætti að bera sig saman við Norðurlöndin „enda stöndum við þeim framar á flestum sviðum“. Í ímyndar- skýrslu forsætisráðuneytisins frá því í mars 2008 var fjallað um sérstaka eðliseiginleika „sem aðgreinir Íslendinga frá öðrum þjóðum“ og gerðu þeim kleift að skara frammúr á alþjóðavettvangi: „Mikilvægt er að tryggja að Ísland verði áfram „best í heimi“,“ sögðu skýrslu- höfundar í feitletraðri saman- tekt. Náttúruval á sögueyjunni Máttarstólpar samfélagsins klöppuðu flestallir sama stein. Í ræðu í London árið 2005 leitaðist sjálfur forsetinn við að skýra út fyrir útlendingum eðlislæg sér- kenni íslensku útrásarvíking- anna sem vegna einstaks nátt- úruvals á sögueyjunni myndu nánast óhjákvæmilega sigra heiminn. Við blasir kenning um að á Íslandi hafi orðið til algjör- lega sérstök þjóð með einstaka eðlislæga hæfileika sem hafi alla burði til forystu í heiminum. En að hún hafi lengst af verið tak- mörkuð af einangrun sinni og fámenni. Svo þegar hömlurnar hurfu með aukinni hnattvæðingu og opnun fjármálamarkaða hafi þjóðin sprungið út og blómstrað. Hér var semsé komin fram ein- hvers konar eðlislæg skýring á risi íslenska efnahagsundursins og því haldið fram í fúlustu alvöru að sökum náttúruvals yrðu Íslendingar í forystu í alþjóðlegum fyrirtækjarekstri. Í ræðu í Los Angeles árið 2000 gekk forsetinn jafnvel svo langt að bjóða Bandaríkjamönnum að taka þátt í þessari nánast óumflýjanlegu vegferð Íslend- inga, annars myndu þeir sitja eftir með sárt ennið við upphaf nýrrar þúsaldar. Mér er að vísu til efs að allur almenningur hafi endilega geng- ið með þessar grillur í kollinum en rannsóknir sýna að þegar kemur að umræðu um tengslin við önnur lönd hafa íslenskir stjórnmálamenn einhverra hluta vegna hamrað á hugmyndinni um óvéfengjanlega sérstöðu íslensku þjóðarinnar. Sitt hvor hlið á sama pening Þegar skýjaborg útrásarhag- kerfisins hrundi svo yfir okkur í fyrrahaust kom smám saman fram önnur hugmynd meðal sumra afla í samfélaginu. Nú vorum við ekki lengur að sigra heiminn heldur allt í einu orðin fórnarlamb vondra útlendinga sem áttu að hafa setið á svikráð- um við þessa saklausu smáþjóð í norðri. Þegar að er gáð hefur þó kannski ekki orðið jafn mik- ill viðsnúningur og ætla mætti. Hugmyndin um umsátrið er nefnilega af nokkurn veginn sama meiði og hugmyndin um yfirburðaþjóðina. Sitt hvor hlið- in á sama pening. Myndin hafði einfaldlega snúist við. En nú er áratugur öfganna vonandi á enda runninn. Við erum hvorki nein sérstök yfir- burðaþjóð né saklaust fórnar- lamb utanaðkomandi umsáturs. Á Íslandi býr hins vegar vel menntuð þjóð i gjöfulu landi sem hefur alla burði til að búa þegn- um sínum góð lífskjör. Verkefnið fram undan hlýtur því að vera að vinsa úr hvað í þessum hug- myndum og allri þeirri umræðu sem fram hefur farið um sér- stöðu íslensku þjóðarinnar er nýtilegt til uppbyggingar í sam- félaginu og hvað er bókstaflega stórhættulegt. Týndi áratugurinn EIRÍKUR BERGMANN Í DAG | Áratugur öfganna Nú vorum við ekki lengur að sigra heiminn heldur allt í einu orðin fórnarlamb vondra útlendinga sem áttu að hafa setið á svikráðum við þessa saklausu smáþjóð í norðri. Að níu mánuðum liðnum Fullir sjálfstrausts gerðu stjórnmála- flokkarnir hosur sínar grænar fyrir kjósendum í aprílmánuði. Sminkaðir og greiddir birtust foringjarnir í aug- lýsingum undir grípandi slagorðum. „Framsókn – fyrir okkur öll,“ sagði Sigmundur Davíð og lofaði meðal annars nýrri stjórnarskrá. „Valið er skýrt,“ sögðu Bjarni og Þorgerður Katrín og spurðu hverjum væri best treystandi til að byggja upp atvinnulífið og berjast gegn atvinnuleysi um leið og þau kváð- ust vilja skapa tuttugu þúsund störf á kjör- tímabilinu. Öll eru þau í stjórnarandstöðu og því ekki í góðri stöðu til að efna loforðin. Rödd á nýjum stað „Þessi rödd verður að heyrast áfram,“ sögðu Frjálslyndir undir mynd af Guðjóni Arnari. Hann datt af þingi en hefur líklega aldrei haft jafn mikil pólitísk áhrif og þegar hann var fenginn til ráðgjafarstarfa í sjávarútvegsráðuneytið. Norræn velferðarbrú Samfylkingin og VG eru hins vegar í ríkisstjórn. „Kjósum norrænt vel- ferðarsamfélag,“ sögðu Steingrímur og Katrín. Kunnugir segja fátt benda til slíks samfélags, utan jú hvað skattþrepin eru nú eru orðin þrjú. „Velferðarbrú fyrir heimilin,“ sagði svo Jóhanna og bætti við: „Velferð- arbrú fyrir skuldsettar fjölskyldur er eitt mikilvægasta verkefni Sam- fylkingarinnar í ríkisstjórn. Brúin er samsett úr mörgum markvissum aðgerðum sem efla stöðu heimilanna og tryggja að þau sem komast í vanda fái aðstoð eftir þörf- um. Þannig nýtum við takmarkaða fjármuni þjóðarinnar best.“ Hefur einhver orðið var við þessa brú? bjorn@frettabladid.is NJARÐARBRAUT 9 - REYK JAN ES BÆ FIS KIS LÓÐ 3 - REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.