Fréttablaðið - 30.12.2009, Síða 28

Fréttablaðið - 30.12.2009, Síða 28
MARKAÐURINN 30. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR4 V I Ð S K I P T I Á R S I N S A ðkoma erlendra fjár- festa hér og og alþjóð- legar tengingar Frón- búa við umheiminn voru dómnefnd Markaðar- ins ofarlega í huga að þessu sinni í vali á viðskiptum ársins. Það er enda skiljanlegt í skugga strangra gjaldeyrishafta sem reist hafa mör- landanum múr og lokað inni með íslenskar krónur í vasanum. Þeir eru eftirfarandi í stafrófs- röð: MAREL OG NÝIR HLUTHAFAR Kaup bandaríska fjárfestasjóðsins Columbia Wanger Asset Manage- ment, dótturfélags Bank of Amer- ica, á rúmum fimm prósenta hlut í Marel í september komust á blað sem viðskipti ársins. Kaupin voru á genginu 59 krónur á hlut, jafnvirði 1,9 milljarða króna, sem verður að teljast hagstætt fyrir báða aðila. Gefin voru út ný hlutabréf í Marel í tengslum við viðskiptin auk þess sem Horn, fjárfestingafélag Lands- bankans, seldi úr eignasafni sínu. Við kaupin jókst hlutur erlendra aðila í Marel úr ellefu prósentum í sextán. Til samanburðar áttu er- lendir aðilar ekkert í Marel í byrjun árs 2006. Þá komst hlutafjáraukning Marel í lok nóvember á blað en í henni skiptu íslenskir lífeyrissjóð- ir og innlendir fagfjárfestar stór- um hluta af tveimur skuldabréfa- flokkum félagsins í hlutafé upp á sjö milljarða króna. MAGMA ENERGY OG HS ORKA Kaup kanadíska félagsins Magma Energy á HS Orku á Reykjanesi undir lok árs fékk stig hjá dóm- nefndinni. Félagið eignaðist 41 pró- sents hlut í HS Orku með kaupum á hlut Geysis Green Energy, Orku- veitu Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Sandgerðis fyrir samtals fimmt- án milljarða króna. Magma Energy greiðir 6,2 milljarða út en afgang- inn á þremur árum. „Félagið fékk frábæra fjármögnun frá seljendum og verðið virðist mjög sanngjarnt,“ sagði einn dómnefndarmanna. SALA LS RETAIL TIL MICROSOFT Kaup bandaríska hugbúnaðarris- ans Microsoft á hugbúnaðarlausn- inni LS Retail AX frá LS Retail í september komst á blað sem ein af stærstu viðskiptum ársins. Hugbúnaðurinn er notaður í verslunarkerfum sem nefnast Dynamics AX og notað í um 140 löndum. Kaupverð hefur aldrei verið gefið upp að öðru leyti en því að þetta hafi verið einhver stærsta sala á hugbúnaði í Íslandssögunni. Greint var frá því í fjölmiðlum eftir viðskiptin að þegar mest var hafi um tvö hundruð manns komið að því að ljúka sölunni. VOGUNARSJÓÐIR Kaup ýmissa vogunarsjóða á skuldabréfum gömlu bankanna eiga fyllilega rétt á sér sem bestu viðskipti ársins. Vogunarsjóðirnir keyptu skuldabréf Glitnis, Kaup- þings og Landsbankans á útsölu- verði nokkru eftir hrun bankanna í fyrrahaust. „Þeir sem keyptu í upp- hafi árs hafa grætt mikið,“ sagði einn um viðskipti sjóðanna. Dæmi eru um að skuldabréf Landsbankans hafi selst með 99,9 prósenta afslætt en hinna bank- anna með um 98 prósenta afslætti. Afslátturinn þá jafngilti því að eig- endur skuldabréfanna byggjust við að fá um tvö prósent krafna upp í skuldir úr þrotabúi bankanna. Heimtur hafa reynst talsvert betri en gert er ráð fyrir að kröfuhafar Kaupþings fái 23 prósent til baka, Glitnis 21 prósent og Landsbankans 4,5 prósent. Þetta jafngildir því að þeir sem keyptu kröfur Landsbankans hafi hagnast um 4.400 prósent en hinna bankanna beggja í kringum eitt þúsund prósent. Viðskiptablaðið greindi frá því fyrir skömmu að veltan með skuldabréf bankanna undanfarið ár hafi verið á bilinu tólf til fjór- tán milljarðar evra, jafnvirði 2.200 milljarða króna. Með samningi kröfuhafa frá í haust eignast þeir nú hlut, mis- mikinn þó, í nýju bönkunum. Kröfuhafar Glitnis eignast 95 pró- sent í Íslandsbanka, en kröfuhafar Landsbankans nítján prósent. Margir komust á blað TÆKIN SKOÐUÐ Hlutafjárútboð Marel og aðkoma erlendra fjárfesta er á meðal bestu viðskipta ársins að mati dómnefndar Markaðarins. MARKAÐURINN/GVA FRÁ REYKJANESI Magma Energy er sagt hafa fengið gott verð fyrir fjörutíu prósenta hlut í HS Orku. MARKAÐURINN/VALLI ■ Kaup á ríkistryggðum skuldabréfum – ávöxtunin hefur verið í kringum tuttugu prósent. ■ Ragnar Bragason leikstjóri – hefur gert samninga fyrir hönd Jóns Gnarr og Péturs Jóhanns Sigfússonar á erlendri grundu Önnur viðskipti Um leið og við þökkum fyrir samstarfi ð á árinu sem er að líða óskum við landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári. Ármúla 30 | 108 Reykjavík Sími 560 1600 | www.borgun.is Gleðilega hátíð og farsælt nýtt ár E inungis fern viðskipti féllu í flokk með verstu v ið sk ipt u m á r s i n s . Engir tveir þátttakend- ur í könnun Markaðar- ins völdu sömu viðskiptin utan ein, sem allir nema einn nefndu. Það voru kaup fjárfestahópsins Þórsmerkur á Árvakri, útgáfu- félagi Morgunblaðsins, undir lok febrúar sem teljast verstu við- skipti ársins, að mati dómnefnd- ar Markaðarins. Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður banka- ráðs Landsbankans og stærsti hluthafi bankans, var helsti hlut- hafi Árvakurs. Eftir fall bankans í október í fyrra var Nýi Glitn- ir, helsti lánardrottinn Morg- unblaðsins, með örlög þess í höndum sér. Í byrjun árs ákvað bankinn að setja útgáfufélagið í opið sölu- ferli. Búist var við að kaupendur þyrftu að reiða fram hálfan millj- arð króna ásamt því að taka yfir um 4,6 milljarða króna lán sem var arfleifð fyrri eigenda. En fjárfestar voru tregir til að opna veskið. Á endanum átti fjár- festahópur undir forystu Óskars Magnússonar, fyrrverandi for- stjóra Tryggingamiðstöðvarinn- ar, besta tilboðið. Innan hópsins er Guðbjörg Matthíasdóttir, eig- andi Ísfélagsins í Vestmanna- eyjum, sem var stærsti hlut- hafi Tryggingamiðstöðvarinnar í stjórnartíð Óskars. Aðrir voru Gunnar B. Dungal, stundum kenndur við Pennann, Þorgeir Baldursson hjá Odda, Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri fisk- verkunarinnar Vísis í Grindavík, og Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi stjórnarformaður Glitnis og forstjóri Samherja. At- hafnamaðurinn Bolli Bollason, kenndur við tískuvöruverslunina Sautján, bættist síðar í hópinn. Kaupverð hefur aldrei verið gefið upp að öðru leyti en því að það var tvö hundruð milljón- um hærra en boð ástralska auð- mannsins Steves Cosser. Íslands- banki og Landsbankinn afskrif- uðu tæpa þrjá milljarða króna vegna viðskiptanna. „Þetta var endaleysis verð,“ skrifaði einn í dómnefnd Markaðarins. Aðrir bentu á mikinn taprekstur í gegnum tíðina og lítil von væri að sneri til betri vegar. Kaup á Árvakri verstu viðskipti ársins Dómnefnd Markaðarins nefndi einungis fern önnur vond viðskipti á árinu. Hér eru þau í engri sérstakri röð: ■ Ríkisvæðing fyrirtækja og hæg sala til markaðarins á ný. Yfirtaka bankanna á fyrirtækjum er skaðleg þjóðarbúskapnum. ■ Kaup félaga tengdra Karli og Steingrími Wernerssonum og Engey- ingunum Benedikt og Einari Sveinssonum á turni í Makaó. ■ Steingrímur J. Sigfússon og Icesave-samningurinn. ■ Aðkoma ríkisins að Teymi með niðurskrift skulda upp á 30,8 milljarða króna. Önnur vond viðskipti HÚSAKYNNI MOGGANS Kaup fjárfestanna sem keyptu Árvakur frá Glitni snemma á árinu eru talin verstu viðskipti ársins. MARKAÐURINN/GVA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.