Fréttablaðið - 30.12.2009, Síða 34
MARKAÐURINN 30. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR10
I N N L E N D U R A N N Á L L
Á
hrifa af ofhitnun hag-
kerfisins síðustu ár og
hruninu í fyrra gætti
enn á árinu sem er að
líða. Í raun má segja að
allt hafi verið á suðupunkti.
JANÚAR
„Við höfum úr háum söðli að detta
en ekki Simbabve,“ sagði Gylfi
Magnússon, þá dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, um umfjöll-
un vikuritsins Economist um hag-
vöxt á heimsvísu í fyrstu viku árs-
ins. Ísland vermdi botnsætið enda
reiknað með tíu prósenta sam-
drætti hér í kjölfar bankahruns-
ins. Væntingarnar voru tvöfalt
verri en í Afríkuríkinu Simbabve.
Gylfi benti á að Simbabve hafi um
árabil glímt við efnahagsþreng-
ingar, áttatíu prósenta atvinnu-
leysi og hungursneyð. Því sé ekki
að skipta hér.
Seðlabankinn flutti átján pró-
senta stýrivexti með sér inn í
nýtt ár og vildu margir koma
þeim niður. „Ég hafna því að
það sé nokkur ágreiningur innan
Seðlabankans í peningamálum,“
sagði Ingimundur Friðriksson
seðlabankastjóri um ósamræmi
á milli bankastjórnar Seðlabank-
ans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(AGS). Bankastjórnin vildi lækka
stýrivexti. Fréttablaðið sagði hag-
fræðisvið bankans og AGS því
mótfallið.
Fleira var á suðupunkti en hag-
kerfið. Ríkisstjórnin var í frjálsu
falli og sneru stuðningsmenn við
henni baki.
„Ég hef aldrei verið í vafa um
að ég ber hluta af hinni pólit-
ísku ábyrgð og hef alltaf ætlað
að axla hana,“ sagði Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra er
hann sagði óvænt af sér embætti
undir lok mánaðar. Á sama tíma
vék hann forstjóra Fjármálaeftir-
litsins frá ásamt stjórn þess. Svo
féll ríkisstjórnin. Jóhanna Sigurð-
ardóttir tók við stól forsætisráð-
herra af Geir Haarde í nafni Sam-
fylkingar og Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstri-grænna,
tók við fjármálaráðuneytinu.
Gæfan virtist almennt hafa
snúið baki við landinu, ekki síst
heimilum og fyrirtækjum.
FEBRÚAR
„Brýnasta verkefni ríkisstjórn-
arinnar er að endurreisa traust
á fjármálakerfi landsins. Grund-
völlur þess er að gera breytingar
á yfirstjórn Seðlabankans,“ sagði
Jóhanna og sendi bankastjórun-
um þremur í Seðlabankanum bréf
þar sem farið var fram á að þeir
færu samstundis frá. Hún lagði
sömuleiðis fram stjórnarfrum-
varp, sem gerði ráð fyrir einum
seðlabankastjóra í stað þriggja.
Sá skyldi hafa meistarapróf í hag-
fræði. Sjálfstæðismenn urðu æva-
reiðir og sögðu frumvarpið sniðið
til þess eins að koma Davíð Odds-
syni úr Seðlabankanum.
Ingimundur Friðriksson var
fyrstur til að hlýða kalli ráðherra
en þeir Davíð og Eiríkur Guðna-
son neituðu að hreyfa sig fyrr en
frumvarpið yrði að lögum.
Um svipað leyti settu skila-
nefndir Glitnis og Landsbankans
Baugi stólinn fyrir dyrnar. Lán
til félagsins voru gjaldfelld og
gengið að eignum í Bretlandi.
Hreinsunarstarf var hafið og
mælti sænski bankasérfræðing-
urinn Mats Josefsson með því að
„eitraðar eignir nýju bankanna“
yrðu færðar í sérstakt eigna-
umsýslufélag. Þar á meðal voru
helstu fjárfestingafélög lands-
ins, fyrirtæki í byggingariðnaði
og stór bílaumboð.
Þegar halla tók á mánuðinn
sáust fyrstu merki um uppstokk-
un á bankakerfinu og hugsanlega
aðkomu erlendra kröfuhafa að
nýju bönkunum.
Frumvarp forsætisráðherra
um breytingar á Seðlabankanum
varð loks að lögum í lok mánað-
ar og kvöddu þeir Davíð og Ei-
ríkur samstarfsfólk sitt. Norski
hagfræðingurinn Svein Harald
Øygard tók við starfi þeirra.
MARS
Endurreisnarnefnd Sjálfstæðis-
flokksins setti út óvænt spil þegar
hún sagði í drögum að ályktun far-
sælast að ganga til viðræðna við
Evrópusambandið um gjaldeyris-
mál enda erfitt að byggja upp efna-
hagslíf að nýju með ónýta krónu.
Höfundur var Ólafur Ísleifsson
hagfræðingur sem jafnframt á
sæti í Skuggabankastjórn Mark-
aðarins. Drögin skrifaði hann að
beiðni flokksins. Hugmyndirnar
urðu að engu enda samræmdust
þær ekki stefnu flokksins.
Þrátt fyrir væntingar Seðla-
bankans til að styrkja krónuna með
belti og axlaböndum í formi gjald-
eyrishafta nýttu fjárfestar allar
þær glufur sem þeir komu auga á
til að fara fram hjá þeim og keyptu
krónur á aflandsmörkuðum.
Uppskeran var ríkulega enda tug-
prósenta munur á gengi evrunnar
hér og á mörkuðum ytra.
Þá féll Straumur í hendur skila-
nefndar þegar hann gat ekki stað-
ið við skuldbindingar sínar. Þetta
var fyrsti bankinn sem féll í hend-
ur ríkisins á árinu. Erlendir fjöl-
miðlar sögðu hættu á þjóðar-
gjaldþroti Íslands. Staðan veikt-
ist hratt og atvinnuleysi jókst
stöðugt. Þá fóru fleiri fyrirtæki
á hliðina, flest í byggingaiðnaði.
Seðlabankinn sagði átján pró-
sent heimila landsins með nei-
kvæða eiginfjárstöðu. Forsætis-
ráðherra sagði hugsanlegt að af-
skrifa stóran hluta skulda þeirra
verst settu.
Mark Flanagan, yfirmaður
sendinefndar Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, var vongóður um að
horfur í efnahagsmálum gætu
batnað undir lok árs.
Horfurnar voru ekki betri en
svo að Byr greindi frá 29 millj-
arða króna tapi. „Þetta eru mikil
vonbrigði,“ sagði Ragnar Z. Guð-
jónsson sparisjóðsstjóri og biðl-
aði til ríkisins eftir eiginfjár-
framlagi. Fimm sparisjóðir áttu
eftir að bætast í hópinn.
Sparisjóðabankinn og Spron
komust ekki niður á hnén. Áður
en til þess kom tók FME bank-
ana yfir og heyra þeir nú sögunni
til.
APRÍL
Decode, móðurfélag Íslenskrar
erfðagreiningar, ein af vonar-
stjörnum íslenskra tæknifyrir-
tækja, greindi frá því í uppgjöri
sínu að fjármunir þess væru að
brenna upp.
Seðlabankinn leitaði allra
ráða til að vinda ofan af jökla-
bréfastaflanum svokallaða, eign-
um erlendra aðila í krónum sem
gjaldeyrishöftin áttu að halda
föstum í landinu. Ein hugmynd-
anna var að gefa erlendu fjár-
festunum færi á að fjárfesta í ís-
lenskum skuldabréfum útgefnum
af íslenskum útflutningsfyrir-
tækjum, sem myndu fá krónur í
kassann en greiða til baka í er-
lendri mynt. Þegar á reyndi var
ekki áhugi á slíku.
Fyrsta verk nýja seðlabanka-
stjórans fólst í lækkun stýri-
vaxta.
Þá var punktur settur aftan
við sögu Spron þegar MP Banki
Árið sem Ísland var gert upp
Ý M S A R T Ö L U L E G A R U P P L Ý S I N G A R 2 0 0 8 - 2 0 0 9
Ja
n.
´
08
Fe
b.
´
08
M
ar
. ´
08
Ap
r.
´0
8
M
aí
´
08
Jú
n.
´
08
Jú
l.
´0
8
Ág
ú.
´
08
Se
pt
. ´
08
O
kt
. ´
08
N
óv
. ´
08
D
es
. ´
08
Ja
n.
´
09
Fe
b.
´
09
M
ar
. ´
09
Ap
r.
´0
9
M
aí
´
09
Jú
n.
´
09
Jú
l.
´0
9
Ág
ú.
´
09
Se
pt
. ´
09
O
kt
. ´
09
N
óv
. ´
09
D
es
. ´
09
20
15
10
5
0
- 5
Verðbólga
Landsframleiðsla
Atvinnuleysi
Stýrivextir
Hagkerfið kólnaði hratt á árinu sem er að líða. Atvinnuleysi jókst verulega og tilvera fjölda fyrirtækja færðist í sögubækur.
Árið einkenndist af upplausn fyrstu mánuðina. Á vordögum brettu menn upp ermarnar og hófu að taka til í rekstrinum.
Hreinsunarstarfið stendur enn yfir. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson renndi yfir brot af því sem gerðist á árinu.
HÖFUÐSTÖÐVAR MILESTONE
Starfsmenn embættis sérstaks
saksóknara gerðu gögn upptæk í
höfuðstöðvum Milestone á árinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
Prósent