Fréttablaðið - 30.12.2009, Page 40

Fréttablaðið - 30.12.2009, Page 40
MARKAÐURINN 30. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR12 E R L E N D U R A N N Á L L selja þetta sænska dótturfyrir- tæki sitt til þess að bjarga eigin starfsemi. Í nóvember tóku svo Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og Angela Merkel Þýskalandskansl- ari sameiginlega ákvörðun um að koma bílaiðnaðinum í þessum tveimur löndum til bjargar. GJALDÞROT AIG Gjaldþrot fyrirtækja náðu líklega hámarki víðast hvar í kreppulönd- unum á árinu sem er að líða. Í Bretlandi, til dæmis, urðu nærri tíu þúsund fyrirtæki gjaldþrota á fyrri helmingi ársins, sem er meira en nokkru sinni hefur þekkst þar í landi, en aðeins var byrjað að draga úr gjaldþrotum á þriðja ársfjórðungi. Í mars vakti bandaríska trygg- ingafyrirtækið AIG, sem til skamms tíma var stærsta trygg- ingafyrirtæki heims, gríðarlega hneykslun þegar tilkynnt var að framkvæmdastjórar í fjár- máladeild fyrirtækisins, ættu að fá samtals 165 milljarða dala í kaupaukagreiðslur. Í byrjun mars höfðu bandarísk stjórnvöld skýrt frá því að AIG myndi fá 30 milljarða dala í fjár- hagsaðstoð frá ríkinu, til viðbót- ar við þá 150 milljarða dala sem fyrirtækið hafði þegar fengið. Daginn eftir skýrði fyrirtækið svo frá því, að tap þess á fjórða ársfjórðungi næmi 62 milljörðum dala, sem var stærsta ársfjórð- ungstap sögunnar til þess tíma. OFURBÓNUS Í ljósi þessa þóttu kaupaukarnir til framkvæmdastjóranna, sem stærsta ábyrgð báru á ófarnaði fyrirtækisins, ótrúleg ósvífni. Þingmenn brugðust ókvæða við og Ben Bernanke seðlabanka- stjóri sagðist hafa orðið ævareið- ur: „Ég skellti símanum nokkrum sinnum á þegar ég var að ræða AIG,“ sagði seðlabankastjórinn. Barack Obama krafðist þess að framkvæmdastjórarnir end- urgreiddu kaupaukana. Aðeins hluti þeirra hefur orðið við því. Bandaríkjaþing samþykkti lög um 90 prósent skatta á kaupauka í fyrirtækjum sem þegið hafa meira en fimm milljarða dala í ríkisaðstoð. Framkvæmdastjór- ar slíkra fyrirtækja hafa sumir brugðist við með því að ráða sig til annarra fyrirtækja, þar sem þeir sleppa við slíkan skatt. Ofurkaupaukar framkvæmda- stjóra hafa einnig verið til um- ræðu í Evrópulöndum, þar sem ekki síst Gordon Brown, forsæt- isráðherra Bretlands, hefur lagt mikla áherslu á að setja strangar reglur um kaupaukagreiðslur. Angela Merkel Þýskalands- kanslari og Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti tóku í sama streng og sendu frá sér sameig- inlega yfirlýsingu þar sem krafist var gegnsæis í fyrirtækjarekstri og strangari reglna um kaupauka fyrir G20-fundinn í september. MADOFF DÆMDUR Einn helsti skúrkur kreppunnar, Bernard Madoff, hlaut makleg málagjöld í júní þegar dómur féll í máli hans. Hann hafði haft nærri 65 milljarða dala af þúsund- um manna í Bandaríkjunum og var fyrir vikið dæmdur í samtals 150 ára fangelsi, sem er þyngsti dómur sem lög leyfðu. Hann á enga mögu- leika á náðun, sem þýðir í reynd að um ævilangt fangelsi er að ræða. Madoff hafði játað sekt sína í mars og sagðist þá hafa byrjað svika- starfsemi sína strax árið 1991. Svikamyllan gekk út á að hann tók við peningum af fjárfestum, en í staðinn fyrir að ávaxta féð greiddi hann þeim arð með peningum sem aðrir fjárfestar létu hann hafa, en spilaborgin hrundi þegar kreppan reið yfir haustið 2008. Á rið 2009 einkenndist öðru fremur af erfiðri glímu við heimskrepp- una miklu. Fyrstu raun- verulegu batamerkin sáust kannski í ágúst þegar Frakk- land, Þýskaland og Japan skriðu út úr samdráttarskeiði og gátu státað af svolitlum hagvexti. Aðgerðir til að örva efnahags- lífið hafa verið forgangsmál hjá flestum ríkjum, sem dælt hafa ómældu magni af peningum úr sjóðum sínum til að halda fyr- irtækjum á floti. Seðlabankar Bandaríkjanna, Bretlands, Eng- lands, Kanada og Evrópusam- bandsins hafa mestallt árið verið með stýrivexti í lágmarki, eða á bilinu 0,25 til 1 prósent. Í Bandaríkjunum tók Barack Obama við embætti forseta þann 20. janúar og ítrekaði við það tæki- færi það sem hann hafði boðað í kosningabaráttunni, að eitt helsta forgangsverkefni sitt innanlands verði að reisa efnahaginn við. Fáeinum vikum síðar afgreiddi Bandaríkjaþing björgunarpakka forsetans, sem fólst í því að dæla nærri 800 milljörðum dala í efnahagslífið, meðal annars með skattalækkunum og auknum vel- ferðarútgjöldum. Með þessu átti að koma efnahagslífinu af stað á ný, í þeirri von að það skríði smám saman upp úr kreppulægðinni. LEIÐTOGAFUNDIR Leiðtogar tuttugu stærstu efna- hagsvelda heims, G20-ríkjanna, hafa komið saman reglulega síðan kreppan hófst til að leita lausna og stilla saman strengi sína. Fyrsti fundur þeirra var í Wash- ington í nóvember 2008, síðan hitt- ust þeir í apríl síðastliðnum í Lond- on og loks Pittsburgh í Bandaríkj- unum í september. Næsti fundur er á dagskrá í Kanada í júní. Á nóvemberfundinum í nóv- ember 2008 voru fyrstu skrefin tekin, en á aprílfundinum komu þeir sér saman um 1.100 milljarða dala fjárveitingu til verkefna, sem eiga að styrkja alþjóðleg viðskipti og örva efnahagslífið. Ágreiningur var nokkur, eins og við mátti búast. Bandaríkjamenn og Bretar hefðu viljað ganga lengra í fjáraustri, en Frakkar og Þjóðverjar hefðu viljað setja enn strangari reglur um alþjóðleg við- skipti og fjármálastarfsemi. Á septemberfundinum var ákveðið að G20 hópurinn taki við af átta ríkja hópnum G8, sem fær veigaminna hlutverk og einbeitir sér að öryggismálum. G20-ríkin verða þá eins konar fastaráð al- þjóðlegrar efnahagssamvinnu. Eitt helsta markmið þessa leið- togaráðs verður að koma í veg fyrir að annað eins hrun geti orðið í framtíðinni eins og reið yfir efnahagslífið haustið 2008. „Ég held að við áttum okkur öll á því að við verðum að grípa til að- gerða áður en fennir yfir minni okkar um kreppuna og áður en hvatinn til umbóta dofnar,“ sagði Timothy Geithner, fjármála- ráðherra Bandaríkjanna. BÍLAIÐNAÐURINN Aðgerðir stjórnvalda hafa þó engan veginn komið í veg fyrir gjaldþrot jafnvel nokkurra stærstu fyrirtækja heims og erf- iðleika sem þeim hafa fylgt. Í byrjun júní óskaði GM, stærsti bílaframleiðandi Banda- ríkjanna, eftir gjaldþrotaskipt- um. Þetta taldist fjórða stærsta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna, en stærsta gjaldþrot iðnfyrir- tækis þar vestra. Rúmum mánuði síðar reis úr rústum fyrirtækis- ins nýtt og endurskipulagt fyrir- tæki, að mestu í ríkiseigu, en tölu- vert minna en gamla fyrirtækið, sem tók með sér stærstu skuldirn- ar upp á von og óvon. Heimskreppan hefur reynd- ar bitnað sérlega hart á bílaiðn- aðinum, ekki aðeins í Bandaríkj- unum heldur víðast hvar þar sem bifreiðar eru búnar til. Í Frakklandi, Þýskalandi og á Ítalíu hafa stjórnvöld beðið átekta en skoðað vandlega hvort grípa þurfi inn í bílaiðnaðinn með veglegri ríkisaðstoð. Í Svíþjóð komu stjórnvöld Saab-verksmiðjunum til bjarg- ar í febrúar, en þar vinna 140 þúsund manns. Saab er reynd- ar í eigu GM, sem ætlar sér að Ár fokdýrra björgunaraðgerða Árið 2009 hefur verið eitt hið erfiðasta í sögu heimsviðskipta og fjármála. Ríki heims hafa þurft að verja ómældri orku, tíma og peningum í glímu sinni við heimskreppuna sem skall á af fullum þunga haustið 2008. Örlítið tók þó að rofa til á árinu. Guðsteinn Bjarnason stiklar á nokkrum helstu fréttum viðskiptalífsins á alþjóðavettvangi árið 2009. BERNARD MADOFF Sjötugi fjárglæfra- maðurinn hlaut þungan dóm fyrir svika- myllu sína, sem kostaði þúsundir manna stórfé. NORDICPHOTOS/AFP ALMENN REIÐI Almenningur víðs vegar um heim hefur notað hvert tækifæri til að mót- mæla misvitrum fjármálaspekingum. NORDICPHOTOS/AFP TEKINN Á BEINIÐ Liddy, framkvæmda- stjóri tryggingafyrirtækisins AIG, var kallað- ur fyrir bandaríska þingnefnd í maí og kraf- inn svara um gjaldþrotið. NORDICPHOTOS/AFP Í Bandaríkjunum er löng hefð fyrir því að seðlabankastjóri gefur aldrei kost á sér í við- tal við fjölmiðla. Ben Bernan- ke, sem tók við af Alan Greens- pan fyrir nærri fjórum árum, sá ástæðu til að gera undantekn- ingu á þessu á árinu. Hann sagðist telja að seðla- bankanum og Bandaríkjastjórn hafi með samhentum aðgerðum tekist að koma í veg fyrir algjört hrun efnahagslífsins. Hann sagði fjármálaheiminn hafa leikið á reiðiskjálfi eftir fall bandaríska fjárfestingabankans Lehman Brothers um miðjan september 2008, engu að síður taldi hann það rétta ákvörðun að hafa ekki komið bankanum til bjargar. Margir hafi talið að markað- urinn myndi leiðrétta sig sjálfur eftir fall banka af þessari stærð- argráðu, en hann taldi sig vita betur: „Það má ekki láta alþjóð- lega virkt fyrirtæki falla í miðri fjármálakreppu,“ sagði Bernan- ke, en mistök voru það samt ekki vegna þess að annar valkostur var ekki fyrir hendi. „Við höfð- um ekkert val, við höfðum engin úrræði. Það eina sem seðlabank- inn getur gert er að lána gegn tryggingu.“ Bernanke spáði því að snemma árs 2010 muni efnahagslífið taka við sér, en forsendur bata eru þær að bankarnir nái að tryggja sér fjármögnun. „Sagan kennir okkur að efna- hagsbati verður ekki viðvar- andi meðan fjármálakerfið er í kreppu,“ sagði hann. „En við erum með áætlun. Við erum að vinna að þessu.“ Fyrir utan forseta Banda- ríkjanna er Bernanke líklega valdamesti maður landsins, að minnsta kosti á sviði viðskipta og efnahags. Hvert orð sem hann segir getur haft veruleg áhrif á þróun markaða og þar með velferð þjóðfélagsins almennt. Sagðist vera með áætlun Í SJÓNVARPSVIÐTALI Fréttamaðurinn Scott Pelley ræðir við Ben Bernanke. LEIÐTOGAR Í VANDA Leiðtogar tuttugu stærstu iðnríkja heims hittust í annað sinn í London í apríl til að leita leiða út úr kreppunni. Á þeim fundi komu þeir sér saman um aðgerðir sem eiga að örva efnahagslífið. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.