Fréttablaðið - 30.12.2009, Qupperneq 40
MARKAÐURINN 30. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR12
E R L E N D U R A N N Á L L
selja þetta sænska dótturfyrir-
tæki sitt til þess að bjarga eigin
starfsemi.
Í nóvember tóku svo Nicolas
Sarkozy Frakklandsforseti og
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari sameiginlega ákvörðun um
að koma bílaiðnaðinum í þessum
tveimur löndum til bjargar.
GJALDÞROT AIG
Gjaldþrot fyrirtækja náðu líklega
hámarki víðast hvar í kreppulönd-
unum á árinu sem er að líða. Í
Bretlandi, til dæmis, urðu nærri
tíu þúsund fyrirtæki gjaldþrota
á fyrri helmingi ársins, sem
er meira en nokkru sinni hefur
þekkst þar í landi, en aðeins var
byrjað að draga úr gjaldþrotum á
þriðja ársfjórðungi.
Í mars vakti bandaríska trygg-
ingafyrirtækið AIG, sem til
skamms tíma var stærsta trygg-
ingafyrirtæki heims, gríðarlega
hneykslun þegar tilkynnt var
að framkvæmdastjórar í fjár-
máladeild fyrirtækisins, ættu að
fá samtals 165 milljarða dala í
kaupaukagreiðslur.
Í byrjun mars höfðu bandarísk
stjórnvöld skýrt frá því að AIG
myndi fá 30 milljarða dala í fjár-
hagsaðstoð frá ríkinu, til viðbót-
ar við þá 150 milljarða dala sem
fyrirtækið hafði þegar fengið.
Daginn eftir skýrði fyrirtækið
svo frá því, að tap þess á fjórða
ársfjórðungi næmi 62 milljörðum
dala, sem var stærsta ársfjórð-
ungstap sögunnar til þess tíma.
OFURBÓNUS
Í ljósi þessa þóttu kaupaukarnir
til framkvæmdastjóranna, sem
stærsta ábyrgð báru á ófarnaði
fyrirtækisins, ótrúleg ósvífni.
Þingmenn brugðust ókvæða
við og Ben Bernanke seðlabanka-
stjóri sagðist hafa orðið ævareið-
ur: „Ég skellti símanum nokkrum
sinnum á þegar ég var að ræða
AIG,“ sagði seðlabankastjórinn.
Barack Obama krafðist þess
að framkvæmdastjórarnir end-
urgreiddu kaupaukana. Aðeins
hluti þeirra hefur orðið við því.
Bandaríkjaþing samþykkti lög
um 90 prósent skatta á kaupauka
í fyrirtækjum sem þegið hafa
meira en fimm milljarða dala í
ríkisaðstoð. Framkvæmdastjór-
ar slíkra fyrirtækja hafa sumir
brugðist við með því að ráða sig
til annarra fyrirtækja, þar sem
þeir sleppa við slíkan skatt.
Ofurkaupaukar framkvæmda-
stjóra hafa einnig verið til um-
ræðu í Evrópulöndum, þar sem
ekki síst Gordon Brown, forsæt-
isráðherra Bretlands, hefur lagt
mikla áherslu á að setja strangar
reglur um kaupaukagreiðslur.
Angela Merkel Þýskalands-
kanslari og Nicolas Sarkozy
Frakklandsforseti tóku í sama
streng og sendu frá sér sameig-
inlega yfirlýsingu þar sem krafist
var gegnsæis í fyrirtækjarekstri
og strangari reglna um kaupauka
fyrir G20-fundinn í september.
MADOFF DÆMDUR
Einn helsti skúrkur kreppunnar,
Bernard Madoff, hlaut makleg
málagjöld í júní þegar dómur
féll í máli hans. Hann hafði haft
nærri 65 milljarða dala af þúsund-
um manna í Bandaríkjunum og var
fyrir vikið dæmdur í samtals 150
ára fangelsi, sem er þyngsti dómur
sem lög leyfðu. Hann á enga mögu-
leika á náðun, sem þýðir í reynd að
um ævilangt fangelsi er að ræða.
Madoff hafði játað sekt sína í mars
og sagðist þá hafa byrjað svika-
starfsemi sína strax árið 1991.
Svikamyllan gekk út á að hann tók
við peningum af fjárfestum, en í
staðinn fyrir að ávaxta féð greiddi
hann þeim arð með peningum sem
aðrir fjárfestar létu hann hafa, en
spilaborgin hrundi þegar kreppan
reið yfir haustið 2008.
Á
rið 2009 einkenndist
öðru fremur af erfiðri
glímu við heimskrepp-
una miklu. Fyrstu raun-
verulegu batamerkin
sáust kannski í ágúst þegar Frakk-
land, Þýskaland og Japan skriðu
út úr samdráttarskeiði og gátu
státað af svolitlum hagvexti.
Aðgerðir til að örva efnahags-
lífið hafa verið forgangsmál hjá
flestum ríkjum, sem dælt hafa
ómældu magni af peningum úr
sjóðum sínum til að halda fyr-
irtækjum á floti. Seðlabankar
Bandaríkjanna, Bretlands, Eng-
lands, Kanada og Evrópusam-
bandsins hafa mestallt árið verið
með stýrivexti í lágmarki, eða á
bilinu 0,25 til 1 prósent.
Í Bandaríkjunum tók Barack
Obama við embætti forseta þann
20. janúar og ítrekaði við það tæki-
færi það sem hann hafði boðað í
kosningabaráttunni, að eitt helsta
forgangsverkefni sitt innanlands
verði að reisa efnahaginn við.
Fáeinum vikum síðar afgreiddi
Bandaríkjaþing björgunarpakka
forsetans, sem fólst í því að dæla
nærri 800 milljörðum dala í
efnahagslífið, meðal annars með
skattalækkunum og auknum vel-
ferðarútgjöldum. Með þessu átti
að koma efnahagslífinu af stað á
ný, í þeirri von að það skríði smám
saman upp úr kreppulægðinni.
LEIÐTOGAFUNDIR
Leiðtogar tuttugu stærstu efna-
hagsvelda heims, G20-ríkjanna,
hafa komið saman reglulega síðan
kreppan hófst til að leita lausna og
stilla saman strengi sína.
Fyrsti fundur þeirra var í Wash-
ington í nóvember 2008, síðan hitt-
ust þeir í apríl síðastliðnum í Lond-
on og loks Pittsburgh í Bandaríkj-
unum í september. Næsti fundur
er á dagskrá í Kanada í júní.
Á nóvemberfundinum í nóv-
ember 2008 voru fyrstu skrefin
tekin, en á aprílfundinum komu
þeir sér saman um 1.100 milljarða
dala fjárveitingu til verkefna, sem
eiga að styrkja alþjóðleg viðskipti
og örva efnahagslífið.
Ágreiningur var nokkur, eins og
við mátti búast. Bandaríkjamenn
og Bretar hefðu viljað ganga
lengra í fjáraustri, en Frakkar og
Þjóðverjar hefðu viljað setja enn
strangari reglur um alþjóðleg við-
skipti og fjármálastarfsemi.
Á septemberfundinum var
ákveðið að G20 hópurinn taki við
af átta ríkja hópnum G8, sem fær
veigaminna hlutverk og einbeitir
sér að öryggismálum. G20-ríkin
verða þá eins konar fastaráð al-
þjóðlegrar efnahagssamvinnu.
Eitt helsta markmið þessa leið-
togaráðs verður að koma í veg
fyrir að annað eins hrun geti
orðið í framtíðinni eins og reið
yfir efnahagslífið haustið 2008.
„Ég held að við áttum okkur öll
á því að við verðum að grípa til að-
gerða áður en fennir yfir minni
okkar um kreppuna og áður en
hvatinn til umbóta dofnar,“ sagði
Timothy Geithner, fjármála-
ráðherra Bandaríkjanna.
BÍLAIÐNAÐURINN
Aðgerðir stjórnvalda hafa þó
engan veginn komið í veg fyrir
gjaldþrot jafnvel nokkurra
stærstu fyrirtækja heims og erf-
iðleika sem þeim hafa fylgt.
Í byrjun júní óskaði GM,
stærsti bílaframleiðandi Banda-
ríkjanna, eftir gjaldþrotaskipt-
um. Þetta taldist fjórða stærsta
gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna,
en stærsta gjaldþrot iðnfyrir-
tækis þar vestra. Rúmum mánuði
síðar reis úr rústum fyrirtækis-
ins nýtt og endurskipulagt fyrir-
tæki, að mestu í ríkiseigu, en tölu-
vert minna en gamla fyrirtækið,
sem tók með sér stærstu skuldirn-
ar upp á von og óvon.
Heimskreppan hefur reynd-
ar bitnað sérlega hart á bílaiðn-
aðinum, ekki aðeins í Bandaríkj-
unum heldur víðast hvar þar sem
bifreiðar eru búnar til.
Í Frakklandi, Þýskalandi og
á Ítalíu hafa stjórnvöld beðið
átekta en skoðað vandlega hvort
grípa þurfi inn í bílaiðnaðinn með
veglegri ríkisaðstoð.
Í Svíþjóð komu stjórnvöld
Saab-verksmiðjunum til bjarg-
ar í febrúar, en þar vinna 140
þúsund manns. Saab er reynd-
ar í eigu GM, sem ætlar sér að
Ár fokdýrra björgunaraðgerða
Árið 2009 hefur verið eitt hið erfiðasta í sögu heimsviðskipta og fjármála. Ríki heims hafa þurft að verja ómældri orku, tíma
og peningum í glímu sinni við heimskreppuna sem skall á af fullum þunga haustið 2008. Örlítið tók þó að rofa til á árinu.
Guðsteinn Bjarnason stiklar á nokkrum helstu fréttum viðskiptalífsins á alþjóðavettvangi árið 2009.
BERNARD MADOFF Sjötugi fjárglæfra-
maðurinn hlaut þungan dóm fyrir svika-
myllu sína, sem kostaði þúsundir manna
stórfé. NORDICPHOTOS/AFP
ALMENN REIÐI Almenningur víðs vegar um heim hefur notað hvert tækifæri til að mót-
mæla misvitrum fjármálaspekingum. NORDICPHOTOS/AFP
TEKINN Á BEINIÐ Liddy, framkvæmda-
stjóri tryggingafyrirtækisins AIG, var kallað-
ur fyrir bandaríska þingnefnd í maí og kraf-
inn svara um gjaldþrotið. NORDICPHOTOS/AFP
Í Bandaríkjunum er löng hefð
fyrir því að seðlabankastjóri
gefur aldrei kost á sér í við-
tal við fjölmiðla. Ben Bernan-
ke, sem tók við af Alan Greens-
pan fyrir nærri fjórum árum, sá
ástæðu til að gera undantekn-
ingu á þessu á árinu.
Hann sagðist telja að seðla-
bankanum og Bandaríkjastjórn
hafi með samhentum aðgerðum
tekist að koma í veg fyrir algjört
hrun efnahagslífsins.
Hann sagði fjármálaheiminn
hafa leikið á reiðiskjálfi eftir fall
bandaríska fjárfestingabankans
Lehman Brothers um miðjan
september 2008, engu að síður
taldi hann það rétta ákvörðun
að hafa ekki komið bankanum
til bjargar.
Margir hafi talið að markað-
urinn myndi leiðrétta sig sjálfur
eftir fall banka af þessari stærð-
argráðu, en hann taldi sig vita
betur: „Það má ekki láta alþjóð-
lega virkt fyrirtæki falla í miðri
fjármálakreppu,“ sagði Bernan-
ke, en mistök voru það samt ekki
vegna þess að annar valkostur
var ekki fyrir hendi. „Við höfð-
um ekkert val, við höfðum engin
úrræði. Það eina sem seðlabank-
inn getur gert er að lána gegn
tryggingu.“
Bernanke spáði því að snemma
árs 2010 muni efnahagslífið taka
við sér, en forsendur bata eru
þær að bankarnir nái að tryggja
sér fjármögnun.
„Sagan kennir okkur að efna-
hagsbati verður ekki viðvar-
andi meðan fjármálakerfið er
í kreppu,“ sagði hann. „En við
erum með áætlun. Við erum að
vinna að þessu.“
Fyrir utan forseta Banda-
ríkjanna er Bernanke líklega
valdamesti maður landsins, að
minnsta kosti á sviði viðskipta
og efnahags. Hvert orð sem hann
segir getur haft veruleg áhrif
á þróun markaða og þar með
velferð þjóðfélagsins almennt.
Sagðist vera með áætlun
Í SJÓNVARPSVIÐTALI Fréttamaðurinn
Scott Pelley ræðir við Ben Bernanke.
LEIÐTOGAR Í VANDA Leiðtogar tuttugu stærstu iðnríkja heims hittust í annað sinn í London í apríl til að leita leiða út úr kreppunni. Á
þeim fundi komu þeir sér saman um aðgerðir sem eiga að örva efnahagslífið. NORDICPHOTOS/AFP