Fréttablaðið - 30.12.2009, Síða 52
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
28 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þetta er allt að koma.
Ég var skapaður til
þessa verks.
Ég var orðinn svo leiður
á því að keyra hring eftir
hring allan daginn!
Hvar er eiginlega
bjórinn minn!!!?
Koma svo,
fá smá
kraft í
þetta!
Nú þarftu
að láta þá
fá bakkus,
bróðir!
Þetta
verður
gaman
Nú er ég
búinn að
finna nýtt orð
ÜBER!
Það er þýskt og
þýðir „mjög“
Maður notar það sem
lýsingarorð og setur það
fyrir framan eitthvað til
að leggja enn meiri
áherslu á
ÜBER svalt
Með smá
heppni gæti
það komið í
staðinn fyrir
„total“
Ég hef
„über“
miklar
efa-
semdir.
Passaðu þig,
Jónas. Þú steigst
næstum því á
risaeðlukúk!
ÜBER flott
Ég er þakklát fyrir
vini mína!
Ég er þakklátur
fyrir foreldra mína!
Ég er þakklátur fyrir
fjölskyldu mína
Ég er þakklát fyrir allt þetta og þá
staðreynd að ég þarf aðeins að
elda svona máltíð einu sinni á ári!
orðið sjálft.
K A K A Á R S I N S 2 0 0 9
Þessi er alveg svakaleg!
Kveðjum árið með köku ársins.
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Í árslok er hefð fyrir því að horfa yfir far-inn veg og gera upp árið.
YFIRLEITT hef ég haft gaman af upprifjun
fjölmiðla af vettvangi þjóðmála. Í ár er svo
komið að mér býður við tilhugsuninni um
að líta um öxl, langar einna helst að setja
undir mig höfuðið og taka á harðasprett inn
í framtíðina og vona að mér takist að hrista
af mér helstu deilumál ársins sem er að líða.
EINS þrúgandi og þetta ár hefur verið, var
það engu að síður merkilega fljótt að líða.
Mér finnst til dæmis eins og það hafi verið
í gær sem ég horfði á eldana loga fyrir
framan Alþingishúsið. Ég stóð við hliðina
á blaðamanni frá Mogganum, sem þáði egg
af ungum rithöfundi og kastaði því í tignar-
legum fleygboga í þinghúsið. Ég hleypti
brúnum. Þegar Moggablaðamenn eru farnir
að kasta eggjum í þinghúsið hefur grund-
vallarbreyting átt sér stað í íslensku sam-
félagi; eitthvað er ekki eins og það er yfir-
leitt og verður það mögulega aldrei aftur.
BÚSÁHALDABYLTINGIN var einn
merkilegasti atburður sem ég orðið
vitni að; afsprengi dómgreindarlausrar
ríkisstjórnar sem þekkti ekki sinn
vitjunartíma og bar enga virðingu
fyrir þörfinni á pólitísku uppgjöri
í kjölfar bankahrunsins. Endalok
hennar voru tímaspursmál
en það voru mótmælin við Austurvöll sem
endanlega komu stjórninni frá.
EFTIRMÁL Búsáhaldabyltingarinnar voru
því miður ekki jafn mikil og góð og margir
bundu vonir við, enda kannski ekki við því
að búast af ósjálfráðu viðbragði sem mót-
mælin voru. Áhrif þeirra voru bundin við að
koma ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar frá völdum.
LENGRA náðu þau ekki, þótt nokkrir
sundurleitir lukkuriddarar hafa reynt að
eigna sér heiðurinn af mótmælunum til að
tryggja sér brautargengi í kosningum.
SEINNI hluta ársins 2009 hefur verið ein
samfelld klasasprengja vonbrigða. Vinnu-
brögðin á þingi hafa mögulega aldrei verið
jafn óþolandi og orð aldrei verið jafn ódýr.
Það þarf hvorki að grafa djúpt né lengi til
að finna áþreifanleg dæmi þess. Í dag eru
sagðar líkur á að Icesave-málið verði loks-
ins til lykta leitt. Þeim mörgu sem vona að
þar með þurfi þeir ekki að heyra neitt af því
í bili verður þó trauðla að ósk sinni.
LEIÐIN til heljar er vörðuð góðum ásetn-
ingi, er stundum sagt. Á nýju ári vona ég
að þessir 63 þingmenn leggi aðeins minni
áherslu á hvað þeir eru velmeinandi, heldur
gefi því meiri gaum hvert þeir eru að fara
með okkur.
Við áramót