Fréttablaðið - 30.12.2009, Page 56
32 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
menning@frettabladid.is
Ath. kl. 22
Til þess að gera upp árið mun hljóm-
sveitin Árstíðir halda tónleika á
Kaffi Rósenberg í kvöld. Flutt verða
lög af fyrstu breiðskífu sveitarinnar,
sem kom út á árinu, ásamt nýju efni
og tökulögum sem orðið hafa á vegi
Árstíðamanna á árinu. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 22 og aðgangseyrir er
þúsund krónur.
Bókmenntir ★★★★
Nokkur almenn orð um kuln-
un sólar
Gyrðir Elíasson
„Orðið lífsbarátta hefur aftur
fengið merkingu“ (98) er næstsíð-
asta ljóð þessarar auðmjúku en
aflgæfu ljóðabókar og eins konar
eftirskrift. Lífsbaráttuna heyja
hér allir á grundvelli jafnréttis:
menn, dýr, landvættir, náttúra,
sól, himintungl, höfuðskepnur –
dýraríkið, jurtaríkið, steinarík-
ið – enginn er þar öðrum fremri
en ábyrgðin er jafnan mannsins
þegar jafnvægið raskast og bar-
daginn tapast. Sem er óumflýj-
anlegt. Yfirskrift baráttunnar er
dauðinn – sem er meginþema bók-
arinnar og leiðarstef: allstaðarná-
lægur og alltumlykjandi. Lífslíkur
eru táldrægur draumur og óend-
anleikinn orðaleppur, jafnvel glap-
sýn. Árstíð bókarinnar er haust-
ið; litur hennar er svartur og grár;
landálfar hennar eru vatn, tré,
fugl og fiskur; hugblær hennar er
einsemd, þunglyndi og þögn; geðs-
lag hennar myrkur, glötun, auðn
og angist.
Allt þetta skyggða bakland
handan við orðin hjá fólki,
með allt aðra merkingu
og steinþögnin sem liggur yfir
Ég henti steini
í svarta tjörn
og steinninn
dó (95).
Engu að síður iðar bókin af lífi
og sköpun – lífsmarki og lífsvilja
skáldskaparins sem grandvar en
reifur mætir fjörtjóni efnis og
holds og blæs því önd í brjóst sem
á samri stundu yfirstígur eiginleg-
ar takmarkanir hins áþreifanlega,
raunásýnd hlutanna. Þar er fólg-
inn galdur þessarar hlédrægu og
orðvöru bókar: hún yfirfærir lög-
mál listarinnar (og þar með ódauð-
leika) á eðlisþætti náttúrunnar
(og „sköpunarverksins“ – bæði í
heiðnum og kristnum skilningi)
og kemst þannig hjá því að vega
að því lífi sem hún vegsamar og
ögra því náttúrulögmáli sem öll
list er annars óhjákvæmilegt andóf
gegn – og krækir um leið framhjá
þeim óyfirstíganlega dauða sem
hún er annars heltekin af: „stígur
yfir pensilfarið“ (93). Ljóðin boða
duft og dauða en eru sjálf vitnis-
burður um hið gagnstæða: „rödd
allra tíma“ (78) og klappa letur sitt
á ævarandi stein. Lífið er örskot,
listin er eilíf: hvort um sig er for-
senda hins (og hvorugt er hégómi)
eins og bókin öll er „hægt og hægt“
(5) til vitnis um og hefur þannig
hausavíxl á eigin málsrökum, hró-
kerar lífi og list og mátar með því
dauðann sem hnígur þá í valinn.
Því þótt ljóðin dragi himnaríkið ef
til vill í efa „halda þau himninum
uppi“ (82) – eru eins konar „líkkist-
ur með gluggum“ (38) með útsýni
til ódáinsakra handan eigin orða.
Tvídans skálds og lesanda er
lipur og öruggur í þessari dimmu
en hugnæmu ljóðabók. Mælandinn
gengur nærri sér og sækir óspart
þraut og óyndi í myrkan veruleika
(höfundar) en lýsir hann jafn-
harðan upp með ljósi skáldskap-
arins til yndis fyrir lesandann.
Og ef grannt er gáð eru frumtákn
og ljóðlist þessarar bókar „nokk-
ur almenn orð“ um hlýnun þeirrar
sólar sem ávallt sigrar svartnætti
hugans og fellir í orði dauðann á
eigin bragði þótt ef til vill sé hann
ósigrandi á borði.
Sigurður Hróarsson
Niðurstaða: Gullvæg og gjöful ljóða-
bók um lífsins stærsta leyndardóm.
Handan við orðin
> Ekki missa af
Næstkomandi sunnudag 3.
janúar lýkur sýningunum
Úrvalið – Íslenskar ljósmyndir
1866-2009 og Hvar er klukk-
an? verk eftir Davíð Örn Hall-
dórsson. Sýningunum hefur
verið vel tekið og aðsókn verið
mjög góð. Nú eru síðustu for-
vöð að sjá sýningarnar og opið
er í Hafnarborg samkvæmt
venju nema það er alltaf lokað
á þriðjudögum og lokað á
gamlársdag og nýársdag.
Fyrsta stórsýning ársins í myndlistar-
heiminum verður sýning á verðlauna-
verkum Carnegie-listaverðlaunanna
í Listasafni Íslands en hún verður
opnuð í Listasafni Íslands hinn 9.
janúar. Sýningin varðar íslenska mynd-
list sérstaklega þetta árið en eins og
kunnugt er var Kristján Guðmunds-
son heiðraður með fyrstu verðlaun-
um í fyrra og skipa verk hans því
heiðurssess á sýningunni. Er hann
fyrsti íslenski myndlistarmaðurinn
sem hlýtur þann heiður. Sænsku
listamennirnir Kristina Jansson
og Felix Gmelin hlutu önnur og
þriðju verðlaun og Daninn Marie
Søndergaard Lolk hlaut styrk
til yngri listamanns. Verðlaun-
in sem eru ein þeirra stærstu
í heimi veitti hennar hátign
Margrét Danadrottning við athöfn
í Kunsthal Charlottenborg í Kaupmannahöfn
í haust. Valnefndin veitti Kristjáni verðlaunin
fyrir spennandi hljóðeinangrandi málverk.
Verkin eru unnin í akríl á dúk sem er felldur
í málmramma og eru þau á sinn sérstæða
hátt snjallt og margslungið myndrænt
framhald á einstæðum rannsóknum
Kristjáns á fagurfræði málverks og
teikninga. Sagði í rökstuðningi: „Á
40 ára ferli hefur Kristján af einurð
boðið hefðunum birginn með
frumlegum rannsóknum sínum á
málverkinu sem miðli og í þess-
um verkum bræðir hann saman
jafn gjörólíkan efnivið sem lit og
þögn.“ Verðlaunin námu einni
milljón sænskra króna.
Verðlaunasýning Carnegie í janúar
Í gær var fyrri sýning af
tveimur á íslenska verk-
inu Ókyrrð í Kassanum og
verður hún aftur á fjölunum
í kvöld. Verkið var frum-
sýnt hinn 27. september
síðastliðinn í Leikhúsbatt-
eríinu í Reykjavík.
Sýningin Ókyrrð er samin af hópn-
um en hann samanstendur af þrem-
ur sviðslistamönnum, Friðgeiri
Einarssyni, Margréti Bjarnadóttur
og Ragnari Ísleifi Bragasyni. Frið-
geir og Ragnar eru báðir útskrif-
aðir úr Fræðum og framkvæmd
frá leiklistardeild Listaháskóla
Íslands, en Margrét er menntað-
ur danshöfundur frá listdansskól-
anum ArtEZ Dansakademie í Arn-
hem. Friðgeir og Margrét komu
bæði fram í sýningunni Húman-
ímal sem frumsýnd var á vordög-
um við góðar undirtektir, en meðal
annarra verka Ragnars eru ljóða-
bókin Á meðan og leikritið Bless-
uð sé minning næturinnar sem
flutt verður í útvarpsleikhúsinu í
vetur.
Í Ókyrrð er leitast við að virkja
hina ýmsu þætti leikhúsmiðils-
ins til að skapa heildstæða stemn-
ingu sem þjónar efniviði verksins.
Verkið verður nú tekið upp á ný og
sýnt í Kassanum. Í sem skemmstu
máli fjallar verkið um hugarangur
og ofvöxt ímyndunaraflsins. Fjall-
að er um óttann sem býr innra með
hverjum og einum og nærist þar
án sýnilegra ógna í heiminum
fyrir utan. Ókyrrð fjallar þannig
um tilfinningar manna og tilraun-
ir þeirra til að hafa stjórn á þeim.
Sýningin var sýnd á Diskurs-leik-
listarhátíðinni í Giessen í Þýska-
landi í október síðastliðnum við
góðar undirtektir.
Um verkið segja aðstandendur:
„Líkamlegur ótti er mönnum eðl-
islægur, rétt eins og öðrum skepn-
um, og gegnir því nauðsynlega
hlutverki að stýra okkur út úr
aðsteðjandi hættum. Erfiðara er að
úrskurða um hagnýtt gildi ýmissa
hugarburða og vitrana sem herja
á okkur, halda fyrir okkur vöku,
en stuðla jafnframt að doða og
fælni við hluti, dýr og annað fólk.
Það er eitthvað sem vofir yfir en
við getum ekki vitað hvað það er.
Ókyrrð fjallar um tilraunir okkar
til að hafa stjórn á tilfinningum,
um innra líf og ofvöxt ímyndunar-
aflsins.“
Leikendur og höfundar Ókyrrð-
ar eru þau Ragnar Ísleifur Braga-
son, Margrét Bjarnadóttir og Frið-
geir Einarsson. Kínetísk ráðgjöf:
Saga Sigurðardóttir. Hljóðmynd:
Kristján Loðmfjörð. Leikstjórn
annast Friðgeir Einarsson.
Síðasta tækifærið sem áhorf-
endum gefst til að sjá þessa sýn-
ingu er í kvöld en endurflutn-
ingur verksins er í samstarfi við
Þjóðleikhúsið þar sem sýningum
í haust var hætt þegar starfsemi
Leikhúsbatterísins var hætt.
pbb@frettabladid.is
Ofvöxtur ímyndunaraflsins
LEIKLIST Ókyrrð í Kassanum í kvöld. MYND AÐSTANDENDUR
TÓNLIST Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson trompetleikarar og Hörð-
ur Áskelsson organisti leika á tónleikum í Hallgrímskirkju á gamlársdag.
Skært lúðrar hljóma
Síðustu tónleikar ársins hér á
Íslandi verða í Hallgrímskirkju
á gamlársdag, 31. desember, kl.
17. Það verður í sautjánda sinn
að Listvinafélagið býður til
þessa tónleika og þeir félagar,
trompetleikararnir Ásgeir H.
Steingrímsson og Eiríkur Örn
Pálsson og orgelleikarinn Hörð-
ur Áskelsson, kunna svo sann-
arlega að kveðja gamla árið og
fagna því nýja með viðeigandi
lúðraþyt og orgelleik.
Efnisskrá tónleikanna að
þessu sinni er að flestu leyti
hefðbundin. Fluttar verðar tvær
sónatínur eftir Johann Pezel,
borgarlúðraþeytara Leipzig-
borgar, og Konsert fyrir tvo
trompeta og orgel eftir Johann
Melchior Molter en hann starf-
aði mest í Suður-Þýskalandi, í
Eisenach og síðar í Karlsruhe.
Hið fræga Adagio eftir Giaz-
otto og Albinoni þar sem tromp-
etarnir leika aðalröddina er
fast á efnisskrá tónleikanna og
hin þekkta Tokkata og fúga í d-
moll eftir J.S. Bach hefur líka
heyrst oft á Hátíðarhljómum.
Fyrsta verk tónleikanna er þó
nýtt af nálinni. Giubilante, nýtt
verk Áskels Mássonar, verð-
ur frumflutt. Þetta er verk
sem Áskell hefur skrifað fyrir
Trompeteríuna.
Samstarf Ásgeirs, Eiríks
Arnar og Harðar hófst árið
1993 en auk Hátíðarhljóma við
áramót hafa þeir myndað tríó-
ið Trompetería sem hefur komið
fram á tónleikum bæði hérlend-
is og erlendis. Þá leika þeir
Ásgeir og Eiríkur oft með Herði
við ýmsar athafnir í kirkjunni.
Þeir leika yfirraddir við uppá-
haldssálmana okkar, yfirradd-
ir sem oftar en ekki verða
til með penna Harðar vegna
tilefnisins.
Félagarnir þrír eru löngu
orðnir landsþekktir tónlistar-
menn. Ásgeir og Eiríkur leika
báðir með Sinfóníuhljómsveit
Íslands auk þess að vera virk-
ir í tónlistarlífinu almennt,
meðal annars með Hljómsveit
Íslensku óperunnar, Kamm-
ersveit Reykjavíkur og Caput-
hópnum. Þá hafa þeir leikið
einleik bæði með Sinfóníuhljóm-
sveitinni og Kammersveitinni.
Þeir hófu báðir tónlistarnám sitt
hér á Íslandi en stunduðu fram-
haldsnám vestanhafs, Ásgeir í
New York en Eiríkur í Boston og
svo í Los Angeles.
Eftir að hafa verið í fram-
haldsnámi í orgelleik í Þýska-
landi var Hörður árið 1982
ráðinn organisti og kantor Hall-
grímskirkju þar sem hann hefur
starfað síðan. Hann stjórnar
Mótettukór Hallgrímskirkju og
kammerkórnum Schola cant-
orum og er listrænn stjórn-
andi Listvinafélags Hallgríms-
kirkju og Kirkjulistahátíðar. Þá
er Hörður einnig söngmálastjóri
Þjóðkirkjunnar. Hörður hefur
margoft hlotið viðurkenningar
vegna starfa sinna; var Borg-
arlistamaður Reykjavíkur árið
2002, var sæmdur hinni íslensku
fálkaorðu 2004 og hlaut íslensku
bjartsýnisverðlaunin árið 2006.
Forsala aðgöngumiða er í
Hallgrímskirkju og er hún opin
kl. 9-17.
pbb@frettabladid.is
MYNDLIST Kristján Guðmundsson
myndlistarmaður