Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.12.2009, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 30.12.2009, Qupperneq 60
36 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR folk@frettabladid.is Andi Rúnars Júlíussonar mun svífa yfir vötnum á Akranesi í kvöld þegar hið árlega blúskvöld verður haldið. „Forsagan er sú að Rúnar og Tryggvi Hübner voru að spila á Hótel Akranesi fyrir langa löngu. Ég hitti þá í pásunni og stakk upp á að þeir fyndu sér tvo menn og gerðu þetta að árleg- um viðburði. Það gekk eftir,“ segir Tómas R. Andrésson, aðal- hvatamaður tónleikanna. Rúnar og Tryggvi bættu við Birgi Bald- urssyni trommara og Eðvarð Lárussyni gítarleikara og band- ið var kallað Blúsboltarnir. Það blúsaði svo tuttugu sinnum í röð með Rúnar innanborðs, alltaf 30. desember ár hvert. Haldið var áfram að blúsa í fyrra þótt Rúnar væri fjarverandi og enn blúsa Blúsboltarnir í kvöld. „Í fyrra var Andrea Gylfa með strákunum en nú kemur Pálmi Gunnarsson inn svo það má búast við að efni honum tengt heyrist, til að mynda blúsað efni Mannakorna og eitthvað með Friðryki,“ segir Tómas spenntur. Tónleikarnir fara fram í Kaup- félaginu (áður Barbro) og upp- hitun verður í höndum ungra tónlistarmanna frá Skagan- um, að mestu úr hljómsveit- inni Ferlegheit. „Það kostar þúsund kall inn eins og er búið að gera í öll hin skiptin,“ segir Tómas. „Rúnar var vanur að segja að við tækjum ekki þátt í verðbólgunni.“ - drg Pálmi með Blúsboltum uppá Skaga BOLTARNIR BLÚSA Í 22. SKIPTI Í KVÖLD Pálmi Gunnarsson verður í stað Rúna Júl. Mamma Gógó er fyrsta leikna kvik- mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar í sex ár. Hún fer í almennar sýningar á nýársdag og fjallar um Gógó, fullorðna konu sem greinist með Alzheimer-sjúkdóminn. „Það er lukka yfir þessum degi,“ segir leik- stjórinn Friðrik Þór Friðriksson um frum- sýningardaginn. Síðasta mynd hans sem var frumsýnd á nýársdag, Englar alheimsins, náði gríðarlegum vinsældum og vonast hann að sjálfsögðu til að sagan endurtaki sig á nýju ári. Mamma Gógó fjallar á grátbroslegan hátt um fullorðna konu sem greinist með Alzheimer-sjúkdóminn og fer Kristbjörg Kjeld með hlutverk hennar. Á sama tíma og Gógó berst við sjúkdóminn er sonur hennar, sem Hilmir Snær Guðnason leikur, í fjárhags- kröggum vegna nýjustu kvikmyndar sinnar, Börn náttúrunnar, sem fær mjög dræma aðsókn. Mamma Gógó er að einhverju leyti byggð á ævi Friðriks Þórs, sem á sjálfur 95 ára móður sem hefur verið með Alzheimer í mörg ár. „Ég læt myndina gerast á óræðum tíma. Hún hefst á frumsýningu á Börnum náttúrunnar eins og hún sé að gerast í dag,“ segir Friðrik. „Ég blanda saman ýmsum málum úr íslensku samfélagi, peningasjóð- um og svona dóti, og set þetta allt í einn hrærigraut. Ég vona bara að fólk hafi gaman af þessari mynd. Það er ekkert gaman að gera myndir sem fólk hefur ekki gaman af,“ segir hann og hlær. Friðrik hóf undirbúning myndarinnar fyrir tveimur árum en tökur hófust í febrúar á þessu ári. Valinkunnt fólk kom að gerð hennar, þar á meðal kvikmyndatöku- maðurinn Ari Kristinsson sem síðast vann með Friðriki við Djöflaeyjuna. „Það er alveg rosalega falleg vinna sem hann skilar frá sér eins og reyndar allir. Þetta er fallegasta kvikmyndin sem hefur verið sýnd lengi hérna á Íslandi,“ staðhæfir Friðrik. Gunnar Eyjólfsson leikur stórt hlutverk í myndinni og segist Friðrik vera mjög ánægður með samstarfið við hann og Kristbjörgu. „Það var alveg sérstaklega ljúft að vinna með þeim. Þau eru bæði toppleikarar og svo er þetta svo skemmtilegt fólk sem hefur góða nærveru.“ Mamma Gógó kostaði um tvö hundruð milljónir króna í framleiðslu. Helmingur þeirrar upphæðar var fenginn að utan og telur Friðrik það sýna svart á hvítu hversu óheppi- leg ákvörðun það sé hjá íslenskum stjórn- völdum að skera niður í kvikmyndagerð. „Þú færð hundrað milljónir inn í landið og það er ekki byrjað að selja myndina. Ég er viss um að þessari mynd á eftir að ganga vel erlendis. Hún fer líklega í sömu fótspor og eldri mynd- irnar mínar og verður eflaust sýnd í þrjátíu til fjörutíu löndum. Stjórnvöld eru bara að skjóta sig í fótinn. Það koma bara hundrað atvinnu- lausir kvikmyndagerðarmenn á markaðinn og túrisminn verður minni.“ En jafnast Mamma Gógó á við bestu myndir Friðriks? „Hún er á meðal minna bestu. Ég held ég geti hiklaust fullyrt það.“ freyr@frettabladid.is Fallegasta kvikmyndin í langan tíma Mamma Gógó (2010) Niceland (2004) Fálkar (2002) Englar alheimsins (2000) Djöflaeyjan (1996) Cold Fever (1995) Bíódagar (1994) Börn náttúrunnar (1991) Skytturnar (1987) HELSTU MYNDIR FRIÐRIKS MEÐAL MINNA BESTU Friðriks Þór hefur mikla trú á nýjustu myndinni sinni, Mömmu Gógó, og telur hana hiklaust vera meðal sinna bestu verka. Er þó af nægu að taka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ofurfyrirsætan Tyra Banks hefur ákveðið að hætta með spjallþátt sinn The Tyra Show og ætlar þess í stað að snúa sér að kvikmyndaiðn- aðinum. Fyrirsætan ætlar að eigin sögn að einbeita sér að því að fram- leiða kvikmyndir sem munu veita konum innblástur. „Þetta verður síðasta árið sem The Tyra Show er í loftinu. Ég hef haft gaman af því að birtast ykkur á skjánum síðustu fimm árin. Næsta skref mitt mun veita mér tækifæri til að ná augum enn fleiri kvenna og stúlkna og mun ég enn hjálpa ykkur við að finna ykkar innri töffara.“ sagði í tilkynningu frá fyrirsætunni. Tyra hættir í sjónvarpi HÆTT AÐ SPJALLA Tyra Banks ætlar að snúa sér að kvikmyndaframleiðslu. Leikarinn Charlie Sheen þurfti að dúsa í fangaklefa á jóladag eftir að eiginkona hans, Brooke Mueller, kærði hann fyrir líkamsárás. Lögreglan mætti á heimili þeirra hjóna eftir að Mueller hringdi í Neyðarlínuna og tilkynnti að Sheen hefði hótað henni lífláti og otað að henni hnífi. Hjónin voru bæði drukkin þegar atvikið átti sér stað. Heimildir herma að Sheen hafi ráðist á konu sína eftir að hún hótaði honum skilnaði. „Brooke sagði Charlie að hún vildi skilnað. Hún sagðist ætla að fara frá honum fyrir fullt og allt,“ var haft eftir heimildarmanni. Eiginkonan vildi skilnað Leikarinn Hugh Grant vill sér frí frá glysinu í Hollywood og gefa út skáldsögu. „Ég hef alltaf sagt það við sjálfan mig að um leið og þú hefur leikið í nokkrum ágæt- um myndum og þénað dálítinn pening geturðu loksins gefið út skáldsöguna þína,“ sagði Grant í viðtali við þýska blaðið Bild. Grant, sem verður fimmtugur á næsta ári, er hálfnaður með sög- una en hefur ekkert samið undan- farið ár. „Ég veit ekki hvort það er vegna leti eða af ótta við mis- tök.“ Hann segir að togstreita myndist þegar hann fær gott handrit í hendurnar. „Ég spyr mig hvort ég ætti ekki frekar að leika í mynd, þéna pening eða vinna með fallegum konum.“ Vill gefa út skáldsögu HUGH GRANT Leikarinn Hugh Grant er hálfnaður með sína fyrstu skáldsögu. NORDICPHOTOS/GETTY HÓTAÐI KONU SINNI Charlie Sheen hótaði eiginkonu sinni á jóladag. > BÆTIR ÍMYNDINA Rapparinn Kanye West hefur átt stormasamt ár og beið ímynd hans nokkurn hnekki í kjölfarið. Hann hefur því ákveðið að lappa upp á ímyndina og hann og kærasta hans, Amber Rose, eyddu jólunum í súpueldhúsi í Los Angeles þar sem þau unnu sjálfboðavinnu. 44 réttur 33 cl psí dós alltaf í leiðinni! ÓDÝRT ALLA DAGA! 19 og PePepsídós fylgir frítt m eð 33 cl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.