Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 61

Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 61
MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 Veiðistangir á hálfvirði Veiðihjól á hálfvirði Vöðlur á hálfvirði Veiðijakkar á hálfvirði Línur á hálfvirði Byssur á hálfvirði Útivistarfatnaður á hálfvirði Kayakar á hálfvirði Ótrúlega útsalan Bara í dag og bara í gær Þetta er eina sanna útsalan sem allir eru alltaf að tala um Ætlar þú að missa af henni aftur? Opið 10 til 18 í dag Sportbúðin Krókhálsi 5 Engin málamiðlun í gæðum Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni. Rannsóknir staðfesta árangur - www.celsus.is Eykur styrk og þol vöðva Betri árangur! Vöðvabólga og stirðleiki Byltingarkennt andoxunarefni !! Lagar fljótt vöðvabólgu, stirðleika, eymsli, harðsperrur og sinaskeiðabólgu.  Gefur aukna mýkt og vellíðan. Eykur styrk og þol vöðva. Greinilegur  árangur við  líkamsrækt, álagsvinnu og ferðalög. Íþróttafólk og sjúkraþjálfarar mæla með AstaZan AstaZan styrkir einnig húðina sem verður  fallegri og fyrr brún í sól eða ljósabekk. 1 hylk i á dag . Virkar strax! Tónlist ★★★ Tregagás Ragnheiður Gröndal Nýir fletir fundnir Á nýjustu geislaplötu sinni leitar Ragnheiður Gröndal fanga í hinu stórmerkilega þjóðlagasafni séra Bjarna Þorsteinssonar sem fyrst kom út upp úr aldamótunum 1900. Söngkonan hefur fengið þungavigtarmenn í lið með sér, þá Hauk Gröndal, Guðmund Pétursson, Birgi Baldursson og Matthías M.D. Hemstock, og saman hefur þetta öfluga kombó útsett lög og stuðst við lagastúfa úr bók Bjarna en aðlagað hljóma, hryn og fleira að sínum hugmyndum, eins og segir í upplýsingatexta. Hugmyndin er ágæt og útkoman skemmtileg. Ragnheiður, sem hefur fyrir löngu sannað sig sem ein af allra bestu söngkonum landsins, sýnir hér flestar sínar bestu hliðar og kemur líka á óvart á köflum. Til að mynda minnir sterk raddbeiting hennar í upphafslaginu Ei er andvakan góð lítt á nokkuð sem áður hefur heyrst frá Ragnheiði á opinberum vettvangi. Raunar verða þau tilvik þar sem tilfinningunni er gefinn laus taumurinn og gefið í hljóðfæraleikinn að teljast eftirminnilegust, eins og lögin Að bíða þess sem búið er og hið skemmtilega stigvaxandi Öll náttúran enn fer að deyja (eitt best heppnaða lag plötunnar) eru góð dæmi um. Á einstaka stað ber kappið fegurðina ofurliði og hentar rödd Ragnheiðar tæpast nægilega vel, sérstaklega í syrpunni Ég að öllum háska hlæ – Stundum þungbær þögnin er – Húmar að mitt hinsta kvöld. Slíkt er þó sjaldgæft. Aðrar útsetningar kalla á að söngkonan beri á borð sína ljúfu og auð- þekkjanlegu rödd og gerir hún það oftast nánast óaðfinnanlega, eins og heyra má í hinum fallegu Sofðu ætíð sætan dúr, Og þótt enginn gráti og Verndi þig englar. Nú glæðast lífsins gæði er ærslafullt og fínt, en Tvenn er tíðin daga og nátta öllu nær því að vera svæfandi. Í lokin tæklar Ragnheiður Vísur Vatnsenda-Rósu í þriðja sinn og megnar enn að finna nýja fleti á snilldinni. Téðar útsetningar leiða hlustandann í huganum vítt og breitt um álfuna og allur hljóðfæraleikur er fagmannlegur og flottur. Í heildina er því um gott framtak að ræða og afraksturinn eins áheyrilegur og Ragnheiður á vanda til. Forvitnilegt verður að sjá hvort þjóðlagaarfurinn fylgir söngkonunni inn í næstu plötu með frumsömdu efni, en þá er næsta víst að von er á góðu. Kjartan Guðmundsson Niðurstaða: Söngkonan hæfileikaríka leikur sér skemmtilega að þjóðlaga- arfinum. Vel heppnuð plata.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.