Fréttablaðið - 30.01.2010, Side 2
2 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
Steingrímur, fórstu að orga
þegar þú vannst?
„Nei, ég tók í orgelið í staðinn.“
Steingrímur Þórhallsson, organisti í
Neskirkju, sigraði í dægurlagakeppni á
netinu á dögunum og fékk heilt bretti af
tónlistargræjum í sigurlaun.
DÓMSMÁL Fimm Litháar sem eru
nú fyrir Héraðsdómi Reykjaness
vegna mansalsmálsins svonefnda
á Suðurnesjum, skulu sæta
áframhaldandi gæsluvarðhaldi
þar til dómur fellur í máli þeirra.
Hæstiréttur staðfesti þann
úrskurð Héraðsdóms Reykjaness.
Mennirnir eru taldir hafa beitt
nítján ára litháíska stúlku nauð-
ung, svipt hana frelsi og ætlað að
notfæra sér hana kynferðislega.
Talið er að mennirnir muni
reyna að sleppa úr landi verði
þeir látnir lausir. Greiningardeild
ríkislögreglustjóra telur suma
þeirra tengjast glæpasamtökum
í Litháen. Stúlkunni sé veruleg
hætta búin verði þeir látnir laus-
ir. - jss
Hæstiréttur staðfestir úrskurð:
Mansalsmenn
áfram inni
MANSALSMENN FYRIR DÓMI Mennirnir
eru nú fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
VIÐSKIPTI Heildarkostnaður við
rekstur slitastjórna og skila-
nefndir Glitnis, Kaupþings og
Landsbankans nam 19,8 millj-
örðum króna á síðasta ári, sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins. Kostnaðurinn er mestur hjá
slitastjórn og skilanefnd Lands-
bankans, en heildarkostnaður
þeirra nam 15,3 milljörðum króna
á síðasta ári. Lægstur var kostn-
aðurinn við uppgjör á þrotabúi
Kaupþings. Uppgjör Glitnis nær
aðeins til loka nóvember í fyrra.
Kostnaðurinn var undir áætlun
að öllu leyti ef frá er talinn sér-
fræðikostnaðurinn, sem reyndist
um 38 prósentum yfir áætlun.
Sérfræðikostnaður vegur jafn-
framt þyngst í uppgjöri á rekstr-
arkostnaði slitastjórna og skila-
nefnda hinna bankanna, eða
rétt tæplega helmingur af öllum
útgjöldum þeirra. Einungis er
gerður greinarmunur á innlend-
um og erlendum sérfræðikostnaði
í uppgjöri Kaupþings, sem kynnt
var kröfuhöfum bankans á fundi
á Nordica Hotel í gær.
Hjá Kaupþingi nam innlendi
sérfræðikostnaðurinn í heildina
rúmum 3,2 milljörðum króna,
þar af hljóp sá erlendi á rúmum
2,3 milljörðum króna. Sérfræði-
kostnaður Landsbankans nam
á móti tæpum 4,4 milljörðum
króna.
Annar kostnaður skilanefnda
og slitastjórna föllnu bankanna
fellur undir endurskoðun á reikn-
ingum, kostnað við rekstur tölvu-
kerfa auk þóknana til nýju bank-
anna fyrir afnot af rými, tækjum
og starfsfólki.
Á kröfuhafafundi Kaupþings í
gær kom fram að rekstrarkostn-
aður slitastjórnar og skilanefndar
bankans var 0,24 prósent af heild-
areignum þrotabúsins, sem þar
voru í stýringu í fyrra og rétt rúm-
lega hálft prósent af nettóeignum
búsins um mitt síðasta ár.
Rekstrarkostnaður slitastjórna
og skilanefnda bankanna dregst
frá kröfum í bú gömlu bank-
anna. Á meðal umsvifamikilla
kröfuhafa þeirra eru Seðlabanki
Íslands, lífeyrissjóðirnir og nýju
bankarnir ásamt fleiri aðilum,
innlendum og erlendum.
jonab@frettabladid.is
Í DYRAGÆTTINNI Rekstrarkostnaður slitastjórnar og skilanefndar gamla Landsbank-
ans nam 11,5 milljörðum króna á síðasta ári.
Uppgjörið kostaði
tuttugu milljarða
Heildarkostnaður slitastjórna og skilanefnda föllnu bankanna þriggja hljóp á
milljörðum á síðasta ári. Sérfræðikostnaður vegur þyngst í bókum þeirra allra.
Kröfuhafar, þar á meðal Seðlabankinn og lífeyrissjóðir, greiða kostnaðinn.
HEILDARKOSTNAÐUR
Liður Glitnir* Kaupþing LAIS
Laun 699 537 3.487
Þóknanir 609 - -
Sérfræðikostn. 2.791 3.225 4.364
Annar kostn. 78 324 3.681
Samtals 4.177 4.086 11.532
* Upplýsingar ná til 30.11. 2009
NÁTTÚRA Ef tegundagreining
áhafnarinnar á Brynjólfi VE reyn-
ist rétt þá var lifandi dílamjóri í
afla togarans eftir síðustu veiði-
ferð sem lauk í gær. Það er einn-
ig óvenjulegt að aflanum er ætlað
langlífi.
Þessi óvenjulega veiði kemur til
af samstarfsverkefni Sæheima og
áhafnarinnar um borð í Brynjólfi
VE. Þeir flytja lifandi fiska í land
sem verða svo til sýnis í Fiska- og
náttúrugripasafni Vestmanna-
eyja. Tveir sérhannaðir tankar
frá Sæplasti á Dalvík voru keyptir
til að flytja lifandi fiska í land og
annar þeirra er nú um borð í skip-
inu. Tönkunum er ætlað að auðga
tegundasamsetninguna í fiska-
safninu. „Við vonumst til þess að
fá fleiri spennandi tegundir inn á
safnið til okkar með þessum tönk-
um og hvetjum sjómenn og útgerð-
armenn að hafa samband ef þeir
eru á leið á mið þar sem óvenju-
legar tegundir fiska eru líkleg-
ar til að veiðast,“ sagði Páll Mar-
vin Jónsson, framkvæmdastjóri
Þekkingaseturs Vestmannaeyja,
sem er með Sæheima og Fiska- og
Náttúrugripasafn Vestmannaeyja
á sinni könnu, í viðtali við Eyja-
fréttir.
Fiska- og náttúrugripasafnið
hefur allt frá stofnun árið 1964
verið rekið í litlu húsi en á árinu
verður safnið fært um set í mun
stærra og betra húsnæði. - shá
Óvenjuleg aflasamsetning togarans Brynjólfs frá Vestmannaeyjum:
Dílamjóra landað í Eyjum
DÍLAMJÓRI Flutningurinn virðist ekkert hafa dregið úr þrótti dílamjórans.
FÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
ALÞINGI Magnús Stefánsson, fyrr-
verandi félagsmálaráðherra, var
kosinn í stjórn Ríkisútvarpsins
ohf. á Alþingi í gær.
Magnús er eini nýliðinn í
stjórninni sem kosinn var til
næstu fimm ára. Þar sitja áfram
Margrét Frímannsdóttir, Svan-
hildur Kaaber, Ari Skúlason og
Kristín Edwald. - pg
Kosið í stjórn RÚV:
Magnús Stef-
ánsson nýr inn
SÝRLAND, AP Khaled Mazhaal, leið-
togi Hamas-samtakanna á Sýr-
landi, segir að Ísraelar hafi ráðið
af dögum Mahmoud al-Mabhouh,
háttsettan leiðtoga hreyfing-
arinnar og einn af stofnendum
hernaðararms hennar.
Hann segir að al-Mahbouh
hafi verið tekinn af lífi á hótel-
herbergi í Dúbaí í síðustu viku.
Stjórnvöld í Dúbaí staðfesta að
hann hafi fundist látinn á hótel-
herbergi hinn 20. janúar, daginn
eftir að hann kom til landsins.
Mazhal segir að Hamas muni
hefna fyrir dauða al-Mahbouhs.
- gb
Leiðtogi Hamas í Sýrlandi:
Sakar Ísraela
um hótelmorð
Illa skipulagt hjálparstarf
Bernard Kouchner, utanríkisráðherra
Frakklands, sagði í gær að hjálp-
arstarfið á Haítí hafi gengið hægt
og hefði mátt vera betur skipulagt.
Kouchner er læknir og tók á sínum
tíma þátt í að stofna hjálparsamtökin
Læknar án landamæra.
FRAKKLAND
DANMÖRK Lögreglan í Danmörku
handtók í gær karlmann á miðj-
um aldri sem talinn er hafa
orðið tveimur börnum sínum að
bana.
Móðir barnanna, sem voru níu
og þrettán ára gömul, kom að
þeim látnum stuttu eftir hádegi
í gær á heimili þeirra í Køge,
sem er lítið bæjarfélag skammt
frá Kaupmannahöfn.
Maðurinn fannst með alvar-
lega áverka og var fluttur á
sjúkrahús, en krafist verður
gæsluvarðhalds yfir honum.
Talið er að hann hafi ætlað að
ráða sjálfan sig af dögum.
- gb
Harmleikur í Danmörku:
Móðir fann tvö
börn sín myrt
ICESAVE Engin ákvörðun var tekin
á fundi Steingríms J. Sigfússon-
ar, Bjarna Benediktssonar og Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar
með Bretum og Hollendingum í
Haag í gær.
Á fundinum var samkvæmt
heimildum blaðsins einkum rætt
um vaxtakjör og endurskoðun-
arákvæði samningsins. Í til-
kynningu frá fjármálaráðuneyt-
inu segir að aðilar muni nú meta
stöðuna en á þessu stigi hafi ekki
verið tekin ákvörðun um frek-
ari fundi. Með í för voru einn-
ig þeir Indriði H. Þorláksson og
Guðmundur Árnason, ráðuneytis-
stjóri fjármálaráðuneytisins. - gb
Fundað um Icesave í Haag:
Ekkert ákveðið
um framhaldið
ÖRYGGISMÁL Varðskipið Ægir kom til hafnar í
Reykjavík á þriðjudag eftir að hafa verið við eftir-
lit og löggæslu á Íslandsmiðum frá 7. janúar. Varð-
skipsmenn fóru til eftirlits í tuttugu og tvö skip og
báta þar sem farið var yfir veiðarfæri, afla og rétt-
indi áhafna. Mælingar á afla voru undir viðmið-
unarmörkum í sex bátum sem leiddi til fjögurra
skyndilokana.
Í ferðinni var skipt um öldumælidufl út af Kögri.
Vel gekk að skipta um duflið þrátt fyrir óhagstætt
veður. Siglt var að Seley, sem er um 2,5 sjómílur
frá mynni Reyðarfjarðar, og skipt um stefnunema
í sjálfvirkri veðurstöð við vitann í eynni en veður-
stöðin er rekin af Siglingastofnun.
Ýmsar æfingar og þjálfanir fóru fram á þeim tut-
tugu dögum sem úthaldið varði, til dæmis nætur- og
dagæfingar með þyrlum Landhelgisgæslunnar þar
sem gerðar voru hífingar af skipi, úr björgunarbát
og sjó. Þá var elsneytistaka þyrlu á flugi æft. Verk-
leg æfing í að yfirgefa skip, auk reykköfunar- og
slökkviæfingar fór fram um borð í bát sem var við
bryggju á Eskifirði. - shá
Varðskipið Ægir sinnti margvíslegum verkefnum í tuttugu daga úthaldi:
Eftirlit í 22 skipum og bátum
VARÐSKIPIÐ ÆGIR Landhelgisgæslan
nýtti ferð skipsins til fjölbreyttra æfinga.
M
YN
D
/LH
G
SPURNING DAGSINS