Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 64
36 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR „Þegar ég var um tvítugt sá ég svil- konu mína sauma altarisklæði eftir fornri fyrirmynd og fékk áhuga á út- saumi sem hefur enst mér síðan,“ segir Guðrún Guðmundsdóttir. „Ég saumaði fyrsta stóra veggteppið þegar ég var milli tvítugs og þrítugs og teiknaði upp mynstrin eftir litlum myndum í Flat- eyjarbók. Þá strax var ég orðin veik fyrir þessu gamla. Ég vildi gera eitt- hvað sem væri hluti af okkar arfi.“ Guðrún verður áttræð á þessu ári og á fleiri handgerð saumspor að baki en gerist og gengur. Tuttugu stór vegg- teppi eru á sýningu sem opnuð verð- ur í dag í Bogasal Þjóðminjasafnsins og ber yfirskriftina Ævispor. Einnig kemur út bók með sama nafni. Þó búið sé að flytja 20 verk í Bogasal- inn eru enn flestir veggir fullir heima hjá Guðrúnu. Stólar heimilisins eru einnig þaktir útsaumi, svo og skamm- el og púðar. „Mín lífsfylling felst í að vera innan um eitthvað fallegt sem ég get horft á. Ég er eiginlega safngrip- ur,“ segir hún og bætir við hlæjandi: „Ætli ég verði ekki sett á Þjóðminja- safnið?“ Verk Guðrúnar eru tilkomumikil og full af táknum, flest saumuð með krosssaumi og andlit og annað fínlegt með perluspori. Hún hefur sett saman mynstrin úr handritum, fornum klæð- um og fyrirmyndum úr ýmsum áttum en Teiknibókin íslenska úr Árnasafni hefur reynst henni drjúg uppspretta. Þar eru myndir ólitaðar en hún hefur stækkað mynstrin upp og teiknað það sem á hefur vantað, breytt ýmsu og raðað saman litum. Textar eru saum- aðir í sum teppin, svo sem erindi úr Sólarljóðum Eddukvæða og Lilju Ey- steins. Guðrún ólst upp suður með sjó, nánar tiltekið í Garðinum. Foreldrarnir voru Guðmundur F. Eiríksson, útvegsbóndi í Garðhúsum, og Jenný K. Júlíusdótt- ir húsfreyja. „Kennarinn minn í Garð- inum áttaði sig á að ég hefði áhuga á handmennt, hann sótti um fyrir mig í Handíða-og myndlistarskólanum þegar ég var sautján ára en ég komst ekki að nema í kvöldtíma. Svo lærði ég líka að taka mál og sníða föt í prívatkennslu,“ segir hún og telur þá kunnáttu hafa nýst sér vel þegar hún fór að sauma á börnin. Þau urðu fjögur en faðir þeirra, Guðmundur K. Elísson stórkaupmaður í Þórði Sveinssyni & Co., féll frá 1963. „Börnin voru lítil þá en ég var svo láns- söm að geta hugsað um þau sjálf enda er ég nísk á börn. Síðar hafa barna- börnin verið hjá mér í pössun.“ Ættfræðin er annað áhugamál Guð- rúnar og hún elskar að grúska í göml- um kirkjubókum. „Fólk er spennt yfir krossgátum en að leita uppi fólk sem hefur lifað og verið til tekur flestu öðru fram,“ segir hún brosandi. Hún hefur saumað ættrakningar í sumar veggmyndirnar en hvað hyggst hún gera við öll þessi listaverk? „Það hef ég ekki hugmynd um. Ég hélt sýningu í tilefni af 100 ára afmæli Garðs 2008. Annars hef ég aldrei tranað mér fram nema stundum látið gera jólakort eftir nýjasta teppinu og sent til ættingja og vina.“ gun@frettabladid.is Hitler var útnefndur kanslari Þýskalands þennan dag árið 1933. Sá sem það gerði var Hindenburg, forseti Þýskalands. Hann dó ári síðar og eftir fráfall hans tók Hitler sér titil kansl- ara og foringja og var í reynd orðinn einræðisherra í Þýska- landi. Honum tókst að koma sér í pólitíska dýrðlingatölu hjá þjóð sinni á undra skömm- um tíma og þar sem Þjóðverjar áttu harma að hefna eftir fyrri heimsstyrjöldina náði Hitler að æsa upp múginn gegn öðrum þjóðum í kringum sig. Á valda- tíma sínum leiddi hann því Þýskaland út í stríð við flesta nágranna sína og fékk umheim- inn til að skjálfa á beinunum af ótta. Allar tilfinningar Hitl- ers beindust að einu takmarki: „Þýskaland öllum ofar.“ Með innrás Þjóðverja í Pól- land 1939 hófst seinni heims- styrjöldin en henni lauk með ósigri þeirra sex árum síðar. ÞETTA GERÐIST: 30. JANÚAR 1933 Hitler kemst til valda GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR: OPNAR ÚTSAUMSSÝNINGUNA ÆVISPOR Ég er eiginlega safngripur LISTAKONA Guðrún við útsaumsmynd af Maríu mey sem breiðir úr skikkju fyrirgefningar yfir Ragnheiði Brynjólfsdóttur og Daða Halldórsson. Í skikkjunni eru erindi úr ljóði eftir Daða. Meðfram er mynstur úr stólu Jóns Arasonar Hólabiskups. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BJÖRG C. ÞORLÁKSSON VAR FÆDD ÞENNAN DAG. „Um eilífð varir ekkert hret.“ Björg (1874-1934) var fræði- maður, rithöfundur, ljóðskáld, þýðandi og fyrsta íslenska konan til að ljúka doktors- prófi. Hún fékk ekki að læra til stúdentsprófs í Lærða skól- anum en nam öll sín fræði er- lendis. timamot@frettabladid.is Innilegar þakkir til allra sem heiðruðu minningu föður okkar, Gunnlaugs Finnssonar Hvilft í Önundarfirði, og sýndu okkur samhug og hlýju við fráfall hans. Aðstandendur. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Elskulegur frændi okkar, Ólafur Jón Jónsson fyrrverandi verslunarmaður, áður Eskihlíð 18a, andaðist 23. janúar sl. á deild A-7 á Landspítalanum í Fossvogi. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 2. febrúar kl. 13.00. Jón Kristinn Jónsson og fjölskylda Ari Jónsson og fjölskylda Elsku hjartans kona mín, móðir okkar, dóttir, systir og tengdadóttir, Erla Magnúsdóttir Lækjarseli 11, 109 Reykjavík, lést miðvikudaginn 27. janúar. Útför auglýst síðar. Stefán Benediktsson Inga Lára Stefánsdóttir Ásta Margrét Stefánsdóttir Benedikt Stefánsson Birta Stefánsdóttir Sandra Líf Stefánsdóttir Magnús Theodórsson Ástríður Ingadóttir Gunnar Magnússon Salóme Huld Garðarsdóttir Benedikt Stefánsson Margrét Árnmarsdóttir Fósturmóðir mín og móðursystir okkar, Ingibjörg Ingólfsdóttir frá Fjósatungu í Fnjóskadal, síðast til heimilis á Hrafnistu Reykjavík, andaðist miðvikudaginn 27. janúar. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 8. febrúar klukkan 15.00. Agnar Erlendsson Karl Kristjánsson Karítas Kristjánsdóttir Guðbjörg Kristjánsdóttir. Ástkær systir, mágkona og frænka, Dagný Valgeirsdóttir kennari, Lönguhlíð 19, Reykjavík, andaðist á Landakotsspítala föstudaginn 22. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 1. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Bestu þakkir til starfs- fólks deildar K-2 á Landakoti fyrir mjög góða umönnun. Björg Valgeirsdóttir Skúli H. Norðdahl Björn Th. Valgeirsson Stefanía Stefánsdóttir Valgeir Hallvarðsson Aðalbjörg Kristinsdóttir Eva Hallvarðsdóttir Ásgeir Valdimarsson Herdís Hallvarðsdóttir Gísli Helgason Rannveig Hallvarðsdóttir Jóhannes Karl Jia Tryggvi Hallvarðsson Þuríður Vilhjálmsdóttir Hildur Björnsdóttir Ásgeir Bragason Dagný Björnsdóttir Skúli Gunnarsson Valgerður Helga Björnsdóttir Jón Hafberg Björnsson Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.