Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 74
46 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR Leikarinn John Travolta segir að trúin hafi hjálp- að sér að komast yfir dauða sextán ára sonar síns Jett. „Við unnum að því dag hvern með hjálp kirkjunn- ar okkar að láta sárin gróa,“ sagði Travolta, sem hefur lengi verið meðlimur í hinni umdeildu Vísindakirkju. „Ég, Kelly og Ella höfum öll lagt mjög hart að okkur og kirkjan hefur hjálpað okkur,“ sagði hann og átti þar við eiginkonu sína Kelly og dóttur þeirra. Tökum á nýjustu mynd Travolta, From Paris With Love, lauk nokkrum dögum áður en Jett lést eftir flogakast þann 2. janúar í fyrra á Bahamaeyjum. Trúin skipti sköpum JOHN TRAVOLTA Vísindakirkjan hjálpaði Tra- volta að jafna sig eftir dauða sonar hans. Eftir glæsilegan árangur íslenska handboltalands- liðsins á Evrópumeist- aramótinu í Austurríki hefur nú fjöldi Íslendinga ákveðið að fjölmenna til Vínarborgar. Þar fara fram um helgina undanúrslit og úrslit keppninnar en Ísland mætir heims- og Ólymp- íumeisturum Frökkum í undanúrslitum í dag. Þó búa ekki allir það vel að hafa orðið sér úti um miða á leiki íslenska liðsins áður en lagt var af stað til Austurríkis. Hópur Íslend- inga sem stóðu fyrir utan keppn- ishöllina í Vínarborg og héldu á spjaldi sem á stóð: „We need tickets“, varð á vegi blaðamanns Fréttablaðsins. Meðal þeirra var parið Hjalti Brynjarsson og Íris Huld Christ- ersdóttir sem eru námsmenn í Árósum í Danmörku. „Við vorum að horfa á leik Danmerkur og Nor- egs heima í stofu og ákváðum bara að skella okkur,“ sagði Íris Huld sem hélt á skiltinu góða. „Við lögð- um af stað klukkan hálf tólf um kvöldið fjögur saman og keyrðum nánast látlaust í sautján tíma.“ Hún var á leik Íslands og Nor- egs í fyrrakvöld þar sem Ísland vann eins marks sigur og tryggði sér þar með sæti í undanúrslit- um keppninnar. Þá tók við leitin að miðum fyrir úrslitahelgina. „Við erum ekki komin með miða á leikinn gegn Frökkum á morgun og þess vegna erum við hér. Við erum þó með miða á úrslitaleikinn á sunnudaginn en hann fengum við á hundrað evrur. Kærastanum mínum var ekið inn í verksmiðju af skuggalegum manni sem seldi honum miðana. Við fengum góðan díl.“ Hún sér því ekki eftir að hafa komið þótt hún þurfi að standa úti í kuldanum fyrir utan keppn- ishöllina. „Alls ekki. Við tókum þessa skyndiákvörðun af því að við höfum trú á strákunum. Það var líka svo gríðarlega góð stemn- ing á leiknum gegn Noregi að við teljum ferðina hafa staðið fylli- lega undir sér.“ Eins og fram hefur komið í fréttum fylltist í pakkaferð til Vínar á tíu mínútum enda áhug- inn gríðarlega mikill. En þeir eru miklu fleiri sem koma á eigin vegum og eru ekki með miða á leikina. „Við höfum hitt fullt af fólki sem er enn ekki komið með miða. Það er margt fólk á Íslend- ingabarnum og aðeins einn úr þeim hópi sem var kominn með miða á undanúrslitin.“ Keyptu miða af skugga- legum manni í verksmiðju KOMIN TIL AUSTURRÍKIS Hjalti Brynjarsson, Íris Huld Christersdóttir, Hrönn Vilhjálmsdóttir, Telma Ríkharðsdóttir og Bjarki Gústafs- son auglýsa eftir miðum. FRÉTTABLAÐIÐ/HJALTI ÞÓR HREINSSON Í dag verður opnuð sýning Laufeyjar Johansen í Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu 30 en Laufey er í mjög nánu sambandi við hina týndu plánetu Vúlkan. „Ég hef tekið að mér að vera málsvari orkunnar frá Vúlkan hér á jörðinni. Það sem ég mála er landslag frá Vúlkan, en einnig áhrif frá öðrum plánetum.“ Áhrifum Vúlkan á líf og list Laufeyjar fór að gæta fyrir rúmlega tveimur árum. „Mér var sagt frá því af Páli Sigurvinssyni á Hellissandi að ég hefði feng- ið það hlutverk að vera millistykki fyrir orkuna frá Vúlkan. Ég hélt að maðurinn væri ekki með öllum mjalla. En þetta var ekki í fyrsta skipti sem einhver sagði svona við mig. Ég á spólu með miðli í Dan- mörku sem sagði að ég ætti eftir að verða mikill listamaður en þá kunni ég ekki einu sinni að teikna Óla prik. En þetta eru engar tilviljanir. Það eru brautir sem toga þig inn á sig, en spurningin er bara hvort þú hlustir eða ekki. Ég hlustaði. Og þetta er það stórkostlegasta sem ég hef kynnst.“ Laufey ólst upp við andleg fræði. Afi hennar var Einar Kvaran, mikill frumkvöðull í sálarrannsókn- um, og hún ólst upp við tíða miðilsfundi. Plánetan Vúlkan sem „talar“ svona sterklega til hennar, var löngum talin vera á milli Merkúr og sólarinnar en stjarnfræðingar segja flestir í dag að hún sé ekki til. Vúlkan kemur mikið fyrir í Star Trek-myndun- um og Laufey er ekki í neinum vafa um að plánetan sé á sínum stað, svo sterklega finnur hún til hennar. Sýningin verður opnuð kl. 14 í dag og stendur til 14. febrúar. drgunni@frettabladid.is Býður fólki til Vúlkan ORKAN ER ÁÞREIFANLEG Laufey Johansen málar landslag og orku frá Vúlkan. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Slúðurtímaritin í Bandaríkjunum hafa velt sér mikið upp úr sam- bandi Angelinu Jolie og Brads Pitt sem nú virðist á brauðfót- um. Allt verður bandarísku slúð- urpressunni að umtalsefni og nú hafa fjölmiðlar ákveðið að beina sjónum sínum að dóttur leikara- parsins sem þykir of strákslega klædd. US Magazine hefur eftir ónafn- greindum sérfræðingi að Angel- ina Jolie gæti verið að bæla innra eðli hinnar þriggja ára gömlu Shiloh með því að klæða hana eins og strák og að það stuðli að mögulegri stríðni. „Ef Angelina er sjálf að velja föt á dóttur sína, gæti hún verið að bæla hennar innri mann,“ sagði sérfræðing- urinn, sem telur jafnframt að klæðavalið megi rekja til kyn- hneigðar Jolie, en hún hefur opinberlega sagst vera tvíkyn- hneigð. Of strákslega klædd SLÆMT FATAVAL Sérfræðingur í Banda- ríkjunum telur að Angelina Jolie sé að bæla innri mann Shiloh. Söngkonan Rihanna syrgir frá- fall hinnar sex ára gömlu Jasminu Anema, ungrar stúlku sem barðist við hvítblæði. Söngkonan greiddi fyrir mergígræðsluaðgerð fyrir Jasminu en þrátt fyrir að aðgerð- in hafi tekist vel lést telpan í byrj- un vikunnar. „Fréttir af andláti Jasminu hryggja mig mikið. Hún var mjög hugrökk og einstakt barn. Hún var sterk- ari en margt full- orðið fólk sem ég hef hitt og ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst henni,“ sagði Rihanna. Minnist vin- konu sinnar SYRGIR Rihanna syrgir unga vinkonu sína sem lést af völdum hvítblæðis. Ársfundur Hins íslenska biblíufélags 7. febrúar kl. 12:30 í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju Dagskrá 1. Ársreikningur 2009 2. Skýrsla stjórnar og stefnulýsing 3. Tillögur að lagabreytingum 4. Kjör í stjórn 5. Önnur mál Með breyttu hugarfari getur þú öðlast það líf sem þú óskar þér. NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð frábærum árangri í lífinu. NLP er öflugasta sjálfstyrkingarnámskeið sem völ er á. Námskeið í NLP tækni verður haldið 19. - 21. og 26. - 28.feb. 2010 www.ckari.com; Mail: rosa@ckari.com; Sími: 894-2992 Kári Eyþórsson MPNLP „Hugurinn ber þig alla leið“ - Er sjálfstraustið í ólagi? - Viltu betri líðan? - Skilja þig fáir? - Viltu vinna bug á einhverju í fari þínu? - Gengur öðrum betur í lífinu en þér? - Gengur illa að klára verkefni? - Er erfitt að höndla gagnrýni? © cKari.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.