Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 40
International parents will meet weekly with their children
and we welcome parents of all nationalities who have children
at the age of 0-6 years, and who want to meet other parents
with small children.
We regularly offer a short Icelandic lesson for the parents and
various other presentations. We provide refreshments along with
toys for the children to play with.
Participation is free and everyone is welcome, whether immigrants
or Icelanders, and no knowledge of Icelandic is required.
Time: Thursdays at 10.00-12.00
Program: See www.redcross.is/kopavogsdeild.
Place: The Volunteer Centre of the Kópavogur Branch
of the Red Cross. Hamraborg 11, 2nd floor, 200 Kópavogur.
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 kopavogur@redcross.is opið virka daga kl. 10-16
Įvairių tautybių tėvai
Padres Internacionales
International parents
Międzynarodowi rodzice
Për prindërit me origjinë të huaj
Phụ huynh quốc tế
Интернациональный клуб родителей
Alþjóðlegir foreldrar
Įvairių tautybių tėvai
Padres Internacio l
Internati l ts
Międzynaro ice
Për prindërit me origjinë të huaj
Phụ huynh quốc tế
Интернациональный клуб родителей
Alþjóðlegir foreldrar
„Hugsunin að baki þessu framtaki
er að allir geti bjargað sér sjálfir.
Ef réttu tólin og tækin eru fyrir
hendi þá er allt hægt,“ segir Þórey
Hilmarsdóttir, sem opnar sjálfs-
þjónustuna Nú þú, í dag ásamt
Gunnari Valdimarssyni, eigin-
manni sínum.
Sjálfsþjónustan gengur út á að
leigja út aðstöðu til viðskiptavina
sem vantar aðstöðu til að vinna
við bílana sína, gera við þá, þrífa
og þar fram eftir götunum. Fyrir-
tækið hefur rúmgóða aðstöðu að
Hvaleyrarbraut 2 í Hafnarfirði þar
sem eru tvær tveggja pósta lyftur
til viðgerða og ein fjögurra pósta
lyfta fyrir þrif. Einnig er boðið
upp á úrval af tækjum, verkfær-
um, ræstivörum og öðru smálegu
til sölu. Opið er frá klukkan 9 til
23 alla daga og möguleiki er að fá
aðstoð frá fagmanni.
Verðið fyrir aðstöðuna er frá
1.500 krónum og upp í 2.500 krón-
ur fyrir hvern klukkutíma, og fer
eftir hvaða tæki og tól viðskipta-
vinir kjósa að nýta sér. Þá verð-
ur boðið upp á sérstök tilboð fyrir
námsmenn og öryrkja utan álags-
tíma.
Að sögn Þóreyjar kom hugmynd-
in að sjálfsþjónustunni upp skömmu
eftir bankahrunið fyrir um einu og
hálfu ári. „Ég og maðurinn minn
höfum lengi verið að vasast í ýmsu
sem viðkemur bílum. Við höfðum
lengi heyrt sögur af fólki sem átti í
erfiðleikum með að finna stað til að
dytta að bílunum sínum og ákváð-
um þess vegna að drífa í að setja
á fót þessa aðstöðu. Það tók okkur
nokkurn tíma að finna hentugt hús-
næði, en þegar það var fundið var
ekki eftir neinu að bíða. Ég veit til
þess að svona fyrirtæki eru vinsæl
víða í nágrannalöndunum,“ segir
Þórey.
Þau hjónin hafa fengið mikla og
góða aðstoð frá fjölmörgum vinum
og vandamönnum við að koma
aðstöðunni á koppinn. „Þetta er
ansi mikil vinna en borgar sig von-
andi að lokum,“ segir Þórey.
kjartan@frettabladid.is
Allir geta bjargað sér
Þórey Hilmarsdóttir opnar í dag sjálfsþjónustuna Nú þú í Hafnarfirði ásamt eiginmanni sínum. Þar gefst
fólki færi á að leigja aðstöðu og tæki til að dytta að bílum sínum. Aðstoð fagmanns er einnig í boði.
„Það tók okkur nokkurn tíma að finna hentugt húsnæði, en þegar það var fundið var
ekki eftir neinu að bíða,“ segir Þórey Hilmarsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SÍÐASTA SÝNINGARHELGI á verkum Steinunnar Sigurðardóttur fata-
hönnuðar stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Hátt í 10.000 gestir hafa þegar skoð-
að sýninguna, sem er fyrsta fatahönnunarsýningin í listasafni á Íslandi.
Skörun blaðalesturs að meðaltali á dag, mán. til lau., höfuðborgarsvæðið 18-49 ára.
Heimild: Blaðakannanir Capacent maí-okt. 2009.
Allt sem þú þarft...
Auglýsing í
Fréttablaðinu
nær til yfir
91%
lesenda
blaðanna
Yfirburðir
Fréttablaðsins
staðfestir!
Lesa bæði
Fréttablaðið og
Morgunblaðið
Lesa bara
Morgunblaðið
Lesa bara
Fréttablaðið
59% 8,8%
32,2%
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila
sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup
sýnir ótvírætt.