Fréttablaðið - 30.01.2010, Page 40

Fréttablaðið - 30.01.2010, Page 40
International parents will meet weekly with their children and we welcome parents of all nationalities who have children at the age of 0-6 years, and who want to meet other parents with small children. We regularly offer a short Icelandic lesson for the parents and various other presentations. We provide refreshments along with toys for the children to play with. Participation is free and everyone is welcome, whether immigrants or Icelanders, and no knowledge of Icelandic is required. Time: Thursdays at 10.00-12.00 Program: See www.redcross.is/kopavogsdeild. Place: The Volunteer Centre of the Kópavogur Branch of the Red Cross. Hamraborg 11, 2nd floor, 200 Kópavogur. Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 kopavogur@redcross.is opið virka daga kl. 10-16 Įvairių tautybių tėvai Padres Internacionales International parents Międzynarodowi rodzice Për prindërit me origjinë të huaj Phụ huynh quốc tế Интернациональный клуб родителей Alþjóðlegir foreldrar Įvairių tautybių tėvai Padres Internacio l Internati l ts Międzynaro ice Për prindërit me origjinë të huaj Phụ huynh quốc tế Интернациональный клуб родителей Alþjóðlegir foreldrar „Hugsunin að baki þessu framtaki er að allir geti bjargað sér sjálfir. Ef réttu tólin og tækin eru fyrir hendi þá er allt hægt,“ segir Þórey Hilmarsdóttir, sem opnar sjálfs- þjónustuna Nú þú, í dag ásamt Gunnari Valdimarssyni, eigin- manni sínum. Sjálfsþjónustan gengur út á að leigja út aðstöðu til viðskiptavina sem vantar aðstöðu til að vinna við bílana sína, gera við þá, þrífa og þar fram eftir götunum. Fyrir- tækið hefur rúmgóða aðstöðu að Hvaleyrarbraut 2 í Hafnarfirði þar sem eru tvær tveggja pósta lyftur til viðgerða og ein fjögurra pósta lyfta fyrir þrif. Einnig er boðið upp á úrval af tækjum, verkfær- um, ræstivörum og öðru smálegu til sölu. Opið er frá klukkan 9 til 23 alla daga og möguleiki er að fá aðstoð frá fagmanni. Verðið fyrir aðstöðuna er frá 1.500 krónum og upp í 2.500 krón- ur fyrir hvern klukkutíma, og fer eftir hvaða tæki og tól viðskipta- vinir kjósa að nýta sér. Þá verð- ur boðið upp á sérstök tilboð fyrir námsmenn og öryrkja utan álags- tíma. Að sögn Þóreyjar kom hugmynd- in að sjálfsþjónustunni upp skömmu eftir bankahrunið fyrir um einu og hálfu ári. „Ég og maðurinn minn höfum lengi verið að vasast í ýmsu sem viðkemur bílum. Við höfðum lengi heyrt sögur af fólki sem átti í erfiðleikum með að finna stað til að dytta að bílunum sínum og ákváð- um þess vegna að drífa í að setja á fót þessa aðstöðu. Það tók okkur nokkurn tíma að finna hentugt hús- næði, en þegar það var fundið var ekki eftir neinu að bíða. Ég veit til þess að svona fyrirtæki eru vinsæl víða í nágrannalöndunum,“ segir Þórey. Þau hjónin hafa fengið mikla og góða aðstoð frá fjölmörgum vinum og vandamönnum við að koma aðstöðunni á koppinn. „Þetta er ansi mikil vinna en borgar sig von- andi að lokum,“ segir Þórey. kjartan@frettabladid.is Allir geta bjargað sér Þórey Hilmarsdóttir opnar í dag sjálfsþjónustuna Nú þú í Hafnarfirði ásamt eiginmanni sínum. Þar gefst fólki færi á að leigja aðstöðu og tæki til að dytta að bílum sínum. Aðstoð fagmanns er einnig í boði. „Það tók okkur nokkurn tíma að finna hentugt húsnæði, en þegar það var fundið var ekki eftir neinu að bíða,“ segir Þórey Hilmarsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SÍÐASTA SÝNINGARHELGI á verkum Steinunnar Sigurðardóttur fata- hönnuðar stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Hátt í 10.000 gestir hafa þegar skoð- að sýninguna, sem er fyrsta fatahönnunarsýningin í listasafni á Íslandi. Skörun blaðalesturs að meðaltali á dag, mán. til lau., höfuðborgarsvæðið 18-49 ára. Heimild: Blaðakannanir Capacent maí-okt. 2009. Allt sem þú þarft... Auglýsing í Fréttablaðinu nær til yfir 91% lesenda blaðanna Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir! Lesa bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið Lesa bara Morgunblaðið Lesa bara Fréttablaðið 59% 8,8% 32,2% Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup sýnir ótvírætt.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.