Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 86
58 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
„Ég tel að þetta sé fyrsta góðgerð-
arpókermótið á Íslandi. Ég hef
ekki heyrt um önnur,“ segir Sig-
urpáll Jóhannesson, frá pókerk-
lúbbnum Kojack.
Góðgerðarpókermótið Ljós í
myrkri verður haldið í pókerk-
lúbbnum Kojack í Kópavogi á
mánudag. 5.000 kr. kostar að taka
þátt og keppendur geta keypt sig
inn tvisvar. Allur ágóði rennur
til góðgerðarmála, en keppendur
ákveða fyrirfram hvert verðlauna-
féð rennur, sigri þeir mótið. Fjöru-
tíu manns hafa þegar boðað komu
sína, meðal annarra leikararn-
ir Gísli Örn, Ólafur Darri, Björn
Hlynur, Rakel Garðarsdóttir, Nína
Filippusdóttir og Víkingur Kristj-
ánsson. Þá ætla Hilmir Snær, Auð-
unn Blöndal, Egill Gillz, Svava í 17
og Selma Björnsdóttir að mæta á
svæðið ásamt fjölmörgum öðrum.
Sigurpáll hyggst bjóða upp á
pókerkennslu fyrir mótið, fyrir þá
sem hafa ekki spilað póker. „Stutt
kennsla hefur komið fólki langt,“
segir hann. „Við veitum spilurun-
um líka ýmis verðlaun. Það verða
ekki peningar, allur potturinn fer
óskertur til góðgerðarmála.“
Þeir sem skrá sig til leiks verða
að gefa upp fyrirfram hvaða mál-
efni þeir vilja styrkja. Meðal félag-
anna sem skráðir keppendur hafa
nefnt eru Unicef, Blátt áfram,
Neistinn, Amnesty, Haítí-sjóður-
inn, Umhyggja, Mæðrastyrks-
nefnd, Rauði krossinn, Barnaspít-
ali Hringsins og Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna. - afb
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Paul Myners.
2 Nesver.
3 Atli Hilmarsson.
Agnes Marinósdóttir
Aldur: 29 ára.
Starf: Ég er hópstjóri hjá Vodafone
á daginn og hönnuður at night.
Fjölskylda: Makinn heitir Aron Þór
og barnið Ólafur Árni.
Búseta: Reykjavík, Hlíðarnar
Stjörnumerki: Ég er naut.
Vesturport spilar á góðgerðarpókermóti
PÓKER FYRIR GÓÐAN MÁL-
STAÐ Svava í 17, Selma
Björnsdóttir, Ólafur Darri
og Víkingur Kristjánsson
eru á meðal þeirra sem
keppa á góð-
gerðarmóti
í póker á
mánudag-
inn.
„Þetta var nú hugmynd hjá Magn-
úsi Geir, að við í Ný Dönsk mynd-
um semja nýtt lag. Síðan valdi
hann, Ólafur Haukur Ólafsson,
Guðjón Davíð Karlsson og Hall-
grímur Óskarsson hentugasta lagið
og það reyndist vera mitt. Ég hef
nú reyndar verið sakaður um það
af hinum strákunum að hafa eitt-
hvað átt við niðurstöðurnar af því
að ég er tónlistarstjóri sýningar-
innar en það er af og frá og algjör-
lega úr lausu lofti gripið,“ segir Jón
Ólafsson, tónlistarmaður og tón-
listarstjóri sýningarinnar Gaura-
gangur.
Nýtt lag frá hljómsveitinni Ný
Dönsk verður að finna í nýrri upp-
færslu Borgarleikhússins sem
Magnús Geir Þórðarson leikstýr-
ir. Lagið heitir Vertu með og verð-
ur sungið af Ormi og Ranúr, þeim
Guðjóni Davíð og Hallgrími. Jón
segir þá staðreynd vera sérstak-
lega skemmtilega. „Í gömlu upp-
færslunni var nefnilega svo lítið af
lögum fyrir Ranúr en nú fær hann
að láta ljós sitt skína,“ segir Jón.
Hljómsveitin Ný Dönsk tók mik-
inn þátt í uppfærslu Þjóðleikhúss-
ins á sínum tíma, hafði sínar eigin
línur og dansaði meira að segja.
Nú verður sveitin hins vegar víðs-
fjarri að þessu sinni, enda hluti
hennar orðinn of feitur og gamall
fyrir slíka leiki, svo notuð séu orð
tónlistarstjórans sjálfs. „Annars er
tónlistin sjálf skárri en ég hélt. Þótt
henni hafi aðeins verið ýtt til hlið-
ar þá hafa bæði framhaldsskólar og
áhugamannaleikhús sett þessa sýn-
ingu reglulega upp og maður hefur
því aldrei losnað almennilega frá
henni,“ segir Jón og bætir því við
að upphafið megi rekja til þess að
Ný dönsk sat á hótelherbergi úti í
Eyjum eftir að hafa spilað á Þjóð-
hátíð með handrit leikritsins fyrir
JÓN ÓLAFSSON: SIGRAÐI Í LAGAKEPPNI HJÁ NÝ DÖNSK
Ný Dönsk með nýtt lag í
nýjum Gauragangi
LEIKHÓPURINN
Leikhópurinn hefur tekið smá breytingum frá því
sem upphaflega var gert ráð fyrir. Birgitta Birg-
isdóttir tekur við hlutverki Höllu af Ilmi Kristjáns-
dóttur en þeir Hallgrímur Óskarsson og Guðjón
Davíð Karlsson verða Ormur og Ranúr. Valgerður
Guðnadóttir leikur draumadísina Lindu og Þor-
steinn Gunnarsson verður Hreiðar, nágranni Orms.
Þá mun sjálfur Sveppi leika Sveitó og Þröstur Leó er
stjúpi Orms. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson.
framan sig og síðan hafi hverjum
og einum verið úthlutað verkefni.
„Því má alveg segja að tónlistin sé
eftir okkur alla.“
Jón býst fastlega við því að hrað-
inn verði aðeins keyrður upp í tón-
listinni en hann hefur fengið til
sín einvalalið hljóðfæraleikara í
„hljómsveit hússins“. „Þetta eru
þeir Kristinn Agnarsson á tromm-
ur, Ingibjörn Ingason spilar á bassa,
Börkur Birgisson og Stefán Magn-
ússon spila á gítar og Þorbjörn Sig-
urðsson verður á hljómborðinu.“ Jón
segir fínt að fá tækifæri til að vinna
að þessari sýningu aftur. „Það var
skemmtilegt að vera þáttakandi síð-
ast, nú fær maður hins vegar tæki-
færi til að bæta um betur.“
freyrgigja@frettabladid.is
Edduverðlaunin verða sýnd í beinni útsendingu
og opinni dagskrá frá Háskólabíói á Stöð 2
laugardagskvöldið 27. febrúar. Eddan hefur
verið sýnd undanfarin tíu ár í Sjónvarpinu en
hætt var við útsendinguna í ár vegna niður-
skurðar, eins og komið hefur fram í Frétta-
blaðinu.
„Þetta er mjög ánægjulegt. Þegar það
kom í ljós að vegna niðurskurðar yrði RÚV
ekki með Edduna þá spurðum við þá á Stöð 2
og þeir sögðu strax já,“ segir Björn Brynjúlf-
ur Björnsson, formaður ÍKSA, íslensku
kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar.
„Við erum mjög spenntir og þetta kemur
á skemmtilegum tíma,“ segir hann og
reiknar með að tilnefningarnar verði til-
kynntar á næstu dögum.
Mikil óánægja hefur verið á meðal
leikara og kvikmyndagerðarmanna um
væntanlegan niðurskurð stjórnvalda til
kvikmyndagerðar. Björn segir þessa
beinu útsendingu gott tækifæri fyrir
almenning til að sjá hversu blómleg
íslensk kvikmyndagerð er um þessar
mundir. „Þarna geta menn séð á einum
stað hvað er framleitt á einu ári, séð
hvað er verið að gera og hversu vel, til dæmis í
samanburði við erlent efni. Það er ágætt að
menn horfi yfir það á sama tíma og menn
hugsi um að skera niður um þriðjung eins og
ríkisstjórnin er að gera.“ Hann bætir við að
Eddan í ár verði óvenjuleg af þessum sökum.
„Þessi Edda verður ekki lík neinni annarri.
Hún verður náttúrlega lituð af stemningunni
og því sem er að gerast í bransanum.“
Miðaverð á Edduna verður 1.000 krón-
ur, sem er töluvert lægra en undan-
farin ár. Að auki verða eitt þúsund
áhorfendasæti í boði sem er mun
meira en verið hefur. „Ég spái
því að það komist færri að en
vilja. Eins og stemningin er í
kringum kvikmyndagerðina
þá á ég ekki von á öðru. Það
eru allir að sýna okkur mikinn
stuðning og ég vona að það sjá-
ist á Eddunni,“ segir Björn. - fb
Eddan frá RÚV á Stöð 2
BJÖRN BRYNJÚLFUR BJÖRNSSON
Edduverðlaunin verða sýnd í beinni
útsendingu á Stöð 2 laugardagskvöldið
27. febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fréttablaðið sagði frá því
á dögunum að Eva
Hauksdóttir, einnig
þekkt sem Eva norn,
ætlaði að senda frá
bókina Ekki lita út
fyrir á næstunni.
Bókina vann hún
ásamt ljósmynd-
aranum Ingólfi
Júlíussyni, en
myndefni bókarinnar þykir nokkuð
krassandi og Eva ku meðal annars
sitja fyrir nakin. Nú heyrist að
Skrudda hafi tryggt sér útgáfurétt
á bókinni sem kemur út einhvern
tíma á næstu vikum.
Útvarpsmaðurinn Þossi (Þor-
steinn Hreggviðsson)
snýr aftur í útvarp
eftir langt hlé þegar
hann byrjar með
þáttinn Gogoyoko
á Rás 2 á mánudag-
inn frá miðnætti til
klukkan eitt um
nóttina. Þetta er
nú kannski ekki
alveg „prime
time“, eða að minnsta kosti verri
tími en þegar Þossi var aðalrokk-
spaðinn á gamla góða X-inu. Þossi
ætlar að spila það sem hæst ber
hverju sinni á vefsíðunni Gogoy-
oko.com og á öðrum tónlistar-
síðum á netinu.
Búast má fastlega við að flestir
landsmenn verði límdir við sjón-
varpið frá kl. 13 í dag þegar Ísland
leikur við Frakka í undanúrslitum
EM í handbolta. Í Íslensku óperunni
verður barnaleikritið Algjör Sveppi
- dagur í lífi stráks á sama tíma en
leikstjórinn Felix Bergsson er hvergi
banginn: „The show must go on“.
Eflaust verða þó sumir
frumsýningargesta límdir
við farsímana sína, sér-
staklega í hléinu, sem
kemur upp í miðjum
seinni hálfleik.
-fb/drg
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT
2. viðureign, 6. klaki, 8. dýrahljóð,
9. farfa, 11. bókstafur, 12. óláns, 14.
hroki, 16. halló, 17. rá, 18. veitt eftir-
för, 20. til, 21. brýna.
LÓÐRÉTT
1. mælieining, 3. í röð, 4. limlesta, 5.
knæpa, 7. ketilsig, 10. gegnsær, 13.
framkoma, 15. óskuðu, 16. þurkað
gras, 19. til dæmis.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. átök, 6. ís, 8. urr, 9. lit, 11.
ká, 12. ógæfu, 14. dramb, 16. hæ, 17.
slá, 18. elt, 20. að, 21. ydda.
LÓÐRÉTT: 1. kíló, 3. tu, 4. örkumla,
5. krá, 7. sigdæld, 10. tær, 13. fas, 15.
báðu, 16. hey, 19. td.
Nýtt 4 vikna byrjendanámskeið hefst
1. febrúar. Skráning hafi n í síma
695 8464 / 772 1025 eða á jogastudio.org
Verð 14.900 kr.
Hot jóga • Hatha jóga • Byrjendanámskeið
Meðgöngujóganámskeið
Stakur tími 1.500 kr. • Mánaðarkort 10.900 kr.
• 3 mánaðakort 23.900 kr. • 6 mánaðakort
36.000 kr. • 10 tíma klippikort 10.000 kr.
Meðgöngujóganámskeið 10.500 kr.
Innifalið í kortum eru allir opnir tímar ásamt
þeirri þjónustu sem boðið er upp á í Veggsport.
Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport)
Sími: 695 8464 og 772 1025
www.jogastudio.org
Ný og persónuleg jógastöð
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki