Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 72
44 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Íslenska landsliðið í handbolta mætir Frökkum í undanúr-
slitum EM klukkan eitt í dag. Stemningin í kringum leiki
landsliðsins hefur verið gríðarlega góð og vertar höfuð-
borgarinnar búast við góðri mætingu enda ekki leikið
eldsnemma á morgnana eins og var á Ólympíuleikunum. - sm
VERTAR ERU
VIÐ ÖLLU BÚNIR
ENSKI BARINN „Það er búið að vera
fullt á öllum leikjunum og mjög
góð stemning,“ segir Jóhann Már
Valdimarsson, starfsmaður á Enska
barnum við Austurstræti. Hann segir
staðinn þéttsetinn í hvert sinn sem
Ísland spilar en þar sem leikirnir
hafa farið fram svo snemma sé
lítið um drykkjulæti. „Hingað detta
líka óvart inn útlendingar sem hafa
aldrei séð íþróttina áður og skilja
ekki út á hvað þetta gengur. En
þeir komast flestir fljótt inn í þetta
og hafa haft gaman af,“ segir Jóhann Már. Enski barinn sýnir leikinn á þremur
breiðtjöldum og tveimur sjónvarpsskjáum.
Sérstakt tilboð verður á stórum bjór meðan á leiknum stendur og kostar mjöður-
inn þá 700 krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Landsliðstreyjur Íslands í hand-
bolta seldust upp í gær eftir sigur-
inn frækna gegn Norðmönnum.
Magnús Vignir Pétursson, eig-
andi Jóa útherja, segir það leiðin-
legt að ekki skuli lengur vera til
treyjur fyrir fjölmarga aðdáend-
ur liðsins. „Síminn hringir stans-
laust og það eru allir að spyrja um
þetta sem eru að fara út á leikina.
Það eru tvær til þrjár flugvélar
fullar af fólki og það þýðir fimm
hundruð manns,“ segir hann.
Engir búningar eru væntanleg-
ir fyrr en eftir viku en þá verður
mótið löngu búið. „Þetta gengur
ekki og ég er voða sár yfir þessu.
Ekki eingöngu vegna viðskipt-
anna heldur vegna HSÍ. Það á að
láta þá njóta góðs af því að fram-
leiða eins mikið og hægt er til að
styrkja þá.“ Að sögn Magnúsar
hafa sumir viðskiptavinir brugðið
á það ráð að kaupa landsliðs treyj-
ur í fótbolta til að klæðast á pöll-
unum í Austurríki í stað hand-
boltatreyjanna.
Starfsmaður fyrirtækisins
Sportlands, sem pantar treyjurn-
ar frá Þýskalandi, sagði Frétta-
blaðinu að ákveðið hefði verið að
hafa hægt um sig í innkaupum á
treyjum vegna þess að nýr lands-
liðsbúningur komi í vor og þeir
hafi ekki viljað sitja uppi með
stóran lager af úreltum treyjum.
Eftirspurnin haldist í hendur við
gengi liðsins og því miður hafi
ekki verið til nóg af treyjum fyrir
alla í þetta sinn.
Að sögn Hermanns Þórs Þráins-
sonar, markaðs- og fjölmiðlafull-
trúa HSÍ, stendur til að koma upp
netverslun á heimasíðu HSÍ og þá
kemur þetta vandamál vonandi
ekki upp aftur. - fb
Landsliðstreyjurnar uppseldar
Í FULLUM SKRÚÐA Magnús Vignir Pétursson hefur selt upp allar handboltatreyjurnar
sem hann átti í verslun sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Átrúnaðargoð X-Factor stjörnunn-
ar Susan Boyle lét ekki svo fögur
orð falla um söngkonuna í viðtali
við The Daily Mail fyrir stuttu.
Ellen Paige hefur gert garðinn
frægan fyrir hlutverk sín í hinum
ýmsu söngleikjum og hefur Susan
Boyle ávallt nefnt Paige á nafn
þegar hún er spurð um áhrifavalda
sína. Hingað til hefur Paige sýnt
Boyle nokkurn stuðning og meðal
annars sungið með henni dúett, en
í nýlegu viðtali virðist hún ekki
mikill aðdáandi X-Factor stjörn-
unnar. „Susan Boyle hefur náð
mjög langt miðað við það að hún
varð fræg yfir nóttu með aðstoð
Youtube. Hún var eins og vírus
sem ferðaðist um heiminn á nanó-
sekúndu. Hún hefur enga reynslu
á sviði leiklistar, tónlistar eða list-
ar yfirhöfuð,“ sagði Paige um hina
skosku Boyle.
Líkt við tölvuvírus
EINS OG VÍRUS Ellen Paige, átrúnaðar-
goð Susan Boyle, líkti henni við tölvuvír-
us í nýlegu viðtali.
„Ég er að velta því fyrir mér að
íhuga að hætta að reykja,“ segir
sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan.
Nafn Helga hefur oft komið upp
í samhengi við umræður um reyk-
ingar. Unnið hefur verið að því
kerfisbundið síðustu ár að fækka
opinberum stöðum sem leyfa
reykingar og ef Helgi hættir
mætti segja að síðasta vígi reyk-
ingafólks sé að falla.
„Ég ætla að gera alvöru úr
þessu, ég nenni þessu helvíti ekki
lengur. Ég hef ekki samvisku í að
vera að reykja matarpeninga fjöl-
skyldunnar lengur,“ segir Helgi
harðákveðinn. „Ég veit ekki
hvort Viceroy-fyrirtækið sé búið
að gefa út afkomuviðvörun. Þeir
ættu kannski að gera það.“
Ýmsar aðferðir eru í boði fyrir fólk
sem vill hætta að reykja. Alls kyns nik-
ótínvörur, sjálfshjálparbækur og jafnvel
dáleiðsla. Helgi reiknar greinilega með
harðri baráttu þar sem hann hyggst nota
allar aðferðirnar í einu. „Ég hugsa að það
kæmi ágætlega út,“ segir hann.
Það er skap í Helga, en það hefur hing-
að til verið ein af ástæðunum fyrir því að
hann hefur haldið áfram að sjúga hvítu
vindlingana. „Ég verð örugglega ekki eins
og sól í heiði fyrst um sinn,“ viðurkennir
Helgi, sem dvelur á Akureyri þessa dag-
ana og býst við að hreina loftið fyrir norð-
an hjálpi til. „Hér er ekki sérstaklega gert
ráð fyrir því að fólk reyki,“ segir Helgi.
„Þetta er klárlega ekki eins neyslutengt
umhverfi eins og Reykjavík. Fyrir mér er
Reykjavíkurborg eins og stór öskubakki.
Akureyri er það ekki.“ - afb
Síðasta vígi reykingafólks fellur
REYNIR AÐ HÆTTA Helgi ætlar að beita ýmsum
aðferðum við að hætta að reykja.
ÖLVER „Við erum búnir að sýna alla leikina,
og þá ekki bara þegar Ísland keppir heldur
alla aðra leiki líka, og ætlum að halda því
áfram. Hér hefur verið mjög góð stemning
og hún fer vaxandi eins og alltaf þegar vel
gengur. Þetta fer að verða jafn spennandi
og á Ólympíuleikunum,“ segir Magnús Páll
Halldórsson, eigandi sportbarsins Ölvers.
Magnús Páll spáir íslenska liðinu sigri í dag
í leiknum á móti Frökkum og er bjartsýnn
á gullið. Aðspurður segist hann hafa fengið
fólk af mörgu þjóðerni á staðinn og segir
Íslendingana oftast mjög kurteisa við
mót herjana að leik loknum. Ölver sýnir leikinn beint á fimm breiðtjöldum og
tuttugu og fjórum sjónvörpum og því ætti ekki að væsa um neinn á þeim stað.
Stór öl kostar 750 krónur en einnig er hægt að kaupa mat með og kostar þá
bjórinn 600 krónur. FRÉTTALAÐIÐ/ANTON
PLAYERS Sportbarinn Players er á
meðal þeirra staða sem hafa sýnt frá
leikjum Evrópumótsins í handbolta.
Þórður Ágústsson, eigandi staðarins,
segir stemninguna hafa verið gríðar-
lega. „Stemningin hefur verið mjög góð
og bjórsalan er bara í samræmi við
stemninguna. Leikirnir eru þó flestir
á þeim tíma að það er ekki mikið um
drykkju, við erum fyrst og fremst að
bjóða fólki upp á góða aðstöðu til
að horfa á leikinn. Við erum með sjö
breiðtjöld og tólf skjái þannig að það
ætti að fara vel um fólk,“ segir Þórður. Players tekur um sjö hundruð manns og
að sögn Þórðar hefur verið þétt setið á öllum leikjum. Sérstakt tilboð verður á
mat og bjór alla helgina og hægt verður að kaupa 5 bjóra í fötu á 1500 krónur.
Á myndinni er Björn Jakobsson, vaktstjóri á Players. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> OZZY Í BÍÓ
Rokkarinn Ozzy Osbourne hefur
lokið við æviminningar sínar og
hefur bókin hlotið titilinn I Am
Ozzy. Rokkarinn hefur sagt að það
komi til greina að gera kvikmynd
byggða á bókinni og vill hann fá
Johnny Depp sjálfan til að leika
sig. „Hann er einn fárra leik-
ara sem þekkja rokk og ról. Og
hann getur talað með breskum
hreim,“ sagði rokkarinn.