Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 6
6 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
ALÞINGI. Unnið er að breytingum á lögum um
greiðsluaðlögun og nauðungarsölu fasteigna.
Frumvörp koma fram fljótlega, kannski í næstu
viku, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráð-
herra, á Alþingi í gær.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, spurði Jóhönnu álits á upp-
lýsingum um að 83 prósent þeirra, sem leitað hafa
fyrirgreiðslu í bönkum við endurskipulagningu
skulda, telji sig ekki hafa fengið fullnægjandi
úrlausn sinna mála. Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, hefur sagt þær tölur áfellisdóm yfir stjórn-
völdum.
Jóhanna sagði að verið væri að vinna að ýmsum
úrræðum fyrir fólk í skuldavanda í dómsmála-
ráðuneyti og félags- og tryggingaráðuneyti. Brýnt
sé til dæmis að taka á málum þeirra sem eiga
eignir á nauðungarsölum. Eins hafi verið gerðar
athugasemdir við framkvæmd greiðsluaðlögunar.
Verið sé að vinna að endurbótum sem taka mið af
þeim athugasemdum. „Ég vona að við sjáum end-
urbætt frumvörp fljótlega, sagði Jóhanna. - pg
Forsætisráðherra segir ný frumvörp væntanleg:
Unnið að breytingum á reglum um
greiðsluaðlögun og nauðungarsölur
FORSÆTISRÁÐHERRA Jóhanna Sigurðardóttir, segir að nýjar
reglur um nauðungaruppboð fasteigna og greiðsluaðlögun
skulda séu í smíðum í ráðuneytum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjögurra vikna árangursmælt nám-
skeið Kvíðameðferðarstöðvarinnar
til að takast á við vanlíðan, álag og
spennu. Kenndar leiðir hugrænnar
atferlismeðferðar til að skoða og
breyta hugsunum og viðbrögðum sem viðhalda kvíða og depurð.
Öflugar slökunar- og hugleiðsluaðferðir jafnframt kenndar.
Mánudagar og fimmtudagar frá 20:00 til 21:45 auk eftirfylgdartíma, alls 16 klst.
Kennarar: Oddi Erlingsson og Sóley D. Davíðsdóttir,
sálfræðingar í klínískri sálfræði.
Verð aðeins kr. 45.000.
Niðurgreiðsla möguleg hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 1. febrúar nk.
Skráning og fyrirspurnir í símum 822 0043 og 562 4444, oddier@simnet.is og kms@kms.is
N á n a r i u p p l ý s i n g a r : w w w . k m s . i s
Kennsludagar:
Vellíðan án lyfja
með verkfærum sálfræðinnar
Hjartamiðstöðin
Tilkynning – Lungnalæ
knar
Hef opnað læknastofu í Hjartamiðstöðinni,
Holtasmára 1, 6. hæð í Kópavogi.
Tímapantanir eru í síma 550 3030 eða á
www.hjartamidstodin.is
Holtasmára 1 • 6. hæð • 201 Kópavogi • Sími 550 3030 • www.hjartamidstodin.is
Hans Jakob Beck
lungnalæknir
AÐALFUNDUR FEB
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
(FEB) árið 2010 verður haldinn laugardaginn 20. febrúar nk.
í félagsheimilinu að Stangarhyl 4 kl. 13:00.
Dagskrá fundarins verður skv. grein 4.5 í lögum félagsins. M.a.
verður kosið um 5 aðalmenn og 2 varamenn í stjórn félagsins til
tveggja ára. Hægt er að nálgast lög félagsins á skrifstofu þess að
Stangarhyl 4 og á vefsíðunni www.feb.is. Framboð til stjórnar eða
tillögur félagsmanna um einstaka menn til stjórnarkjörs skulu berast
skrifstofu félagsins minnst tveimur viku fyrir fundinn eða í síðasta
lagi mánudaginn 8. febrúar. Allir greiðandi félagsmenn eru kjörgen-
gir til stjórnar. Tillögur uppstillingarnefndar um menn til stjórnarkjörs
liggja frammi á skrifstofu félagsins til skoðunar. Sími 588 21 11
BRETLAND, AP „Ég trúi því í einlægni
að heimurinn sé öruggari nú,“ sagði
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráð-
herra Bretlands, þegar hann bar
vitni í gær fyrir breskri rannsókn-
arnefnd, sem er að fara ofan í saum-
ana á aðdraganda Írakstríðsins.
Hann segist hafa litið svo á að
Saddam Hussein hafi verið „ógn-
valdur“ og „skrímsli“, en eftir árás-
irnar á Bandaríkin 11. september
2001 hafi honum orðið ljóst að ekki
væri lengur hægt að bíða bara og
vona hið besta.
Hann tók fram að hann sjálf-
ur beri meginábyrgðina á þessari
ákvörðun, og sagðist sannfærð-
ur um að þótt ástandið væri erfitt
í Írak í dag þá myndu Írakar ekki
vilja skipta á því og Saddam Huss-
ein.
Hann viðurkenndi þó að hafa ekki
átt von á því að eftirleikurinn yrði
jafn erfiður og raun varð á. Harð-
skeyttur stuðningur Írans við sjía-
múslima og Al Kaída við súnní-mús-
lima hafi komið á óvart og dregið
átökin á langinn, með þeim afleið-
ingum að uppbygging þjóðfélagsins
varð miklu erfiðari en innrásarríkin
höfðu reiknað með.
Hann viðurkenndi líka að vís-
bendingar um að stjórn Saddams
Hussein hafi haft yfir gereyðingar-
vopnum að ráða hafi verið óljósar
og götóttar, en sagðist þó enn telja
að þegar upplýsingar frá leyniþjón-
ustunni voru skoðaðar á sínum tíma
hafi verið erfitt að komast að ann-
arri niðurstöðu en að slík vopn hafi
verið í fórum Saddams.
Í salnum voru meðal annars
aðstandendur breskra hermanna,
sem látið hafa lífið í átökum í Írak
síðustu árin. Andrúmsloftið var
spennuþrungið og Blair virtist mjög
óöruggur framan af en óx ásmegin
eftir því sem á leið, brosti óspart og
leiðrétti ýmislegt sem honum þótti
rangt með farið í spurningunum.
„Mér varð satt að segja flök-
urt,“ sagði Rose Gentle, ein kona
í áheyrendahópnum sem missti
19 ára gamlan son sinn í Írak árið
2004 og átti erfitt með að þola nær-
veru Blairs. „Honum virtist einnig
brugðið, og ég er ánægð með það –
augu allra fjölskyldnanna hvíldu á
honum.“
Þegar Blair yfirgaf salinn gerðu
áheyrendur hróp að honum. Einn
hrópaði: „Þú ert lygari!“ og annar
bætti við: „Og morðingi!“ Fyrir utan
húsið stóð hópur mótmælenda vakt-
ina allan tímann meðan yfirheyrsl-
urnar stóðu yfir.
gudsteinn@frettabladid.is
Varði ákvörðun sína
um að ráðast á Írak
Tony Blair sér ekki eftir því að hafa tekið ákvörðun um að ráðast á Írak vor-
ið 2003. Hann var yfirheyrður í sex klukkustundir samfleytt í gær hjá breskri
rannsóknarnefnd sem er að fara ofan í saumana á aðdraganda Írakstríðsins.
ANDSTÆÐINGAR ÍRAKSTRÍÐSINS MÓTMÆLA Hópur mótmælenda mótmælti fyrir
utan húsakynni rannsóknarnefndarinnar í London meðan Blair bar þar vitni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hafa sérstök úrræði dugað þér
til að standa í skilum með lán?
Já 21,7%
Nei 78,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Viltu að rannsóknarnefnd verði
látin kanna ákvörðun íslenskra
stjórnvalda um stuðning við
Íraksstríðið?
Segðu skoðun þína á vísir.is
VINNUMARKAÐUR Óeining innan
stjórnar VR dregur úr styrk hreyf-
ingarinnar og framgangi mikil-
vægra hagsmunamála að mati
formannsins Kristins Arnar Jóhann-
essonar.
Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnar-
maður og einn þremenninga sem
sendi stjórninni áskorun þar sem
meðal annars er falast eftir stuðn-
ingi VR við Hagsmunasamtök heim-
ilanna, afnámi verðtryggingar og
„raunverulegum úrræðum vegna
myntkörfulána og stökkbreyttum
höfuðstól húsnæðislána“, segir þess-
ar fullyrðingar alrangar. „Við erum
í minnihluta stjórnar og ef þetta
væri satt þá værum við valdamesti
minnihluti sem sögur fara af,“ segir
Ragnar sem segir gagnrýni þeirra
aðallega ganga út á úrræðaleysi
stjórnarinnar til að taka á hags-
munamálum launþega, formaðurinn
og stjórnin „hangi í pilsfaldi ASÍ“ og
geti ekki tekið ákvarðanir um mik-
ilvæg mál.
Meirihluti stjórnarinnar sam-
þykkti ályktun á stjórnarfundi í
gær þar sem meðal annars er full-
yrt að minnihlutinn virðist hafa það
markmið að „sundra samstöðu laun-
þegahreyfingarinnar og samstarfi
hennar við stjórnvöld, sveitarfélög
og atvinnurekendur um aðgerðir í
efnahagsmálum, atvinnumálum og
málefnum heimilanna.“
Illdeilur innan stjórnar VR draga úr styrk hreyfingarinnar segir formaðurinn:
Fylkingar í stjórn VR deila hart
Meirihluti stjórnar VR gagnrýnir tengsl
þremenninganna Bjarka Steingríms-
sonar, Guðrúnar Jóhönnu Ólafsdóttur
og Ragnars Þórs Ingólfssonar við
samtökin Nýtt ísland í ályktun sem
samþykkt var í gær: „Meirihluti stjórn-
ar VR harmar að nokkrir stjórnarmenn
í félaginu tengist samtökum sem
virðast m.a. hafa það á stefnuskrá
sinni að leggja niður Alþingi Íslend-
inga. Samtök þessi, Nýtt Ísland, voru
stofnuð í tengslum við kosningar í
VR á síðasta ári en beina nú kröftum
sínum að því að brjóta félagið niður,“
segir meðal annars í ályktuninni.
Ragnar sagðist í samtali við Frétta-
blaðið ekki tengjast Nýju Íslandi
formlega, hann væri sammála mörg-
um málefnum samtakanna en ekki
öllum. Þess má geta að samþykkt var
vantrauststillaga á Bjarka í desember
en hann var varaformaður félagsins.
GAGNRÝNA TENGSL VIÐ NÝTT ÍSLAND
Kristinn segir aðferðir minnihlut-
ans vafasamar, hann hafi reynt að
gera starf stjórnarinnar tortryggi-
legt á allan máta, meðal annars í
fjölmiðlum, sem betur fer sé starfs-
fólk VR mjög hæft og þjónustan við
félagsmenn eftir sem áður til fyrir-
myndar. - sbt
KJÖRKASSINN