Fréttablaðið - 30.01.2010, Side 8
8 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
1 Hvað heitir bankamálaráð-
herra Bretlands?
2 Hvað heitir fyrirtæki þing-
mannsins Ásbjörns Óttarssonar,
sem hann þáði arð frá þrátt fyr-
ir neikvætt eigið fé árið 2006?
3 Hvaða fyrrverandi lands-
liðsmaður í handbolta er faðir
Arnórs Atlasonar, hetju Íslands
í leiknum gegn Noregi?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58
DÓMSMÁL Karlmaður á fertugsaldri
hefur verið dæmdur í tólf mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
áreita unga stúlku ítrekað kynferð-
islega með lostugum og ósiðlegum
samskiptum á netinu. Einnig að
reyna að fá stúlkuna, sem var þá
þrettán ára, til að hafa kynferðis-
mök við sig.
Lögreglan notaði tálbeitu til að
handsama manninn.
Maðurinn var handtekinn í maí
á síðasta ári en hann hafði verið
í msn-samskiptum við stúlkuna.
Hann klæmdist gróflega við hana
og reyndi að fá að hitta hana. Móðir
stúlkunnar komst að samskipt-
um dóttur sinnar við manninn og
lét lögregluna vita. Ekki reyndist
unnt að rekja IP-tölur vegna þess-
ara samskipta, svo lögreglukona
skráði sig inn á forritið undir nafni
stúlkunnar og þóttist vera hún.
Eftir nokkur samskipti ákváðu
þau að hittast við sundlaug. Þang-
að kom maðurinn í þeim tilgangi
að hafa við stúlkuna kynferðisleg
samskipti.
Lögreglan var fyrir á staðnum
og handtók manninn þegar hann
mætti á vettvang.
Dómurinn taldi aðferðir lögreglu
við að nota tálbeitu til að ná mann-
inum löglegar. Hann var dæmdur
til að greiða stúlkunni 150 þúsund
krónur í miskabætur. - jss
Karlmaður á fertugsaldri dæmdur fyrir áreiti gegn þrettán ára stúlku:
Tálbeita notuð til að ná níðingi
SAMSKIPTI Á NETINU Ekki reyndist unnt
að rekja IP-tölu mannsins. MYND ÚR SAFNI
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
5.000 umslög af heppilegri stærð.
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
Hjartamiðstöðin
Tilkynning – Lung
nalæ
knar
Hef opnað læknastofu í Hjartamiðstöðinni,
Holtasmára 1, 6. hæð í Kópavogi.
Tímapantanir eru í síma 550 3030 eða á
www.hjartamidstodin.is
Holtasmára 1 • 6. hæð • 201 Kópavogi • Sími 550 3030 • www.hjartamidstodin.is
Magdalena Ásgeirsdóttir
lungnalæknir
FJÖLMIÐAR Af 175 milljónum krónum
sem Ríkisútvarpið varði til kaupa
á sjónvarpsefni frá sjálfstæðum
framleiðendum á síðasta rekstrar-
ári var 67 milljónum króna varið í
talsetningu á barnaefni.
Kvikmyndagerðarmenn óskuðu
eftir upplýsingum frá RÚV yfir
aðkeypt sjónvarpsefni frá sjálfstæð-
um framleiðendum frá því að þjón-
ustusamningur RÚV og mennta-
málaráðuneytisins tók gildi árið
2007. Fyrir helgi barst þeim listi
yfir aðkeypt efni rekstrarárið 2008
til 2009. Ari Kristinsson, formaður
Sambands íslenskra kvikmynda-
framleiðenda, segir þeim lista aftur
á móti ábótavant; hvorki sé tekið
fram hversu mikið var greitt fyrir
hverja mynd né hver framleiðandi
myndarinnar er. Ari segir að kvik-
myndargerðarmenn hafi óskað eftir
ítarlegri upplýsingum frá RÚV og
fengið vilyrði frá útvarpsstjóra um
að þær yrðu veittar.
Í upplýsingunum fyrir síðastlið-
ið rekstrarár kemur aftur á móti
fram að heildarfjárhæðin sem RÚV
varði til kaupa á sjónvarpsefni frá
sjálfstæðum framleiðendum sé 175
milljónir króna. Af því hafi 67 millj-
ónir verið greiddar fyrir talsetn-
ingu á barnaefni.
Þetta telur Ari brjóta í bága við
þjónustusamninginn, þar sem tal-
setning á erlendu barnaefni geti
ekki talist til nýsköpunar í inn-
lendri dagskrárgerð. Undir það
tekur Hjálmtýr Heiðdal, formaður
Félags kvikmyndargerðarmanna.
„Í samningnum stendur að RÚV
skuli gerast kaupandi eða meðfram-
leiðandi að leiknu sjónvarpsefni,
kvikmyndum, heimildarmyndum
eða öðru sjónvarpsefni og verja til
Talsetning barnaefnis
skráð sem nýsköpun
Kvikmyndagerðarmenn segja RÚV brjóta þjónustusamning með því að flokka
talsetningu á barnaefni sem kaup á sjónvarpsefni frá sjálfstæðum framleiðend-
um. RÚV greiddi 67 milljónir fyrir talsetningu á síðastliðnu rekstrarári.
FRÁ RÚV Kvikmyndagerðarmenn hafa óskað eftir ítarlegri upplýsingum frá RÚV
um aðkeypt sjónvarpsefni og fengið vilyrði um að þær yrðu veittar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nýsköpun í dagskrárgerð
RÚV skal vera vettvangur nýsköpunar
í dagskrárgerð. RÚV skal styrkja og
efla sjónvarpsþátta-, kvikmynda- og
heimildarmyndagerð með því að
kaupa og sýna efni frá sjálfstæðum
framleiðendum. Með hugtakinu
sjálfstæður framleiðandi er átt við
fyrirtæki sem er sjálfstæður lögaðili
aðskilinn frá útvarpsfyrirtækinu og
hefur frelsi til að skilgreina sína
eigin viðskiptastefnu, þar með talið
það sem lýtur að vinnu fyrir aðra en
útvarpsfyrirtækið sjálft. RÚV skal ger-
ast kaupandi eða meðframleiðandi
að leiknu sjónvarpsefni, kvikmyndum,
heimildarmyndum eða öðru sjón-
varpsefni og verja til þess að lágmarki
150 millj. kr. á ári frá og með árinu
2008. Árið 2009 hækkar upphæðin í
200 millj. kr. og verður við lok samn-
ingstímabilsins 250 millj. kr.
ÚR ÞJÓNUSTUSAMNINGI RÚV OG
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTISINS
þess ákveðinni upphæð. Talsetning
á barnaefni fellur ekki undir þetta;
hljóðsetning er þjónusta við einn
þátt kvikmyndagerðar og fram-
leiðslu sjónvarpsefnis. Þar af leið-
andi detta þessar 67 milljónir út
fyrir rammann.“
Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri RÚV, er ósammála
og segir talsetningu á barnaefni
eiga heima undir þessum lið. „Eðli
málsins samkvæmt geta skoðanir
verið skiptar um þessa flokkun en
ekki má gleyma að fjölmargir fag-
menn koma að talsetningu barna-
efnis, til dæmis þýðendur, leikstjór-
ar, leikarar, tæknimenn og fleiri.
Sérþekking og samhæfing á þessu
sviði skiptir miklu máli og þessi
þjónusta er keypt frá sjálfstæðum
framleiðanda.“
bergsteinn@frettabladid.is
PERÚ, AP Hátt í átta hundruð ferða-
menn biðu þess í gær að vera
bjargað frá Machu Picchu, hinum
fornu borgarrústum Inka í Perú.
Þessi vinsæli ferðamannastað-
ur lokaðist af í flóðum og skriðu-
föllum um síðustu helgi. Síðan þá
hefur þurft að bjarga meira en
2.500 ferðamönnum, sem urðu
þar innlyksa.
Stjórnvöld hafa sent þyrlur til
að flytja fólkið burt í smáhópum.
Reiknað er með að ferðamanna-
staðurinn verði lokaður næstu
vikurnar meðan verið er að gera
við eina veginn þangað.
Fjögur þúsund manna þorp þar
hjá, Machu Picchu Pueblo, verður
einnig einangrað þennan tíma.
- gb
Ríflega þrjú þúsund manns strandaglópar í Perú:
Þyrlur sendar að bjarga
fólki af Machu Picchu
BURT ÚR EINANGRUN Skriðuföll og flóð
lokuðu frægum ferðamannastað.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu stöðvaði þrjár
kannabisræktanir í fyrradag. Við
húsleit í bílskúr í Kópavogi fund-
ust tuttugu og fimm kannabis-
plöntur. Karlmaður á þrítugsaldri
játaði sök.
Við húsleit í Hafnarfirði fann
lögregla tuttugu kannabisplönt-
ur. Karlmaður á þrítugsaldri var
yfirheyrður í tengslum við rann-
sókn málsins.
Í íbúðarhúsi í Kópavogi fundust
fimmtán kannabisplöntur. Hús-
ráðandi, kona á þrítugsaldri, ját-
aði að eiga ræktunina.
Lögreglan minnir á fíkniefna-
símann 800-5005. - jss
Höfuðborgarsvæðið:
Þrjár ræktanir
voru stöðvaðar
VEISTU SVARIÐ?