Fréttablaðið - 30.01.2010, Síða 36

Fréttablaðið - 30.01.2010, Síða 36
MENNING 6 Græna duftið sem allir eru að tala um! Borgartún 24 – Hæðarsmára 6 – Hafnarborg s. 58 58 700 www.madurlifandi.is Fæst í verslunum Maður Lifandi PH-ion Green Alkalizing Superfood er kraftmikið næringarríkt grænt duft sem hjálpar við að afeitra ristilinn og blóðið. Það inniheldur mikið af góðum vítamínum, steinefnum, ensýmum, söltum og snefilefnum, aminósýrum og andoxunarefnum. • Inniheldur sérlega stóran skammt af blaðgrænu • Hjálpar líkamanum að komast í jafnvægi og verða basískari • Hreinsar blóðið og viðheldur réttu sýrustigi í líkamanum • Dregur úr streitu, styrkir ónæmiskerfið og eykur orku • Kemur jafnvægi á blóðsykurinn, meltinguna og sýrustigið í þörmunum Maður Lifandi veitir faglega ráðgjöf varðandi hreins anir, erum með ýmsar lausnir fyrir þig. Frábær tilboð í verslunum okkar á ýmsum detox-vörum. Komið aftur í verslanir þessari áskorun. Og veit að við náðum betri árangri en við hefð- um gert með filmu. Ég er sann- færður um að ég eigi aldrei aftur eftir að nota filmu.” Þegar stafrænni tækni fór að fleygja fram vissi Ari að dagar filmunnar væru taldir, og hans sjálfs líka sem kvikmyndagerðar- manns, ef hann breyttist ekki í takt við tímann. „Ég gerði mér alveg grein fyrir því, þegar vídeó- ið hætti að vera analog og fór að vera stafrænt, að annaðhvort yrði ég að hætta í bransanum eða taka stafræna stökkið. Það var alveg ljóst að ég ætti ekki nema tvö, þrjú ár eftir ef ég ætlaði að deyja með filmunni.“ Lán íslenskrar kvikmyndagerðar Í Hollywood er samt mest allt enn þá tekið á filmu og svo yfirfært á stafræna formatið. Að sleppa við filmuna er hins vegar mun ódýr- ara. Raunar segir Ari það mikið lán fyrir íslenska kvikmyndagerð að stafræna byltingin hafi átt sér stað, að mestu leyti, fyrir hrunið. „Ef þetta stafræna format hefði ekki komið fyrir hrun hefðu engar íslenskar kvikmyndir farið af stað á síðasta ári. Filma sem áður kost- aði 8 milljónir kostar í dag 16 millj- ónir og vinnslan á henni er rándýr og þarf að fara fram í útlöndum. Nú fer öll vinnsla fram hér heima í íslenskum krónum.“ Ýmsar rómantískar hugmynd- ir tengjast samt filmunni og ferð hennar í gegnum sýningarvélarn- ar, sem áhorfendur urðu varir við í bíósölunum í gamla daga. Þeir töldu jafnvel mikilvægan hluta af bíóferðinni að verða varir við að rispuð filman hristist dálítið. „Já, það eru margir sem hafa upplifað sínar sterkustu tilfinningar í bíói. Og þá eru rispurnar og allt þetta hluti af þessu stórkostlega augna- bliki. Það er heil kynslóð sem hefur ákveðna rómantíska tilfinn- ingu fyrir því. En þetta á ekki við um kynslóðina sem er alin upp við flatskjái og stafrænar bíómynd- ir. En kvikmyndin sem slík hefur engar tilfinningar. Einu tilfinning- arnar í þessu máli eru þær tilfinn- ingar sem myndast í hjarta áhorf- enda á meðan þeir upplifa myndina og þann sérstaka heim sem búinn hefur verið til.” Lesendum með rómantískar hugmyndir um rispaðar filmur má benda á að þótt Mamma Gógó sé á stafrænu formati er hún líka sýnd í sölum sem eru ekki komn- ar með stafrænar sýningarvélar. Þar getur fólk enn séð rispurnar og hristinginn ef það vill. Hlýr heimur Mömmu Gógó Mamma Gógó er síðasta myndin í trílógíu sem byggist á fjölskyldu Friðriks Þórs Friðrikssonar leik- stjóra. Ari sá um tökur fyrir þær allar. Sú fyrsta, Börn náttúrunnar, byggir á sögu föður Friðriks en hún hlaut útnefningu til Óskars- verðlauna. Önnur myndin var Bíódagar, sem er nokkurs konar uppvaxtarsaga Friðriks sjálfs. Mamma Gógó er svo saga Friðriks og sambands hans við móður sína. Hlý og notaleg stemning einkenn- ir myndina, sem gerir hana í senn rómantíska og nostalgíska, áhrif sem þeir Friðrik og Ari lögðu mikið upp úr að ná fram. „Við vild- um halda stemningunni úr Bíódög- um og Börnum náttúrunnar, en hafa heiminn allan sérstaklega fallegan og hlýjan. Mamma Gógó er að hverfa út úr þessum heimi og missa sambandið við hann. Með heiminn svona fallegan varð miklu harmrænna að hún væri að fara, heldur en ef heimurinn væri kald- ur og vondur. Það virkar líka sterkt á fólk að Gunnar Eyjólfsson leikur á móti henni, en þau léku líka saman í 79 á stöðinni. Það eykur á dapurleikann að sjá myndir af henni svona ungri og fallegri. Þá fer ungt fólk að hugsa: „Þetta er ekki bara gömul kona! Þetta er kona sem var einhvern tímann ung líka!“ Ofalda risaeðlan Ari er formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda og hefur á þeim vettvangi bland- ast inn í umræður undangenginna daga um aðför RÚV að íslenskri kvikmyndagerð. Sjálfur segir hann sér ekki hafa verið brugðið, enda langt síðan stofnunin hafi minnkað verulega kaup á íslensk- um kvikmyndum. „Hugmyndin var greinilega að hóta að skera okkur niður, svo við færum að væla út meiri pening fyrir þá,” segir hann. „Réttlæting á tilvist Ríkisútvarpsins, sem kemur meðal annars í EES-samningnum, er að við megum mismuna útvarps- og sjónvarpsstöðvum með því að láta þær hafa skattpeninga, gegn því að þær séu að sinna ákveðnum menningarlegum hlutum, á tungu- máli þjóðarinnar. Það á ekki að Sumir segja að það versta sem til er sé að vinna með börnum og dýrum. En ef þú skilur ekki börn og dýr, hvernig í ósköpunum heldurðu að þú getir þá skilið fullorðið fólk? FRAMHALD AF FORSÍÐU Ari Kristinsson kvikmyndagerðarmaður: „Aðalatriðið í kvikmyndatöku er að mynda fólk sem manneskjur en ekki sem hluti. Skynja hvers ko mikilvægara; að þekkja persónuna sem verið er að túlka og heiminn sem kvikmyndin gerist í. Það er ekki hægt að fara á tökustað og sveifla fangað tökustaðinn og tilfinningar leikaranna.“ Kvikmyndataka: Mamma Gógó (2010) Myrkrahöfðinginn (1999) Djöflaeyjan (1996) Á köldum klaka (1995) Bíódagar (1994) Börn náttúrunnar (1991) Magnús (1989) Skytturnar (1987) Nýtt, Dala- og Löggulíf (1983-1985) Með allt á hreinu (1982) Rokk í Reykjavík (1982) Eldsmiðurinn (1981) Handrit og leikstjórn Duggholufólkið (2007) Stikkfrí (1997) Pappírs Pési (1990) Nokkrar af myndum Ara Bíódagar Ari var við my náttúrunnar, Bíódögum Við tökur á Mömmu Gógó Á myndinni má auk Ara meðal annars sjá aðalleikarann Hilmi Snæ Guðnason og leikstjórann Friðrik Þór Friðriksson. Úr Duggholufólkinu Ari framleiddi, skrifaði handritið og leikstýrði barnamyndinni Duggholufólkinu sem kom út árið 2007.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.