Fréttablaðið - 30.01.2010, Side 37
Komdu og skoðaðu það nýjasta í hönnun
og tækni heyrnartækja.
Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrnarfræðingur
verður með fyrirlestur: Hvað ræður vali heyrnartækja?
Fyrirlesturinn verður haldinn kl 11:00 , 14:00 og 17:00
Gestum fyrirlestranna er boðið upp á að skrá sig
í fría heyrnarmælingu
Opið hús
verður þriðjudaginn 2. febrúar
hjá Heyrn í Hlíðasmára 11.
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur - heyrn.is
Tímapantanir 534 9600
* Heyrnarþjónusta
* Heyrnarvernd
* Heyrnarmælingar
* Heyrnartæki
* Ráðgjöf
Ellisif K. Björnsdóttir
heyrnar fræðingur
with Surround sound
EKKI SPILLIR VERÐIÐ
20% TÍMABUNDINN AFSLÁTTUR
NÝJA LÍNAN frá
Hvítur 119.900 Stál 159.900
Skápur sem margir hafa beðið eftir, stór
233 ltr. kælir að ofan og góður 54 ltr. frystir.
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Þegar þessar línur birtast er
Kristín Anna væntanlega komin
út til Heidelberg í Þýskalandi en
eftirfarandi samtal átti sér stað
fyrir fáum dögum þegar hún var
nýkomin úr líkamsrækt í World
Class. Ævintýrið var þá fram
undan. „Þannig er mál með vexti
að ég ætla að fara á fimmtudags-
morguninn til Frankfurt og þaðan
til Heidelberg til að hitta dótt-
ur mína, Soffíu Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur. Hún er að passa
barnabörnin sín svo dóttir henn-
ar, Kristín Soffía Þorsteinsdótt-
ir, geti verið í Vín í nokkra daga
að fylgjast með handboltanum.
Soffía Ingibjörg fór á sunnudag-
inn og ég ætla með annarri dótt-
ur minni, Ragnheiði Margréti, til
að hjálpa henni og halda henni
selskap. En auðvitað erum við
aðallega að fara til að skemmta
okkur!“
Kristín Anna kveðst hafa komið
tvisvar áður til Heidelberg. „Ég
kom þangað fyrst fyrir mörgum
árum og þótti afskaplega gaman.
Það er svo fallegt í Heidelberg,“
segir hún glaðlega. „Síðar kom
ég þangað aftur en stoppaði þá
stutt. Ég hef ekki enn heimsótt
Kristínu og Óla þangað, þau komu
þangað bara í sumar eftir fimm
ára búsetu á Spáni. Börnin eru
víst mjög ánægð enda fengu þau
góðan skóla.“
Nú er komið að því að fræð-
ast um nöfn og aldur langömmu-
barnanna í Heidelberg. „Þau heita
Helga Soffía, hún er ellefu ára,
drengurinn heitir Einar Þorsteinn
og er sjö ára og svo er það tveggja
ára dama, Stefanía Þóra. Það verð-
ur voða gaman að hitta krakkana
og við verðum varla mjög þrek-
aðar eftir pössun á þeim því það
er au-pair stúlka líka á heimilinu.
Það er svo mikið að gera við að
keyra börnin í skólana og sækja á
ólíkum tímum að au-pair er nauð-
synleg,“ segir Kristín Anna.
Þetta er helgarferð hjá Kristínu
Önnu því þær mæðgur þrjár ætla
að koma aftur heim á morgun. Þá
verður móðir barnanna komin
heim til þeirra. „Við verðum
búnar að spilla krökkunum eftir
bestu getu og kynnast Heidelberg
aðeins í vetrarbúningi, að minnsta
kosti að kíkja á kastalann,“ segir
Kristín Anna hress.
gun@frettabladid.is
Út að passa fyrir Óla Stef
Til þess að kona Ólafs Stefánssonar handboltakappa geti verið í Vín að styðja sinn mann hlaupa ættingj-
arnir undir bagga og sjá um börnin. Þeirra á meðal amma hennar, Kristín Anna Eggertsdóttir Claessen.
„Auðvitað erum við aðallega að fara til að skemmta okkur,“ viðurkennir Kristín Anna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLAN minnir fólk á að skilja ekki bíla sína eftir ólæsta og
í gangi. Nokkuð hefur verið um að bílum sé stolið á höfuðborg-
arsvæðinu. Einnig ítrekar hún að verðmæti séu ekki skilin eftir
í bílum eða að þau séu í það minnsta ekki í augsýn. GPS-tæki
og fartölvur virðast efst á óskalista þjófa um þessar mundir.
Þriðjudaga
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
Auglýsingasími
– Mest lesið
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni) - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-14
Skór & töskur
www.gabor.is
Gott úrval af götuskóm
frá Gabor Stærðir 35-44