Fréttablaðið - 30.01.2010, Page 38
30. janúar 2010 LAUGARDAGUR2
Vinsældir sólgleraugna urðu töluverðar í upphafi
tuttugustu aldar. Voru það helst stjörnur þöglu kvik-
myndanna sem skörtuðu þeim. Ástæðan er talin vera
sú að oft urðu augu fólks
rauð á myndum vegna
lélegrar ljósmyndatækni
þess tíma.
www.wikipedia.org
Talið er að 50 prósent barna á
blindrastofnunum í Afríku gætu lesið
að einhverju leyti ef þau fengju gler-
augu. Í Afríku geta gleraugu kostað sem
jafngildir þremur mánaðarlaunum.
http://earth911.com
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Optic Reykjavík ehf. S: 552 2002 Ham .kvR501snisgaléfardnilBisúH71ílhar
Gleraugu fyrir alla
Gleraugu Linsur Stækkunargler Sólgleraugu
Dagslinsur
2490.-
Við
mælum
sjónina
þína
„Það er dálítill munur að velja gler-
augu á barn eða fullorðinn,“ segir
Kjartan Bragi Kristjánsson, sjón-
fræðingur og eigandi Optical Stu-
dio í Smáralind. „Þegar ég veiti
ráð við val á umgjörð á barn legg
ég áherslu á að andlit barnsins fái
að njóta sín og að umgjörðin trufli
sem minnst náttúrulegt útlit þess.
Að markaðssetja barnagleraugu
með tilvísun í Harry Potter eða
Barbie ætti ekki að ráða valinu,
slíkt á ekki við.“
Kjartan segir að fremur skuli
huga að einfaldleika, þyngd, end-
ingu og sveigjanleika umgjarðanna.
„Umgjarðir frá Lindberg, sem er
dönsk framleiðsla, eru að mínu
mati þróuðustu barnaumgjarðirn-
ar á markaðnum í dag. Ef miðað er
við þyngd sex ára barns eru þær
aðeins um 0,01 prósent af þyngd
barnsins. Þeim fylgir þriggja ára
ábyrgð sem segir ef til vill meira
en mörg orð,“ segir Kjartan sem
vill benda fólki á að sjóngler í gler-
augum og umgjarðir þróist eins og
önnur tækni og því ætti fólk að vera
opið fyrir nýjungum.
Ívar Torfason er sjóntækja-
fræðingur í gleraugnaversluninni
Augastað á Bíldshöfða sem er ein
af fimm verslunum í keðjunni.
Hann segir mikilvægt að gæta
þess við val á barnagleraugum að
þau falli vel að andlitslagi barns-
ins, spang irnar sitji vel fyrir aftan
eyru og rétt á nefinu. „Gleraugun
verða að þola nokkurt hnjask því
börn eru flest mikið á ferðinni. Við
í Augastað bjóðum meðal annars
upp á umgjarðir frá Easy Twist,
sem njóta mikilla vinsælda meðal
barna og foreldra. Þær hafa einn-
ig reynst mjög vel og ég mæli því
hiklaust með þeim. Umgjarðirn-
ar eru með fjöðrun og hægt er að
beygja þær og sveigja sem er mik-
ilvægur eiginleiki og ekki spillir
verðið.“
Ívar segir enga eina tískubylgju
í gangi. „Börnin hafa sínar skoð-
anir og það er vert að hlusta á
þær því þau eru verðandi notend-
ur. Sumir vilja hlutlausa liti en
aðrir velja litríkari gleraugu. Það
er eins misjafnt og þau eru mörg.“
- uhj
Að velja gler-
augu fyrir börn
Flestir vilja það besta fyrir barnið sitt. Gleraugu eru þar ekki und-
anskilin en það er kúnst að velja það besta og því ætti að leita til
fagmanna og fá leiðbeiningar.
„Gleraugun verða að þola nokkurt hnjask því börn eru flest mikið á ferðinni,“ segir
Ívar Torfason sjóntækjafræðingur hjá Augastað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þegar ég veiti ráð við val á umgjörð á barn legg ég áherslu að andlit barnsins fái að
njóta sín,“ segir Kjartan Bragi Kjartansson sjónfræðingur og eigandi Optical Studio.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍTALINN SALVINO D’ARMATE er talinn hafa
fundið upp fyrstu gleraugun árið 1284. Fyrsta málverk-
ið af gleraugum er eftir Tomaso da Modena sem hann
málaði af kardinálanum Hugh de Provenc árið 1352.