Fréttablaðið - 30.01.2010, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 30. janúar 2010 3
Sparaðu og kauptu
daglinsur í Augastað
Daglinsu
r • Afslá
ttarkort
Frír
linsupakk
i
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
50%
afsláttur
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
•
1
0
0
3
0
4
Mjóddinni • Höfða • Firði • Akureyri • Selfossi
Gleraugnaverslunin þín
25%
TILBOÐ
AF BÆÐI
GLERJUM OG
UMGJÖRÐUM
AFSLÁTTUR
Gildir ekki með öðrum tilboðum eða afsláttum.
Tilboðið gildir til 6. febrúar.
Á vefsíðunni www.kreppugler.
is má finna gleraugu á góðu
verði sem þó eru sérsmíðuð eftir
þeirri forskrift sem læknir gefur.
Netverslunin er einstaklingsfram-
tak Hrafnkels Freys Magnússon-
ar en að hans sögn nær hann góðu
verði með því að halda versluninni
einungis úti á Netinu og svo pant-
ar hann gleraugun beint frá fram-
leiðanda í Kína, án milliliða. Gæði
glerjanna eru þó sambærileg og í
öðrum gleraugnaverslunum að
sögn Hrafnkels, 1,57 index, en
aðalástæðan fyrir því að gleraug-
un eru svona ódýr er að Kreppu-
gler selur ekki merkjavöru.
„Þetta byrjaði allt með því að
ég var að leita að ódýrum gler-
augum fyrir lítinn frænda minn
sem á það til að brjóta sín og móð-
irin var orðin þreytt á því að þurfa
alltaf að vera að kaupa ný og ný
gleraugu þegar þau kosta líka sitt.
Í kjölfarið pantaði ég fyrir sjálf-
an mig og svo fjölskyldu og nán-
ustu vini og þannig vatt þetta upp
á sig,“ segir Hrafnkell sem notaði
tölvukunnáttu sína og hannaði net-
verslun.
Pantanir á síðunni eru staðfest-
ar með því að borga fyrir gler-
augun í heimabankanum en til að
halda verðinu niðri eru engin gler-
augu geymd á lager heldur eru þau
öll smíðuð eftir pöntun jafnóðum.
Nokkurra vikna bið er því eftir
gleraugunum og algengt að hún
sé þrjár vikur.
„Þar sem ekki er hægt að máta
umgjarðir áður er mælt með því
að áður en fólk pantar gleraugu
að það mæli gleraugun sem það
á fyrir, eða gleraugu sem passa
því vel. Mikilvægast er að mæla
breiddina og það sem skiptir
mestu máli,“ segir Hrafnkell.
Annað og meira er gert til að
halda verðinu niðri og því tekur
fyrirtækið ekki við kreditkort-
um þar sem slíkt felur í sér auk-
inn kostnað. Einnig eru hlutar á
heimasíðunni á ensku, nokkrar
lýsingar á gleraugum, til að spara
vinnukostnað við þýðingar. Fólki
er bent á liðinn „Spurt og svarað“
á heimasíðu Kreppuglers til að
kynna sér pöntunarleiðbeiningar
betur. - jma
Öll ráð notuð til að
halda verðinu niðri
Hrafnkell Freyr Magnússon er tölvunar-
fræðingur sem ofbauð verð á gleraug-
um hérlendis og ákvað að athuga hvort
hann gæti gert eitthvað í málunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Gleraugnalína Gunnars Gunn-
arssonar, Reykjavík Eyes, hefur
vakið mikla athygli erlendis
undanfarið en Gunnar prýddi ný-
lega forsíðu tímaritsins Optiker
í Svíþjóð.
Augað í Kringlunni selur gler-
augu Reykjavík Eyes hérlendis
og María Hlín Sigurðardóttir hjá
versluninni segir gleraugun vera
vinsælustu gleraugu fyrirtækis-
ins. „Fólki þykja þau afar þægi-
leg vegna þess hve létt þau eru og
fyrir marga sem gengið hafa með
gleraugu í tugi ára er þetta mikil
bylting,“ segir María. „Fólk segir
að gleraugun hreyfist ekkert og
einnig eru þau lítið áberandi en
samt með flottan stíl.“
Umgjörðin er búin til með tækni
sem á sér enga hliðstæðu í heim-
inum en umgjörðin er skorin út
í heilu lagi úr þunnri títanplötu.
Engin samskeyti eru því á gleraug-
unum. Hönnuður gleraugnalínunn-
ar mun sýna níu nýjar gerðir af
gleraugum í vor á gleraugnasýn-
ingu í Mílanó en gleraugun hafa
vakið mikla athygli erlendis að
sögn Maríu og eru nú seld í Dan-
mörku, Svíþjóð, Bretlandi, Þýska-
landi og Sviss og eru jafnvel á leið-
inni til Hong Kong.
„Markaðurinn er alltaf að
stækka en síðasta sýning sem
þau voru á var Silmo-sýningin í
París en í kjölfarið var stór grein
í sænska blaðinu Optiker í Svíþjóð
þar sem Gunnar sjálfur prýddi for-
síðuna. Við erum því mjög bjart-
sýn á erlenda markaðinn.“
- jma
Bjartsýn á markað-
inn erlendis
Reykjavík Eyes eru vinsælustu gleraugun
í Auganu.
Samskeytalaus umgjörðin er skorin út í
heilu lagi úr títanplötu og er því án allra
lama og skrúfa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Gunnar Gunnarsson sjóntækjafræðingur er hönnuður Reykjavík Eyes-gleraugnalín-
unnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN