Fréttablaðið - 30.01.2010, Page 41

Fréttablaðið - 30.01.2010, Page 41
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 Hefur þú áhuga á að starfa við hjálparstörf erlendis? Rauði kross Íslands auglýsir eftir umsóknum um þátttöku í sendifulltrúanámskeiði félagsins. Námskeiðið er tvíþætt og fer fyrri hluti þess fram á netinu en seinni hlutinn verður haldinn í Munaðarnesi 21. – 26. mars næstkomandi. Alls verða 25 umsækjendur valdir inn á námskeiðið en þátttaka í því er forsenda þess að geta starfað sem sendifulltrúi Rauða kross Íslands á alþjóðavettvangi en veitir þó ekki tryggingu fyrir slíku starfi. Sendifulltrúanámskeið Rauða krossins Þátttökuskilyrði eru m.a. fagmenntun og minnst þriggja til fimm ára starfsreynsla í viðkomandi fagi eftir nám. Mjög góðrar enskukunnáttu í töluðu og skrifuðu máli er krafist en mikill kostur er ef umsækjandi hefur góð tök á frönsku og /eða arabísku og /eða spænsku. Rauði kross Íslands leitar sérstaklega að sérfræðingum á sviði heilbrigðis og verkfræði sem gætu starfað með Alþjóða Rauða krossinum í kjölfar náttúruhamfara og/eða á átakasvæðum en einnig frönskumælandi fólki með háskólamenntun á sviði lögfræði eða mannréttinda til að starfa að vernd almennings á átakasvæðum. Reynsla af skýrsluskrifum, verkefna- og fjármálastjórnun er mikill kostur fyrir öll ofangreind störf sem og starfsreynsla á alþjóðavettvangi. Umsóknir berist með tölvupósti til Kristínar Ólafsdóttur verkefnisstjóra á alþjóðasviði Rauða kross Íslands (kristinolafs@redcross.is) fyrir 10. febrúar næstkomandi. Umsækjendur er vinsamlegast beðnir um að nota staðlað umsóknareyðublað sem er að finna á heimasíðu Rauða krossins www.raudikrossinn.is en þar er einnig að finna nánari upplýsingar um námskeiðið og þátttökuskilyrði. Öllum umsóknum verður svarað. Já leitar að góðum verkefnastjóra sem á auðvelt með að koma fram í sjónvarpi og vill taka þátt í því að hjálpa til við jákvæð verkefni á næstu mánuðum. Við leitum að bjartsýnni og jákvæðri keppnismanneskju sem vill hafa áhrif og hjálpa öðrum. Við leitum að aðila sem er hamingjusamur, skemmtilegur og áreiðanlegur. Verkefnastjórinn þarf að búa yfir almennri þekkingu á þjónustu Já og kunna að nota Símaskrána, Já 118 og Já.is. Er ég að leita að þér? Umsóknarfrestur rennur út 8. febrúar 2010. Umsækjendur eru beðnir um að senda inn umsókn ásamt ferilskrá á netfangið gunnarth@ja.is. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Thorberg Sigurðsson í síma 864 4123.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.