Fréttablaðið - 30.01.2010, Side 81

Fréttablaðið - 30.01.2010, Side 81
LAUGARDAGUR 30. janúar 2010 53 HANDBOLTI Þótt hvert mark sem íslensku landsliðsmennirnir skora á Evrópumótinu í Austur- ríki telji bara sem eitt mark er mikilvægi þeirra sumra kannski aðeins meira þegar kemur að því að hafa áhrif á úrslitastundum leikjanna. Fréttablaðið hefur nú skoð- að kringumstæðurnar á bak við mörk íslenska liðsins, hverj- ir skora þegar við erum undir, hverjir skora þegar spennan er mest í leikjunum og hver hefur oftast komið okkur yfir. Fyrst ber að nefna mörk skoruð í mótlæti, það er þegar íslenska liðið er undir í sínum leikjum. Ísland hefur alls skorað 25 mörk þegar liðið er undir og það eru þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Alexander Petersson sem hafa skorað flest eða fimm. Tvö mörk Snorra hafa komið úr vítum. Þeir Arnór Atlason og Ólafur Stefáns- son hafa báðir átt fimm stoðsend- ingar þegar liðið er undir. Ólafur Stefánsson hefur skorað flest mörk þegar spennan er mest í leikjunum en það er þegar mun- urinn er ekki meira en eitt mark á liðunum. Ólafur hefur skorað 13 mörk við þær aðstæður auk þess að gefa 8 stoðsendingar á félaga sína. Róbert Gunnarsson kemur næstur með 12 mörk og Snorri Steinn Guðjónsson hefur skorað 11 mörk. Ólafur Stefánsson hefur oftast komið íslenska liðinu yfir á mót- inu eða alls sjö sinnum auk þess að leggja upp fjögur önnur mörk sem hafa komið liðinu yfir. - óój Fréttablaðið skoðar kringumstæðurnar á bak við mörk íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í Austurríki: Alexander og Snorri skora mest í mótlæti MIKILVÆG MÖRK MÖRK Í MÓTLÆTI: (Stoðsendingar innan sviga) Snorri Steinn Guðjónsson 5 (1) Alexander Petersson 5 (0) Guðjón Valur Sigurðsson 4 (1) Ólafur Stefánsson 4 (5) Róbert Gunnarsson 4 (0) Arnór Atlason 3 (5) MÖRK Í SPENNU: (Stoðsendingar innan sviga) Ólafur Stefánsson 13 (8) Róbert Gunnarsson 2 (1) Snorri Steinn Guðjónsson 11 (2) Guðjón Valur Sigurðsson 9 (1) Alexander Petersson 8 (0) Arnór Atlason 4 (14) Vignir Svavarsson 1 (0) OFTAST KOMIÐ ÍSLANDI YFIR: (Stoðsendingar innan sviga) Ólafur Stefánsson 7 (4) Róbert Gunnarsson 6 (1) Guðjón Valur Sigurðsson 5 (0) Snorri Steinn Guðjónsson 4 (1) Arnór Atlason 2 (8) Alexander Petersson 2 (0) Vignir Svavarsson 1 (0) TRAUSTUR Alexander Petersson hefur reynst liðinu mikilvægur. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENE FÓTBOLTI Það er sannkallaður risa- slagur í enska boltanum á morg- un þegar Arsenal tekur á móti meisturum Man. Utd. United hefur verið að hiksta upp á síðkastið og Sir Alex Fergu- son, stjóri Man. Utd, segir að stöðugleiki sé lykillinn að því að vinna titilinn. „Miðað við hvernig deildin er að spilast er þessi leikur stærsti leikur ársins fyrir okkur. Arsen- al hefur sýnt mikinn stöðugleika upp á síðkastið og það er með ólíkindum hvernig deildin hefur verið að breytast,“ sagði Sir Alex. „Það lið sem mun hafa mesta stöðugleikann mun vinna deild- ina. Eins og stendur eru þrjú lið um hituna en hlutirnir hafa breyst svo oft að það er ekki hægt að slá neinu föstu.“ - hbg Sir Alex Ferguson: Þetta er stærsti leikur ársins SIR ALEX Bíður spenntur eftir leiknum á morgun. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Tottenham tilkynnti loks í gær að Eiður Smári Guð- johnsen væri orðinn leikmaður félagsins. Hann mun þó ekki spila með liðinu í dag þar sem Harry Redknapp, stjóri Spurs, ætlar að gefa honum meiri tíma til þess að komast inn í hlutina hjá félaginu. Gianfranco Zola, stjóri West Ham, var ekki kátur með sinn gamla félaga hjá Chelsea, Eið Smára, en hann var á leið til West Ham í upphafi vikunnar. „Þegar ég tala við fólk maður á mann þá ætlast ég til þess að það hagi sér á ákveðinn hátt – af virð- ingu. Það var ekki gert að þessu sinni en við höldum áfram og gleymum þessu máli,“ sagði Zola stuttur í spuna. - hbg Zola um Eið Smára: Hann sýndi enga virðingu LEIKIR HELGARINNAR Laugardagur: Birmingham - Tottenham Burnley - Chelsea Fulham - Aston Villa Hull - Wolves Liverpool - Bolton West Ham - Blackburn Wigan - Everton Sunnudagur: Arsenal - Man. Utd Man. City - Portsmouth Á MORGUN KL. 15:30 Toppbaráttan hefur sjaldan verið meira spennandi. Á morgun mætast Arsenal og Man. United en viðureignir þeirra eru þekktar fyrir rauð spjöld og hrikalega dramatík. Nú andar sérstaklega köldu á milli þessara gömlu erkifjenda því sigurvegari leiksins á möguleika á að ná toppsætinu. ÞAÐ ER ÓDÝRARA AÐ HORFA Á ENSKA BOLTANN HEIMA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.