Fréttablaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 20
12. febrúar 2010 FÖSTU- DAGUR2
Grand Hótel er eitt þeirra hótela
sem býður upp á sérstök rómantísk
tilboð í mat og gistingu í febrúar
en tilboðið er í gangi til 21. febrú-
ar, á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Fyrir pör verður í boði
gisting í „executive“ glæsiher-
bergi í turni hótelsins og í boði er
þriggja rétta máltíð þar sem Reyn-
ir Sigurðsson sér um lifandi tón-
list. Þá bíður óvæntur glaðningur
á herberginu og morgunverður er
innifalinn.
Á Hilton Reykjavík Nordica er
Valentínusartilboð í gangi sem
gildir aðeins þessa helgi en í pakk-
anum er meðal annars innifalinn
þriggja rétta kvöldverður á VOX
Bistro, morgunverður inn á her-
bergið og freyðivín og súkkulaði
við komu á hótelið. Auk þess er frír
aðgangur í Nordica Spa.
CenterHotel Arnarhvoli er á
rómantísku nótunum allan ársins
hring og hægt er að panta þar sér-
stakan rómantískan pakka. Tekið
er á móti gestum með rós og
handunnu súkkulaði og boðið
er upp á aðgang að heilsu-
lindinni; tyrknesu baði, potti
og gufu. Um kvöldið fá gestir
þriggja rétta óvæntan kvöldverð.
Á Hótel Borg og Hótel Sögu
er líka hægt að fá rómantíska
gistipakka með mat en Borgin
býður meðal annars upp á freyði-
vín við komu, ávaxtakörfu á her-
bergið og máltíð á veitingastaðnum
Silfri. Hótel Saga er þá með þemað
„Rómantísk saga“ en í pakkanum
er þriggja rétta máltíð á Grillinu
innifalin, morgunverður á her-
bergi og rómantísk gjöf.
juliam@frettabladid.is
Hótelrómantík í bænum
Mörg hótel hér í bæ bjóða upp á rómantískan gistipakka þessa helgi í tilefni Valentínusardagsins á
sunnudag. Rauð rós, lifandi tónlist og aðgangur að heilsulindum fylgja sumum pökkunum.
Súkku-
laði og
freyðvín
bíður gesta
við komu á
Hilton Reykjavík
Nordica þessa helgi.
Hótel Saga er
allan ársins
hring með
tilboðið „Róm-
antísk saga“ .
Hótel Borg er eitt
þeirra hótela sem
býður upp á rómant-
ískt þema.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
VALENTÍNUSARDAGURINN er á sunnudag-
inn. Þó ekki sé hefð fyrir því á Íslandi að halda mikið
upp á þann dag er ekki úr vegi að pör geri sér glaðan
dag, eldi góðan mat og skáli fyrir lífinu.
Valentínusardaginn má nýta til að
skerpa á rómantíkinni þótt best af
öllu sé að reyna að viðhalda henni
allt árið. Hér eru nokkrar tillögur um
hvernig megi vekja sofandi sjarmör
eða draumadís til lífs á ný:
1. Segið ástin mín eða elskan mín
eins oft og þið komið því við og hætt-
ið að kalla hvort annað mömmu eða
pabba. Notið skírnarnöfn.
2. Segið frá því hvað þið elskið í fari
hins. Talið um hvað það var sem heill-
aði ykkur í tilhugalífinu en síður um
hversu duglegur elskhuginn sé að
fara út með ruslið eða að kaupa inn.
3. Staldrið við í amstri dagsins og
horfist í augu.
4. Gefið ykkur tíma til að gera hluti
fyrir hvort annað. Leggið lykkju á leið
ykkar til að kaupa eitthvað sem mak-
ann langar í eða finnst sérstaklega
gott og komið honum á óvart.
5. Kaupið táknrænar gjafir sem
merkja eitthvað fyrir ykkur bæði.
6. Farið á stefnumót og leggið alveg
jafn mikið upp úr útlitinu og þið
voruð vön að gera í tilhugalífinu. - ve
Skerpt á ástinni
RÓMANTÍK GERIR LÍFIÐ
SKEMMTILEGRA.
Lengi er hægt að ylja sér við góðar
minningar.
KRINGLAN – SMÁRALIND
Valentínusartilboð
á dömu og herra nærfatnaði
S. 533 2009 S. 544 2006 20% afsláttur frá föstudegi–sunnudags