Fréttablaðið - 12.02.2010, Side 29
21:30 - 22:30
Ljóslitlífun – sýningarstjóraspjall. Hafþór Yngvason
safnstjóri Listasafns Reykjavíkur ræðir við gesti um
sýninguna.
22:30 – 23:30
Stilluppsteypa – tónleikar. Hljómsveitina skipa Helgi
Þórsson og Sigtryggur Berg Sigmarsson sem báðir
eiga verk á sýningunni Ljóslitlífun.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús, Tryggvagötu 17
Grafíksafn Íslands
19:00 - 24:00
Íslensk grafík. Soffía Sæmundsdóttir og Kristín
Gunnlaugsdóttir eru listamenn ársins hjá grafíkvinum
í félaginu Íslensk grafík. Kristín opnar sýningu í sal
félagsins og Soffía vinnur á verkstæðinu.
Grafíksafn Íslands, Tryggvagötu 17, hafnarmegin
SÍM
19:00 - 24:00
Sigríður Rut - Listamaður mánaðarins hjá SÍM
sýnir olíumálverk sem unnin eru á árunum 2001-
2008. Sigríður verður á staðnum og tekur á móti
gestum.
SÍM, Hafnarstræti 16
Landnámssýningin
20:00 - 21:00
Draumar í Sturlungu og draumarnir okkar.
Fyrirlestur Guðrúnar Nordal forstöðumanns stofnunar
Árna Magnússonar.
21:00 & 22:00 & 23:00
Leiðsögn um Landnámssýninguna.
Hvernig var lífið á Landnámsöld?
Landnámssýningin, Aðalstræti 16
Þjóðmenningarhúsið
19:00 - 24:00
Óþekktur höfundur - orðagjörningur.
Orð úr hundruðum lausavísna óþekktra höfunda
bíða gesta til notkunar. Dagskrárgerð: Þorvaldur
Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur.
21:00 - 22:00
Íslendingar. Nýopnuð sýning þeirra Sigurgeirs
Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur á ljósmyndum
úr samnefndri bók. Unnur spjallar við gesti og spilar á
nikkuna með harmónikutríóinu Dragspilsdrottningarnar.
19:00 - 24:00
Ísland::kvikmyndir. 11. skjárinn. Frumsýning.
Vínbar og gestakomur í samstarfi við
Kvikmyndamiðstöð Íslands.
22:30
Ólöf arnalds. Sólótónleikar.
Þjóðmenningarhús, Hverfisgötu 15
Þjóðskjalasafn Íslands
19:00 – 23:30
Einkaskjalasöfn. Áttu merkileg skjöl? Komdu og láttu
sérfræðinga Þjóðskjalasafns kanna gildi þeirra.
19:00 – 23:30
Gömul skrift. Reyndu að skrifa og lesa gamla skrift.
Verðlaunagetraun.
19:00 – 23:30
Kynning á manntalsvef og dómabókagrunni.
19:00 – 23:30
Kynning á ættfræðirannsóknum. Finndu forfeður
í kirkjubókum. Fáðu leiðsögn hjá sérfræðingum
safnsins.
19:00 – 23:30
Sýning á frumritum manntala frá árunum 1703
og 1762. Elstu manntöl á Norðurlöndum.
20:00 – 20:30
„...þegar aldurinn á færist og vitið eykst“
Gunnar Örn Hannesson fjallar um aðlögunarvanda
Hallgríms „litla“ Þorlákssonar að skólastarfinu í
Skálholti á 17. öld.
21:30 - 22:00
Ragnheiður Gröndal - íslensk vögguljóð.
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi
Hofsstaðir, minjagarður
20:45 – 21:15
Hofsstaðir - leiðsögn um minjagarðinn.
Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur verður
með leiðsögn. Reisulegur skáli stóð á Hofsstöðum frá
landnámsöld fram á 12. öld.
Hofsstaðir, Garðatorgi
Byggðasafn Hafnarfjarðar
20:00 - 20:30
Fornleifar í landi Óttarsstaða. Katrín Gunnarsdóttir,
fornleifafræðingur, heldur fyrirlestur um fornleifar í
landi Óttarsstaða sunnan Hafnarfjarðar.
21:00 - 21:30
Klassíski listdansskólinn. Nemendur í Klassíska
listdansskólanum sýna nútímaverk.
22:00 - 22:40
Leiðsögn um sýningu Byggðasafnsins. Safnverðir
leiða gesti í gegnum sögu Hafnarfjarðar og nágrennis
með leiðsögn um sýninguna „Þannig var...“
Byggðasafn Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8
Hafnarborg
19:00 – 19:30
Leiðsögn um Endalokin. Sagt frá sýningu Ragnars
Kjartanssonar sem var framlag Íslands til Feneyja
tvíæringsins 2009.
19:00 - 24:00
Opin listsmiðja fyrir alla fjölskylduna. Aðstaða fyrir
gesti til að teikna og spá í módelteikningu.
19:30 - 20:30
Styttuganga um miðbæinn. Gengið verður um
miðbæ Hafnarfjarðar og útilistaverkin á svæðinu
skoðuð með leiðsögn. Safnast saman við Bókasafn
Hafnarfjarðar, Standgötu 1.
20:00 – 20:30
Leiðsögn um Ljósbrot. Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
segir frá innsetningu sinni í Sverrissal.
20:30 - 21:30
Tríó dúó. Djass og ljúf tónlist, latin og gömul íslensk
dægurlög í flutningi ungra tónlistarkvenna.
21:00 – 22:00
Á bak við tjöldin. Gestir fá tækifæri til að skyggnast
á bakvið tjöldin í Hafnarborg og skoða geymslur
safnsins. Hámark 10 gestir í einu.
21:30 – 22:30
Hvað segir módelið? Páll Haukur Björnsson sem
sat fyrir hjá Ragnari Kjartanssyni í Feneyjum segir
frá sýningunni og upplifuninni af því að vera hluti af
listaverki í sex mánuði.
Hafnarborg, Strandgata 34
Bókasafn Hafnarfjarðar
19:00 - 24:00
Drekar af ýmsum gerðum. Sýning á drekum. Hver
öðrum ógurlegri.
19:00 - 24:00
Drekar og forynjur. Vakin athygli á úrvali bóka um
dreka, risaeðlur og fleiri forynjur. Skemmtileg spil af
ýmsum gerðum liggja frammi fyrir börnin.
19:00 – 24:00
Hafnfirsk tónlist hljómar á tónlistardeild.
20:00 - 22:00
Forvarsla gamalla skjala. Starfsmenn
Þjóðskjalasafns sýna hreinsun gamalla skjala.
21:00 – 21:30
Fyrsti íslenski raðmorðinginn? Ólafur Ásgeirsson
fjallar um hinn þekkta morðingja Axlar-Björn.
Lestrarsalur Þjóðskjalasafns Íslands, Laugarvegi 162.
Gengið inn frá Laugavegi.
Héraðsskjalasafn Kópavogs
19:00 - 23:59
Pólitískir draumar og martraðir. Sýning um
kosningar í Kópavogi. Myndir frá framboðsfundum,
kosningaauglýsingar og áróður fyrir augu og eyru.
Héraðskjalasafn Kópavogs, Hamraborg 1
Náttúrufræðistofa Kópavogs
19:00 – 24:00
Þorirðu að kíkja? Óræður skapnaður leynist á bak
við tjöldin. Er hann lífs eða liðinn? Manngerður eða
náttúrulegur? Komdu og kíktu ef þú þorir!
21:00 – 22:30
Eru fuglarnir guðir? Þorvaldur Friðriksson
skrímslafræðingur leiðir næturgesti um skuggalega
sýningarsali og fræðir fólk um táknræna merkingu
íslenskra fugla og fleiri dýra í trúarbrögðum og
draumförum manna.
Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6a
Bókasafn Kópavogs
19:30 - 20:00
Draumagrípari. Halla Frímannsdóttir fjallar um tákn
drauma meðal ólíkra þjóða.
20:00 – 20:30
Blikandi stjörnur. Sönghópurinn Blikandi stjörnur,
stjórnandi Ingveldur Ýr.
20:30 – 21:00
Draumar og ráðingar þeirra. Þóra Elfa Björnsson
fjallar um drauma og draumráðningar.
22:00 – 23:00
Draumráðningar. Kristján Frímanns ræður drauma.
23:00 – 23:30
Varsjárbandalagið leikur tónlist frá Balkanlöndum.
Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a
Gerðarsafn
19:00 - 24:00
Gerðarlegt í Gerðarsafni. Hugmyndir og hönnun
listamanna sem byggja á verkum Gerðar Helgadóttur.
19:00 – 24:00
Til þess er leikurinn Gerður. Sýning á verkum sem
nemendur í barnadeildum Myndlistarskóla Kópavogs
hafa unnið að undanförnu út frá verkum Gerðar
Helgadóttur.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Hamraborg 4
Molinn
19:00 - 24:00
Urban myndlist & underground Café. Götulist eftir
Guðmund Óla aka. ELLT, lifandi tónlist.
Molinn – menningarhús ungs fólks, Hábraut 2
Tónlistarsafn Íslands
20:00 & 22:00
Draumurinn um tónlistarsafn. Bjarki
Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands,
leitast við að svara spurningunni: “Hvers vegna
tónlistarsafn?”.
Tónlistarsafn Íslands, Hábraut 2
Bókasafn Garðabæjar
20:00 - 20:30
Landnámsmenn í Garðabæ. Ragnheiður
Traustadóttir fornleifafræðingur flytur stuttan fyrirlestur
um landnámsmenn í Garðabæ.
19:00 – 20:00
Þóra Elfa Björnsson – draumar og ráðningar
þeirra. Þóra Elfa ræðir um drauma við gesti.
Draumráðningabækur verða einnig til afnota.
19:00 – 24:00
Þýsk kvikmyndasýning í fjölnotasal.
19:00 – 24:00
Ljóðaveisla. Gestir geta tyllt sér og gluggað í
ljóðabækur eftir þekkta og óþekkta höfunda.
21:00 – 24:00
Sigurlín Bjarney Gísladóttir rithöfundur les örsögur.
21:00 - 24:00
Ása Marín Hafsteinsdóttir ljóðskáld les úr ljóðabók
sinni Að jörðu.
23:00 – 24:00
Tónlistin ómar - Gítar og söngur. Jói og Einar spila
og syngja fyrir gesti.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgötu 1
Kvikmyndasafn Íslands
21:00, 22:00 og 23:00
Íslandsmynd Kafteins Dam er ein fegursta
Íslandsmynd sem gerð hefur verið, tekin á Íslandi
1938 og 1939 af A. M. Dam.
Bæjarbíó, Strandgötu 6, Hafnarfirði.
Sögusafnið
19:00 - 24:00
Sögusýningin Perlunni. Merkilegustu augnablikin úr
sögu þjóðarinnar færð í myndrænan búning. Víkingar
og handverksfólk sýna gestum vopn og handverk.
Sögusafnið Perlunni
Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur
19:00 - 24:00
Bíló í Elliðaárdal. Félagar í Smábílaklúbbi Íslands
bjóða gestum og gangandi að spreyta sig á að stýra
fjarstýrðum rafdrifnum smábílum.
Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur, Rafstöðvarvegi 9
Árbæjarsafn
20:00 & 21:00
Hvað dreymdi þig? Símon Jón Jóhannsson heldur
erindi um draumráðningar og býður gestum að ráða
drauma þeirra.
22:00 & 23:00
Rökkurleiðsögn um Árbæjarsafn. Gengið um
safnsvæðið með fjósalukt.
Árbæjarsafn, Kistuhyl
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
19:00 - 24:00
Hver er maðurinn? Sýning á portrettum af
þjóðkunnum íslendingum og getraunaleikur.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70
Ásmundarsafn
19:00 – 19:45
Leiðsögn um sýninguna Rím. Á sýningunni er horft
til listamanna sem glíma við sömu hluti og Ásmundur,
en í nútímanum og í samhengi við okkar tíma.
20:00 -21:00
Rím - fjölskylduleiðsögn í tali og tónum. Hin
ástsæla leikkona Guðrún Ásmundsdóttir bregður á leik
í Ásmundarsafni ásamt hinni fjölhæfu tónlistarkonu
Kristínu Önnu Valtýsdóttur.
21:00 & 21:30 & 23:00 & 23:30
Tónlist fyrir draumavél. Draumavéla-innsetning með
tónlist eftir raftónlistarmanninn Rúnar Magnússon.
Takmarkaður fjöldi kemst að í hvert sinn.
22:00 – 22:45
Leiðsögn um sögu og byggingarlist
Ásmundarsafns með Guju Dögg Hauksdóttur,
deildarstjóra byggingarlistardeildar Listasafns
Reykjavíkur.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn, Sigtúni
Gljúfrasteinn - hús skáldsins
21:00 - 21:40
KK í stofunni á Gljúfrasteini. KK leikur á gítar og
syngur eigin lög í stofunni á Gljúfrasteini.
Gljúfrasteinn – hús skáldsins, Mosfellsdal
Ókeypis er á alla viðburði Safnanætur
www.safnanott.is