Fréttablaðið - 19.02.2010, Side 2
2 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
KAREN Í 4 . SÆTI
KÓPAVOGUR - GERUM ENN BETUR
P R Ó F K J Ö R S J Á L F S T Æ Ð I S F L O K K S I N S 2 0 . F E B R Ú A R
K
A
R
EN
E
. H
A
LL
D
Ó
R
SD
Ó
T
T
IR
B
A
í s
ál
fr
æ
ði
•
M
S
í m
an
na
uð
ss
tjó
rn
un
• K
os
ni
ng
as
kr
ifs
to
fa
B
æ
ja
rli
nd
1
4-
16
.
K
om
du
í
ka
ffi
REYKJAVÍKURBORG „Á meðan við
erum að forgangsraða í þágu grunn-
þjónustu og annars sem mestu máli
skiptir getum við auðvitað ekki
varið það að endurgreiða lóðir nema
það sé alveg skýrt að það sé okkar
skylda,“ segir Hanna Birna Kristj-
ánsdóttir borgarstjóri.
Meirihlutinn í borgarráði Reykja-
víkur samþykkti í gær bókun um
að úrskurðir samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytisins þess efnis að
borgin ætti að taka aftur við seldum
lóðum væru byggðir á röngum for-
sendum og því rangir. Uppi sé laga-
leg óvissa því Héraðsdómur Reykja-
víkur hafi í desember komist að
þveröfugri niðurstöðu en ráðuneyt-
ið. „Reykjavíkurborg hefur ekki í
sínum samþykktum viðurkennt að
til staðar hafi verið einhliða skila-
réttur hjá lóðarhöfum íbúðahúsa-
lóða, þar sem byggingarréttur var
seldur í kjölfar útboðs, eða atvinnu-
húsalóða,“ ítrekar meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
í bókun.
Samkvæmt framkvæmda- og
eignasviði Reykjavíkurborgar frá
í júní 2009 gátu hugsanleg fjárútlát
borgarinnar vegna lóðaskila í Úlf-
arsárdal og á Sléttuvegsreit numið
þremur milljörðum króna með verð-
bótum. Þar af hafi verið gerð krafa
um 365 milljónir. Þessar upplýsing-
ar fengust ekki uppfærðar í gær og
ekki reyndist unnt að fá samsvar-
andi upplýsingar um atvinnulóðir.
En ljóst er að upphæðin sem um er
að tefla skiptir milljörðum.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og
fulltrúar meirihlutans skiptust á
bókunum um málið í borgarráði en
Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi
VG, sat hjá. „Þetta er mál sem verð-
ur leitt til lykta í Hæstarétti,“ segir
Þorleifur við Fréttablaðið.
Dagur B. Eggertsson og aðrir
fulltrúar Samfylkingarinnar í
borgarráði segjast byggja afstöðu
sína á sjónarmiðum jafnræðis og
sanngirni. Uppi sé lagaleg óvissa
og spurningar um óvandaða stjórn-
sýslu. Dráttur á niðurstöðu geti
verið afar afdrifaríkur fyrir við-
komandi fjölskyldur. Þótt staða
borgarsjóðs sé erfið sé það „þó
ekki síður ábyrgðarhluti hjá borg-
arstjóra og meirihluta borgarstjórn-
ar á láta viðkomandi fjölskyldunum
einum eftir að axla ábyrgð,“ eins og
segir í bókun.
Hanna Birna segir að á meðan
uppi sé lagaleg óvissa fylgi borg-
aryfirvöld lögfræðilegri ráðgjöf.
Bæði borgarlögmaður og aðrir
lögmenn sem vinni fyrir borgina
í þessu málum telji að ekki hvíli á
borginni skylda til að taka við lóð-
unum. „Það er ekkert í samþykkt-
um borgarinnar sem gerir ráð fyrir
svona einhliða skilum á lóðum. Í
þeim tilvikum sem borgin endur-
greiddi atvinnulóðir án þess að vera
skyldug til þess var það vegna þess
að borgin taldi sig afdráttarlaust
geta endurselt þær lóðir,“ segir
borgarstjórinn.
gar@frettabladid.is
Milljarða útgreiðsla
hangir yfir borginni
Borgarsjóður gæti þurft að greiða milljarða króna ef dómstólar segja að borg-
inni beri að taka aftur við lóðum og endurgreiða þeim lóðarhöfum sem það
kjósa. Ábyrgðarlaust að greiða ef það er ekki okkar skylda, segir borgarstjórinn.
ÚLFARSÁRDALUR Eigendum lóða er neitað um að skila þeim og fá endurgreitt eins
og tíðkaðist hjá borginni fyrir hrun fjármálakerfisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það er ekkert í samþykkt-
um borgarinnar sem gerir
ráð fyrir svona einhliða skilum á
lóðum.
HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR
BORGARSTJÓRI
LÖGREGLUMÁL Karlmaður hefur
verið yfirheyrður hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu vegna
nauðgunar sem kærð var eftir síð-
ustu helgi. Þá kannar lögregla vís-
bendingar varðandi annan meint-
an nauðgara.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í vikunni kærðu tvær stúlk-
ur nauðgun eftir síðustu helgi.
Önnur þeirra er sautján ára og
hin um tvítugt. Samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins kærði
sú sautján ára nauðgun sem átti
sér stað á skemmtistað í borginni.
Eldri stúlkan kærði mann fyrir
að nauðga sér í bíl. Eftir því sem
næst verður komist ók hún nokkr-
um piltum, þar af einum sem hún
þekkti. Piltarnir tíndust úr bíln-
um, þar til einungis einn var eftir.
Hann er kærður fyrir að hafa
nauðgað stúlkunni.
Báðar stúlkurnar leituðu á neyð-
armóttöku Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi fyrir þol-
endur kynferðisofbeldis eftir
árásirnar. Þær voru báðar með
áverka eftir ofbeldið.
Hvorug stúlknanna mun hafa
þekkt ofbeldismanninn sem þær
urðu fyrir barðinu á.
Kynferðisbrotadeild lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu hefur
rannsókn málsins með höndum.
- jss
LÖGREGLUSTÖÐIN Lögregla hefur
yfirheyrt karlmann vegna nauðgunar um
síðustu helgi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tvö nauðgunarmál:
Yfirheyrður vegna nauðgunar
VIÐSKIPTI JP Lögmönnum hefur
verið falið að annast formlegt
ferli á öryggisvörslufyrirtækinu
Securitas. Fyrirtækið er helsta
eign þrotabús Fons, félags áður
í meirihlutaeigu Pálma Haralds-
sonar. Stefnt er að því að nýir
eigendur taki við Securitas í
kringum 20. mars næstkomandi.
Securitas var auglýst til sölu
í dagblöðum í gær. Þar kemur
fram að allir sem geti sýnt
fram á að þeir eigi þrjú hundr-
uð milljónir króna eða meira
geti lagt fram tilboð í félagið. Þá
geta fjármögnunarvilyrði frá
fjármálastofnun, sem metið er
fullnægjandi af seljanda, tal-
ist gilt, samkvæmt því sem þar
segir. - jab
Securitas sett í söluferli:
Stærsta eignin
seld úr búi Fons
SAMGÖNGUMÁL Samtök ferða-
þjónustunnar lýsa yfir miklum
áhyggjum vegna boðaðs verkfalls
flugvirkja, sem að óbreyttu hefst
á mánudag. Ef af verkfalli verður
mun flug til landsins stöðvast, og
mikil viðskipti fara forgörðum,
með tilheyrandi tapi fyrir fyrir-
tæki og þjóðarbúið, segir í yfir-
lýsingu frá samtökunum.
Þar segir enn fremur að verk-
föll sem stöðvi flug til landsins
séu slæm fyrir orðspor Íslands
og fæli ferðamenn frá landinu.
Kristján Kristinsson, formað-
ur samninganefndar Félags flug-
virkja, sagði í gær ágætan gang í
samningaviðræðum. - bj
Fyrirhugað verkfall flugvirkja:
Óttast að ferða-
menn fælist frá
VERKFALL Boðað verkfall flugvirkja á að
standa frá 22. til 28. febrúar.
MYND/VÍKURFRÉTTIR
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Yfir-
maður loftslagsmála hjá Samein-
uðu þjóðunum, Yvo de Boer, til-
kynnti í gær um afsögn sína, frá
og með 1. júlí.
De Boer hefur
gegnt stöðunni
í fjögur ár og er
fyrir mörgum
andlit loftslags-
viðræðna.
Þrátt fyrir
yfirlýsingar um
hið gagnstæða
leiða menn
líkur að því að
óánægja með útkomu ráðstefn-
unnar í Kaupmannahöfn hafi haft
sitt að segja um ákvörðunina.
Óttast menn nú að snurða geti
hlaupið á þráðinn í viðræðum, en
enginn augljós eftirmaður er til
staðar. Tilkynningin kemur fimm
mánuðum áður en fulltrúar 193
ríkja munu þinga um loftslagsmál
í Cancun í Mexíkó. - kóp
Yfirmaður loftslagsmála SÞ:
Yvo de Boer
segir af sér
YVO DE BOER
SJÁVARÚTVEGUR Jón Bjarnason sjáv-
arútvegsráðherra gefur í dag út
reglugerð um að auka loðnukvóta
um 20 þúsund tonn. Er það gert að
tillögu Hafrann-
sóknastofnunar
sem fram kom í
gær.
Mælingar
Hafró sýna 505
þúsund tonn
af kynþroska
loðnu. Áður en
þær fóru fram
höfðu 45 þúsund
tonn verið veidd,
þannig að áætluð stærð stofns, að
meðtöldum afla, er um 550 þúsund
tonn. Gildandi aflaregla gerir ráð
fyrir að 400 þúsund tonn séu skil-
in eftir til hrygningar og því lagði
Hafró til leyfilegan hámarksafla
150 þúsund tonn, 20 þúsund tonna
aukningu frá fyrri tillögu.
Jón Bjarnason segir loðnuna á
besta stigi núna, fulla af hrognum
og því afar dýrmæta. Með aukn-
ingu kvótans fáist upp í hrognasölu-
samninga. „Ég gef út í fyrramálið [í
dag] reglugerð um 20 þúsund tonna
aukningu. það er mjög ánægjulegt
að geta gert það,“ segir ráðherra.
Af þessum 20 þúsund tonnum
koma 18 þúsund í hlut Íslendinga,
en afgangurinn fer til Færeyinga
og Grænlendinga samkvæmt samn-
ingum. Aflaverðmæti gæti numið
um 1,5 milljörðum.
Nokkuð hefur verið þrýst á um
að auka þorskkvóta, jafnvel um 40
þúsund tonn. Jón segir það ekki til
skoðunar hjá ráðuneytinu. - kóp
Ráðherra gefur út reglugerð um 20 þúsund tonn aukreitis:
Loðnukvóti aukinn í dag
DREKKHLAÐIN SUÐUREY Talið er að aukning loðnukvótans skili um 1,5 milljarða
króna í aflaverðmæti. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
JÓN BJARNASON
DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri
hefur verið ákærður fyrir Héraðs-
dómi Suðurlands fyrir að afhenda
varning út um lúgu söluskála Olís
á Selfossi án þess að taka greiðslu
fyrir.
Þannig rétti maðurinn óþekkt-
um manni eða konu tvö karton af
sígarettum út um lúguna. Næsti
„viðskiptavinur“ fékk kók og sæl-
gæti án greiðslu þegar hann leit
við. Þá bar að sjoppunni stúlku um
tvítugt. Hún fékk kók, en þar að
auki renndi sjoppumaðurinn korti
í gegnum kortalesara og tók pen-
ingaupphæð úr afgreiðslukassan-
um sem hann lét stúlkuna hafa.
Maðurinn hefur játað brotin. - jss
Héraðsdómur Suðurlands:
Gaf fólki varn-
ing úr sjoppu
AFGANISTAN, AP „Ég myndi segja
að við séum með hryggjar-
stykkið úr bænum á okkar
valdi,“ segir Larry Nicholson,
herforingi í fjölþjóðaliði NATO
og Bandaríkjanna í Afganistan.
Fimmtán þúsund manna her-
lið réðist á bæinn Marja í Helm-
and-héraði í síðustu viku. Tali-
banar hafa haft bæinn og næsta
nágrenni á valdi sínu undan-
farin ár, en innrásarliðið hefur
nú náð helstu götum og stjórn-
sýslubyggingum bæjarins á sitt
vald.
„Við erum þar sem við viljum
vera,“ segir Nicholson.
- gb
Barátta gegn talibönum:
Marja að mestu
á valdi Natóliðs
Gunnlaugur, berjast menn
alltaf í boltanum?
„Við kýlum alltaf á þetta.“
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Vals í fót-
bolta, segir slagsmál tveggja leikmanna
liðsins hafa verið léttar ryskingar enda
hlaupi fótboltamönnum gjarnan kapp
í kinn.
SPURNING DAGSINS