Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 6
6 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
MENNTUN Nýjar innritunarreglur í
framhaldsskóla búa til fleiri vanda-
mál en þær leysa, segir Ingi Ólafs-
son, skólastjóri í Verslunarskóla
Íslands, sem í fyrsta sinn í sögu
skólans verður að hverfisskóla.
Skiptar skoðanir eru hjá skólastjór-
um framhaldsskóla um reglurnar
sem fela í sér að að minnsta kosti
45 prósent nýnema eigi að koma úr
skólum í grenndinni.
Ingi segir grunnskólanema setta
í átthagafjötra með reglunum. Már
Vilhjálmsson, skólastjóri Mennta-
skólans við Sund, segir reglurnar
í mótsögn við lög um framhalds-
skóla. Þau hvetji til sérstöðu skóla
en reglur um hverfisskóla dragi
úr valmöguleika nemenda til að
velja sér skóla við hæfi. Ingibjörg
S, Guðmundsdóttir, skólastjóri
Kvennaskólans, tekur undir þessi
sjónarmið, reglurnar muni heldur
ekki leysa öll vandamál er snúa að
innritun nýnema í framhaldsskóla,
heldur færa vandann til.
Lársus H. Bjarnason, skólastjóri
Menntaskólans við Hamrahlíð,
segir lítið hægt að segja um innrit-
unarreglurnar fyrr en á þær hafi
reynt. Hann hafi þó á tilfinningunni
að þær breyti ekki miklu fyrir skól-
ann, MH hafi ætíð tekið hærra hlut-
fall úr nágrenninu en ýmsir aðrir
skólar, búseta hafi verið sjónarmið
sem tekið hafi verið tillit til.
Guðrún Hrefna Guðmundsdótt-
ir, skólastjóri Fjölbrautaskólans í
Breiðholti, býst ekki við að reglurn-
ar breyti miklu fyrir FB.
Framhaldsskólum ber að setja
inngönguskilyrði fyrir nýnema í
samráði við menntamálaráðuneyt-
ið. Þær upplýsingar fengust þar að
framhaldsskólar eigi að hafa þær
tilbúnar um næstu mánaðamót.
Innritun í framhaldsskóla gekk
brösuglega síðastliðið vor eins og
greint var frá í fréttum. Ingibjörg
segir vandræðin ekki hafa skapast
út af því að samræmdu prófin voru
aflögð heldur vegna þess hve mikill
nemendafjöldi sótti um framhalds-
skólavist, mjög lítill sveigjanleiki
sé í kerfinu vegna þess að plássin
fyrir nemendur séu ekki nægilega
mörg.
Már er sama sinnis og segir
vandamál vera að trassað hafi
verið í mörg ár að byggja nýjan
framhaldsskóla í Reykjavík. Það
hafi haft þær afleiðingar að skóla-
bekkirnir séu afar þétt setnir og val
nemenda af skornum skammti. Þeir
hafi í raun ekki val um framhalds-
skóla fyrr en námsframboð verði
aukið, framboð af skólaplássum
verði meira en eftirspurn.
Þess má geta að nemendum ber
að sækja um framhaldsskóla í byrj-
un apríl og kemur þá í ljós hvert
straumurinn liggur. Engar einkunn-
ir fylgja þeirri umsókn en þær eru
svo sendar á framhaldsskólana að
grunnskólaprófum loknum. Nem-
endur geta sótt um hvaða skóla sem
er, en hafa forgang í hverfisskólum.
sigridur@frettabladid.is
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Glæsileg ryksuga með
öflugum mótor, 2000 W.
Sjálfinndregin snúra,
hleðsluskynjari.
4 lítra slitsterkur poki.
Vinnuradíus: 10 m.
Vinnuhollt handfang.
Stillanleg lengd á sogröri.
Ryksuga VS 06G2001
23.900Tilboðsverð: kr. stgr.
(Verð áður: 29.900 kr.)
ASÍ krefst ...
... þess að Seðlabankinn
lækki vexti til að auka
fjárfestingar og atvinnu.
Nánari upplýsingar á www.asi.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
40
92
4
Óánægja með end-
urkomu hverfisskóla
Skólastjórnendur eru margir óánægðir með nýjar innritunarreglur í framhalds-
skóla. Samkvæmt þeim eiga að minnsta kosti 45 prósent nýnema að koma úr
hverfinu. Nemendur eru settir í átthagafjötra, segir skólastjóri Verslunarskólans.
NÝJAR LEIÐIR EFTIR NIÐURFELLINGU SAMRÆMDU PRÓFANNA Framhaldsskólar
miðuðu lengi vel við niðurstöður samræmdra prófa er þeir tóku nemendur inn
í skólann. Þau hafa verið lögð niður og er þess í stað tekið tillit til einkunna úr
grunnskóla og búsetu samkvæmt nýjum reglum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nemendur í flestum grunnskól-
um Reykjavíkur eiga forgang í tvo
framhaldsskóla. Undantekning frá
þessu eru nemendur í grunnskólum
í Breiðholti, sem allir hafa forgang
í Fjölbrautaskólann í Breiðholti, og
grunnskólanemar í Grafarvogi, að
Foldaskóla undanskildum, sem hafa
forgang í Borgarholtsskóla. Folda-
skólanemar hafa einnig forgangi í
Menntaskólann við Sund.
Á landsbyggðinni eru langflestir
nemendur með forgang í einn
skóla. Nemendur í Hafnarfirði,
Garðabæ og Kópavogi eiga allir
forgang í framhaldsskóla í sínu bæj-
arfélagi en þar að auki í Iðnskólann
í Hafnarfirði. Nemendur úr Mosfells-
bæ eiga forgang í framhaldsskólann
í bænum og Borgarholtsskóla í
Grafarvogi.
Hægt er að skoða yfirlit yfir
forgangsskóla framhaldsskólanna á
síðunni www.menntagatt.is.
FORGANGUR Í EINN EÐA TVO SKÓLA
MENNTUN Mikilvægt er að nemend-
ur hafi áfram val um skólagerð,
milli bekkjarkerfis og fjölbrauta-
kerfis segir Kristrún G. Guð-
mundsdóttir, skólastjóri Hlíða-
skóla. Framhaldsskólarnir séu með
misjafnar áherslur og ekki víst að
hverfisskólarnir henti endilega
öllum nemendum.
Þær reglur sem giltu í fyrra
voru harðlega gagnrýndar. Krist-
rún bendir á að þær hafi einfald-
lega ekki gefist vel, fjöldi ung-
menna hafi ekki fengið skólavist
fyrr en seint og um síðir. Ráðu-
neytið virðist hafa lært af því. Nú
eigi nemendur að sækja um vist í
framhaldsskóla um miðjan apríl,
löngu áður en einkunnir liggi fyrir,
væntanlega svo hægt verði að kort-
leggja hvert straumurinn liggur.
Alltaf er viss spenna meðal
nemenda í tíunda bekk um vist í
framhaldsskóla, en Kristrún segir
engan óróleika meðal nemenda í
Hlíðaskóla vegna breytinga á regl-
um um innritun. „Nemendurnir
takast á við sitt nám eins og venju-
lega og reyna að gera sitt besta.“
- bj
Skólastjóri Hlíðaskóla segir nemendur ekki órólega vegna nýrra innritunarreglna:
Mikilvægt að nemendur hafi val
HLÍÐASKÓLI Nemendur hans eiga
forgang í MH og Versló.
Hefur þú íhugað að flytja úr
landi vegna hrunsins?
JÁ 56%
NEI 44%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú skoðað kynningarvef
vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
um Icesave, thjodaratkvaedi.is?
Segðu skoðun þína á vísir.is
STJÓRNSÝSLA Bankasýsla ríkis-
ins er formlega tekin til starfa og
hefur fjármálaráðherra skipað
stjórn hennar. Formaður er Þor-
steinn Þorsteinsson rekstrarhag-
fræðingur, en með honum í stjórn
sitja þau Sonja María Hreiðars-
dóttir lögmaður og Sigurður B.
Stefánsson hagfræðingur.
Þá tók nýtt bankaráð Lands-
bankans til starfa í gær. Þá tók
Gunnar Helgi Hálfdánarson við
formennsku af Hauki Halldórs-
syni, sem enn situr í ráðinu. Auk
þeirra eru þar Guðríður Ólafs-
dóttir, Sigríður Hrólfsdóttir og
Friðrik Pálsson. Nýtt bankaráð
mun auglýsa stöðu bankastjóra og
þá er stefnt að því að hvor hlutur
kyns í forystusveit bankans verði
ekki undir fjörutíu prósentum í
árslok 2013. - kóp
Nýtt bankaráð Landsbankans:
Bankasýslan
tekin til starfa
Álverið fær stækkun
Skipulags- og byggingarfulltrúi Hafn-
arfjarðar hefur samþykkt ósk Alcan
um að reisa viðbyggingu vestan við
núverandi kersmiðju. Byggingin er
nauðsynleg vegna áforma fyrirtækis-
ins um framleiðsluaukningu.
SKIPULAGSMÁL
Sex sinnum með fíkniefni
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir
Héraðsdómi Reykjaness fyrir fjölmörg
brot. Hann var tekinn sex sinnum
með flestar tegundir fíkniefna. Þá er
hann ákærður fyrir umferðarlagabrot
og þjófnað.
Sekt fyrir hraðakstur
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið
dæmdur til að greiða 30 þúsund
króna sekt í ríkissjóð. Hann ók á 108
kílómetra hraða austur Suðurlands-
veg þar sem hámarkshraði er 90.
DÓMSTÓLAR
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
Héraðsdómi Reykjaness fyrir
að hafa rúmlega 300 grömm af
amfetamíni í fórum sínum til að
dreifa og selja.
Maðurinn var tekinn á síðasta
ári í Smáíbúðahverfinu í Reykja-
vík. Amfetamíninu kastaði hann
út um glugga íbúðar sinnar
þegar lögreglan hafði afskipti
af honum. Þá hefur kona á fer-
tugsaldri verið dæmd í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir fíkniefnavörslu. Hún var
með smáræði af amfetamíni og
kannabislaufum og 140 kannabis-
plöntur. - jss
Héraðsdómur Reykjaness:
Amfetamínið
út um glugga
EFNAHAGSMÁL Lítill hluti þeirra
gagna sem vísað er til á kynning-
arvef vegna fyrirhugaðrar þjóðar-
atkvæðagreiðslu hefur ekki verið
þýddur úr ensku á íslensku. Opnað
var fyrir kynningarvefinn í gær.
Lagastofnun Háskóla Íslands
vann upplýsingar fyrir vefinn
fyrir dómsmála- og mannrétt-
indaráðuneytið. María Thejll, for-
stöðumaður stofnunarinnar, segir
að hlutleysi hafi verið haft að leið-
arljósi við vinnslu gagnanna.
Eitt af þeim atriðum sem miklu
skipta vegna skuldar Tryggingar-
sjóðs innstæðueigenda við breska
og hollenska ríkið, verði lögin sam-
þykkt, er hversu mikið fæst upp í
skuldina úr þrotabúi Landsbank-
ans. Vilji landsmenn kynna sér
útreikninga á mögulegum endur-
heimtum er þeim meðal annars
vísað á tæplega 60 síðna skýrslu
skilanefndar Landsbankans.
Skýrslan er á ensku og þykir
nokkuð tyrfin. María segir að laga-
stofnun hafi hvorki haft tíma né
umboð til að láta þýða skýrsluna.
Það sem þar komi fram sé vissu-
lega flókið, en sömu upplýsingar
megi finna í gögnum frá Seðla-
banka Íslands sem einnig sé vísað
í. María segir það á valdi stjórn-
valda að láta þýða skýrsluna.
Skoða má kynningarvefinn á
vefslóðinni thjodaratkvaedi.is. - bj
Kynningarvefur stjórnvalda vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave opnaður:
Hluti gagna birtur á ensku
KYNNING Vefurinn thjodaratkvaedi.is var
opnaður í gær.
KJÖRKASSINN