Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 24
2 föstudagur 19. febrúar núna ✽ á döfinni augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Vera Pálsdóttir Ritstjórn Anna M. Björnsson Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Make Up Store fær verðlaun Verslunin Make Up Store í Reykja- vík fékk verðlaun fyrir flottustu Make Up Store-verslunina í heimin- um þetta árið, „Store of the Year“. Make Up Store, sem er sænskt fyrirtæki, tók það sérstaklega fram í umsögninni um verðlaunin að það hefði komið á óvart hversu salan hefði aukist í versluninni í hinu kreppuþjáða landi Íslandi. „Ég er í skýjunum yfir því að fá verðlaunin,“ segir Margrét Ragna Jónasardótt- ir, eigandi verslunarinnar. „Sérstak- lega í ljósi aðstæðna hér heima á Íslandi og að við kepptum við 170 verslanir um allan heim. „Þetta sýnir að við Íslendingar velj- um gæðavöru á hagstæðu verði.“ Margrét segist vera dugleg að kenna viðskiptavin- um að nota vörurnar svo að þeir verði ánægðir með árangurinn og að hún sé lánsöm að búa yfir frá- bæru starfsfólki. Með flottustu línurnar í Hollywood Leikkonan Christina Hendricks í sjónvarpsþættinum Mad Men er í forsíðuviðtali hjá tímaritinu The New Yorker þessa vikuna. Hendr- icks hefur vakið mikla athygli fyrir kvenleg- an vöxt sinn sem þykir tákn um að Holly- wood-lúkk- ið frá því um miðbik síðustu aldar sé að komast aftur í tísku. Leik- konan segist í viðtalinu vera orðin leið á því að það sé alltaf talað um vöxt hennar þar sem hún hefur lagt mikið á sig til að ná frama í leiklist- inni. Hún hafði þó greinilega ekkert á móti því að láta mynda þrýstinn barminn á þeim glæsilegu myndum sem eru í tímaritinu. Þ að var verið að setja saman fjögurra daga átak hérna í Rose Bruford sem tengist kynbundnu ofbeldi, þar sem unnið er með listformið til að opna augu fólks fyrir þessu málefni. Fresh Meat passaði akkúrat við þema hátíðarinnar, enda spunnið út frá heimilisof- beldi,“ segir Sigríður Soffía Níelsdóttir, annar höfunda dansverksins Fresh Meat, sem sýnt var í gærkvöld og fyrrakvöld í Rose Theatre í London, í tilefni af fyrrnefndu átaki. Sigríður útskrifaðist með BA-gráðu frá dansbraut Lista- háskóla Íslands síðastliðið vor. Nú ferðast hún um heiminn og tekur þátt í hinum ýmsu upp- setningum dansverka en hún vinnur meðal annars náið með Ernu Ómarsdóttur. Fresh Meat er samvinnuverkefni Sigríðar og Snædísar Lilju Ingadóttur en þær útskrifuð- ust á sama tíma af dansbraut listaháskólans. Snædís Lilja leggur nú einmitt stund á leiklist- arnám við Rose Bruford-háskóla. Myndlistar- maðurinn Björk Viggósdóttir sér um sjónrænt umhverfi sýningarinnar en tónlistin í verkinu er eftir Lydíu Grétarsdóttur. Verkið var áður sýnt á sviðslistahátíðinni artFart. Sigríður segir því hafa verið vel tekið bæði í Reykjavík og London og stefnt sé að því að sýna það víðar á næstu mánuðum. „Við munum að öllum lík- indum sýna verkið aftur á Íslandi í apríl og þá í sviðsútgáfu, sem við höfum ekki gert áður heima.“ - hhs Sýningin Fresh Meat á fjögurra daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi í Rose Theater í London: ÍSLENSKT DANSVERK SETT UPP Í LONDON Höfundarnir Dansararnir Sigríður Soffía Níelsdóttir og Snædís Lilja Ingadóttir ásamt myndlistarkonunni Björk Viggósdóttur. FR É TTA B LA Ð IÐ /A N TO N LÉTTKLÆDD Skutlan Pamela And- erson sýnir línurnar á Ritchie Ritch- tískusýningunni á tískuvikunni í New York í fyrradag. Andrea Brabin og samstarfs- konur hennar hjá Eskimo bjóða öllum sem langar að spreyta sig á sýningarpöllum Reykjavík Fas- hion Festival að líta við hjá sér í Skúlatúni 4 á mánudaginn á milli klukkan 16 og 18. „Við munum sjá um að velja og þjálfa módel- in fyrir RFF. Okkur langar að gefa nýju fólki tækifæri til að komast að,“ segir Andrea. Hún hvetur alla til að koma, jafnvel þótt þeir eða þær falli ekki fullkomlega að ofurfyrirsætu- ímyndinni. - hhs Eskimo leitar að nýjum andlitum: Andrea Brabin hjá Eskimo Eskimo leitar að nýjum fyrirsætum til að taka þátt í Reykjavík Fashion Festival. Módel fyrir RFF þetta HELST ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR LEIKKONA Ég byrja föstudaginn á æfingu uppi í Borgó. Ég er að leika í Dúfunum og ég vakna með fiðring í maganum alla daga því það er svo gaman. Eftir æfingu fer ég beint út á flugvöll og flýg til New York með manninum mínum. Við ætlum að gista hjá vinkonum okkar og höfum engin önnur plön en að njóta helgarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.