Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 58
30 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is > KR fær nýjan Kana á reynslu Íslandsmeistarar KR í Iceland Express-deild karla í körfubolta hafa fengið til sín nýjan Kana í stað Semaj Inge sem fór til Hauka á dögunum. Sá heitir Morgan Lewis og er 23 ára gamall skotbakvörður en getur leyst fleiri stöður á vellinum. „Við erum með samningsdrög við hann en höfum ekki samið við hann ennþá. Það er undir honum komið að sanna sig á næstu vikum en við bindum miklar vonir við hann og hann er klár í næsta leik. Við vorum að leita að leikmanni sem svipar til Jasons Dourisseau sem lék með okkur í fyrra til þess að hjálpa okkur í titil- vörninni,“ sagði Páll Kolbeinsson, þjálfari KR, í gær. N1-deild karla Fram-Valur 26-26 (12-13) Mörk Fram (skot): Einar Eiðsson 9/5 (9/5), Hall- dór Jóhann Sigfússon 4 (6), Guðjón Drengsson 4 (6), Haraldur Þorvarðarson 3 (4), Hákon Stefáns- son 3 (5), Magnús Stefánsson 2 (2), Daníel Berg Grétarsson 1 (4), Andri Berg Haraldsson 0 (3). Varin skot: Magnús Erlendsson 18 Hraðaupphlaup: 7 (Guðjón 2, Magnús 2, Einar, Halldór, Hákon) Fiskuð víti: 5 (Halldór 3, Haraldur, Hákon) Utan vallar: 8 mín. Mörk Vals (skot): Orri Freyr Gíslason 7 (8), Arnór Þór Gunnarsson 6/2 (9/2), Elvar Friðriksson 4 (8), Ingvar Árnason 3 (4), Gunnar Ingi Jóhanns- son 2 (2), Ernir Hrafn Arnarson 2 (7), Baldvin Þorsteinsson 1 (3), Jón Björgvin Pétursson 1 (2), Sigurður Eggertsson 0 (1), Atli Már Báruson 0 (3). Varin skot: Hlynur Morthens 16 Hraðaupphlaup: 5 (Ingvar 2, Arnór 2, Gunnar) Fiskuð víti: 2 (Arnór, Orri) Utan vallar: 6 mín. Stjarnan-Akureyri 28-28 (16-15) Markahæstir hjá Stjörnunni: Ragnar Helgason 8, Kristján Svan Kristjánsson 6. Markahæstir hjá Akureyri: Oddur Gretarsson 7, Árni Þór Sigtryggsson 7. Grótta-FH 27-30 (14-15) Markahæstir hjá Gróttu: Anton Rúnarsson 8, Arnar Freyr Theodórsson 5. Markahæstir hjá FH: Bjarni Fritzson 8, Ólafur Guðmundsson 6. Evrópudeild UEFA Liverpool-Unirea Urziceni 1-0 1-0 David Ngog (81.) Rubin Kazan-Hapoel Tel-Aviv 3-0 Ajax-Juventus 1-2 1-0 Miralem Sulejmani (16.), 1-1 Amauri (31.), 1-2 Amauri (58.). Club Brugge-Valencia 1-0 1-0 Rostand Kouemaha (56.). Twente-Werder Bremen 1-0 1-0 Theo Janssen (39.). Lille-Fenerbahce 2-1 Standard Liege-Red Bull Salsburg 3-2 Villarreal-Wolfsburg 2-2 1-0 Marcos Senna (43.) 1-1 Grafite (65.), 1-2 Grafite (84.), 2-2 Marcos Gullon (85.). Athletic Bilbao-Anderlecht 1-1 0-1 Lucas Biglia (35.), 1-1 Mikel San Jose (58.). Atletico Madrid-Galatasaray 1-1 1-0 Jose Antonio Reyes (23.), 1-1 Abdulkader Keita (77.). FC Kaupmannahöfn-Marseille 1-3 0-1 Mamadou Niang (72.), 1-1 Jesper Gronkjaer (80.), 1-2 Fabrice Abriel (84.), 1-3 Charles Kabore (90.). Fulham-Shakhtar Donetsk 2-1 1-0 Zoltan Gera (3.), 1-1 Luiz Adriano (32.), Bobby Zamora (63.). Hamburg-PSV 1-0 1-0 Marcell Jansen (27.). Hertha Berlín-Benfica 1-1 0-1 Angel Di Maria (4.), 1-1 Sjálfsmark (33.). Panathinaikos-Roma 3-2 0-1 Mirko Vucinic (29.), 1-1 Dimitris Salpigidis (66.), 1-2 David Pizarro (81.), 2-2 Lazaros Chris- todoulopoulos (84.), 3-2 Djibril Cisse (89.). ÚRSLIT FÓTBOLTI Portúgalinn Cristiano Ronaldo er launahæsti fótbolta- maður heims en portúgalska markaðsskrifstofan Futebol Fin- ance hefur tekið saman fimmtíu launahæstu knattspyrnumenn heims. Futebol Finance segir að Cristi- ano Ronaldo hjá Real Madrid fái 11,3 milljónir punda í árslaun sem eru rúmlega 2,2 milljarðar íslenskra króna. - óój Launahæstu leikmenn heims: Ronaldo situr á toppi listans RONALDO Er með 11,3 milljónir punda eða 2,2 milljarða íslenskra króna í árs- laun. NORDIC PHOTOS/AFP LAUNAHÆSTU LEIKMENN 1. C. Ronaldo (Real Madrid) *11.3 2. Z. Ibrahimovic (Barcelona) 10.4 3. L. Messi (Barcelona) 9.1 4. S. Eto’o (Inter) 9.1 5. Kaka (Real Madrid) 8.7 6. E. Adebayor (Man. City) 7.4 7. K. Benzema (Real Madrid) 7.4 8. C. Tevez (Man. City) 7 9. J. Terry (Chelsea) 6.5 10. F. Lampard (Chelsea) 6.5 *Tölur eru árslaun í milljónum punda FRJÁLSAR Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni, var í gær valin íþróttamaður Reykjavíkur fyrir árið 2009 en þetta er í 31. sinn sem Íþrótta- maður Reykjavíkur er kjörinn. Ásdís fékk auk bikarsins 150 þúsund króna styrk frá ÍBR. Ásdís setti nýtt Íslandsmet í spjótkasti, 61,37 metra, í byrjun maí 2009 og komst þá í sjöunda sæti heimslistans. Ásdís er nú í 22. sæti á heims- listanum en hún hækkaði sig um fjórtán sæti frá því í fyrra og enginn Norðurlandabúi var ofar en hún á listanum. - óój Íþróttamaður Reykjavíkur: Ásdís var valin „Framarar voru bara betri, þeir stjórnuðu leiknum,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, eftir að liðið gerði 26-26 jafntefli við Fram í Safamýri. Hlutskipti liðanna er ólíkt, Fram neðst en Valur í öðru sæti. Eins og alltaf þegar þessi lið mæt- ast var baráttan allsráðandi og alveg ljóst að Framarar hafa ekki sagt sitt síðasta orð. Þeir sýndu mikla grimmd í gær. „Við vissum fyrir leikinn að það yrðu vandamál sóknarlega því við erum með ákveðna menn í meiðslum. En það er ekkert sem afsakar vörnina, hún var bara léleg. Þetta var erfitt og ég er bara sáttur við að hafa náð stigi,“ sagði Óskar. Valur hafði eins marks forystu í hálfleik en í seinni hálfleik voru Framarar um tíma fjórum mörkum yfir og virtust ætla að ná báðum stigunum. Þeir gerðu síðan klaufaleg mistök og spennan var mikil á lokamínútunni þar sem bæði lið reyndu að tryggja sér sigurinn. „Fram er með hörkumannskap og á ekki að vera á þessum stað. Vonandi að þetta komi hjá þeim, þeir eru með flott lið og spiluðu vel í dag,“ sagði Óskar Bjarni eftir leik. Guðjón Drengsson, leikmaður Fram, segir að liðið muni ekkert gefa eftir í baráttunni fyrir lífi sínu í deildinni. „Mér finnst við hafa tapað stigi í dag. Þetta var miklu betra en við höfum verið að gera og margt jákvætt í okkar leik,“ sagði Guðjón. „Við þurfum að gíra okkur upp í hvern einasta leik eins og við séum að fara að mæta sterkasta liði í heimi. Við munum bara bæta okkur og mæta enn betri. Varnarleikurinn var frábær í þessum leik, við vorum að berjast eins og ljón um hvern einasta bolta. Við erum á réttri leið, það vil ég meina.“ Leikurinn í gær olli áhorfendum engum vonbrigð- um og spennan var mikil. Orri Freyr Gíslason, leikmaður Vals, var allt annað en sáttur við varnarleik síns liðs og þar með talið síns sjálfs. „Við vorum að keppa gegn neðsta liðinu og varnarleikurinn var hörmulegur. Við eigum að sýna miklu betri „standard“ en þetta, við mættum bara eins og algjörir aumingjar í leikinn,“ sagði Orri. - egm ÓSKAR BJARNI ÓSKARSSON: VAR SÁTTUR VIÐ AÐ NÁ STIGI AF BOTNLIÐI N1-DEILDARINNAR Í GÆRKVÖLDI Framarar eiga ekki að vera á þessum stað FÓTBOLTI Fimmtán leikir fóru fram í 32 liða úrslitum Evrópudeildar UEFA í gærkvöldi þar sem Liver- pool lenti í kröppum dansi gegn rúmenska liðinu Unirea Urziceni á Anfield-leikvanginum en vann þó að lokum. Gestirnir í Unirea lágu aftarlega á vellinum og gáfu fá færi á sér framan af leik á Anfield-leikvang- inum. Liverpool var mun meira með boltann en gekk illa að finna glufur á þéttum varnarmúr Rúm- enanna. Sóknarþunginn skilaði sér hins vegar loksins þegar tíu mín- útur lifðu leiks þegar David Ngog skoraði sigurmark leiksins eftir frábæran undirbúning varamanns- ins Daniel Pacheco. Síðari leikur liðanna fer fram á Steaua-leikvanginum í Búkarest 25. febrúar en það er ljóst að rúm- enska liðið er sýnd veiði en ekki gefin fyrir Liverpool. Amauri með tvennu Af öðrum úrslitum í gærkvöldi má nefna að Juventus vann 1-2 sigur gegn Ajax þrátt fyrir að heima- menn í Ajax hafi tekið forystu í leiknum snemma leiks. Tvenna frá Amauri í síðari hálfleik sá hins vegar til þess að gestirnir frá Tórínó innbyrðu góðan sigur. Ful- ham vann einnig góðan 2-1 sigur gegn Shakhtar Donetsk á heima- velli sínum Craven Cottage í gær- kvöldi. Zoltan Gera og Bobby Zam- ora skoruðu mörk heimamanna en Luiz Adriano skoraði mark gest- anna. Þá vann belgíska félag- ið Club Brugge óvæntan sigur á heimavelli sínum gegn spænska félaginu Valencia. omar@frettabladid.is Erfið fæðing á Anfield Liverpool þurfti að hafa mikið fyrir því að leggja rúmensku meistarana í Uni- rea Urziceni í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildar UEFA í gær. BJARGVÆTTURINN David Ngog bjargaði Liverpool með sigurmarki tíu mínútum fyrir leikslok gegn rúmenska liðinu Unirea Urziceni á Anfield-leikvanginum í gærkvöldi. NORDIC PHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.