Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 48
20 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR Fréttablaðið býður nú upp á birtingu æviminninga á tímamótasíðum blaðsins. Hafið samband í síma 512 5490-512 5495 eða sendið fyrirspurnir á netfangið timamot@frettabladid.is Æviminning Gísli Eirík ur Helgaso n Laugateigi 7 2, Reykjavík Gísli Eirík ur Helgaso n fæddist í Reykjavík 1. janúar 1 931. Hann lést á Hraf nistu í Ha fnarfirði 1 2. janúar síð astliðinn. Foreldrar hans voru Guðr ún Jónsdót tir frá Þing eyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og H elgi Gíslason fr á Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eirík ur bjó fyrs tu æviár sí n í Reykjavík en fluttist eftir það v estur til Ísafjarð ar með for eldrum sín um og systkin um. Systkini G ísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigrí ður Ása, f. 1936 og G uðmundur , f. 1941. Eiginkona Gísla Eirí ks er Marg rét Magnú sdóttir hjúk r- unarfræði ngur, f. 4. apríl 1937 . Þau geng u í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eirí ks og Mar grétar eru: 1) Magnús kennari, f . 1.5. 1972 , kvæntur Guðbjörgu Björnsdótt ur kennara , f. 30.11. 1 971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn J óhann, f. 2 0.1. 1999. 2) Helgi tæ knifræðin gur, f. 18.6 . 1975, í sa mbúð með Jórunni Dr öfn Ólafsdó ttur leiksk ólakennar a, f. 15.2. 1975. Þeir ra dóttir e r Þórunn Á sta, f. 24.12 . 2001. 3) Guðrún læ knir, f. 14. 11. 1979, í sambúð m eð Þór Halldórssy ni stjórnm álafræðing i, f. 6.6. 19 80. Gísli Eirík ur lauk sk yldunámi á Ísafirði e n hélt suð ur til Reykjav íkur 17 ára gamall til að nema h úsasmíði. Húsasmíð ar urðu æv istarf hans . Framan a f starfsæv- inni vann hann á Tré smíðaverk stæðinu Fu ru en eftir að hafa fengi ð meistara réttindi í i ðn sinni st ofnaði han n sitt eigið f yrirtæki, G ísli, Eiríku r, Helgi, se m hann át ti og rak þar til fyrir fá einum áru m. Stangveiði var aðaláh ugamál Gí sla Eiríks a lla tíð og sinnti h ann meða l annars tr únaðarstö rfum fyrir Stangveið ifélag Reyk javíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskir kju. G 1 gason æddist í . Hann firði 12. drar hans á Þingeyri , og Helgi5, d. 1970. ár sín í að ve tur m sínum dur, f. úkr- u: u ð ur ð Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar 1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum. Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941. Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr- unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru: 1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999. 2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2. 1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3) Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980. Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði. Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv- inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti og rak þar til fyrir fáeinum árum. Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Haraldur Eggertsson Hábæ 42, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut föstudaginn 12. febrúar. Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 23. febrúar kl. 15.00. Hildur Hermannsdóttir Aðalbjörg Haraldsdóttir Þröstur Björgvinsson Guðrún I. Haraldsdóttir Jón Pétursson Svanhildur Haraldsdóttir Ólafur Guðmundsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Garðar Eðvaldsson skipstjóri frá Eskifirði, lést miðvikudaginn 17. febrúar sl. Jarðarförin auglýst síðar. Dagmar J. Óskarsdóttir Hólmfríður Garðarsdóttir Olga Lísa Garðarsdóttir Sigurkarl Stefánsson Arna Garðarsdóttir Jónas Tryggvason Garðar Eðvald Garðarsson Svava Sveinbjörnsdóttir Óskar Garðarsson Benný Sif Ísleifsdóttir og barnabörn. MERKISATBURÐIR 1600 Perúska eldfjallið Hua- ynaputina springur, svo úr verður mesta eldgos í sögu Suður-Ameríku. 1878 Thomas Edison fær einka- leyfi á grafófóninum (Phonograph). 1881 Kansas verður fyrsta ríki Bandaríkjanna til að banna sölu alkóhóls. 1959 Bretland veitir Kýpur sjálf- stæði, sem gengur í gildi 16. ágúst 1960. 1964 Paul Simon skrifar lagið „The Sound of Silence“ sem hálfu ári síðar gerir þá Art Garfunkel fræga sem dúettinn Simon & Garfunkel. 1976 Ísland slítur stjórnmála- sambandi við Bretland vegna deilunnar um fisk- veiðilögsögu Íslands. NIKULÁS KÓPERNIKUS (1473-1543) FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Ég er ekki það heillaður af eigin skoðunum að ég lít- ilsvirði skoðanir annarra á þeim.“ Kópernikus var pólskur stjörnu- fræðingur sem fyrstur lagði fram nútímaútgáfu tilgátunnar um að jörðin snerist kringum sólina. timamot@frettabladid.is „Þetta er alger steypa“ er vinsæll brandari meðal nokkur hundruð fé- lagsmanna Steinsteypufélags Íslands. Þó mun ekki verða töluð eintóm steypa á árlegum steinsteypudegi sem haldinn er á Grand Hóteli Reykjavík í dag. „Steypan er allt í kringum okkur og mun fleiri sem vinna í kringum hana en fólk gerir sér almennt grein fyrir,“ segir Einar Einarsson, formaður Stein- steypufélagsins. Félagið var stofnað árið 1971 og hefur það að markmiði að vinna að framgangi steinsteypu og sementsbundinna efna. „Síðan hefur félagið lifað góðu lífi en þó með hæðum og lægðum,“ segir Einar en með tím- anum hefur félagið þróast út í að vera félag byggingariðnaðarins. Þó ætla mætti að lægð væri í kring- um Steinsteypufélagið nú vegna nið- ursveiflu í byggingariðnaðinum segir Einar svo ekki vera. „Mikið líf ríkir í félaginu og steinsteypudagurinn hefur verið mjög fjölmennur, hundrað manns mættu í fyrra og við búumst við svip- uðum fjölda í ár,“ segir hann. Á steinsteypudaginn verður fluttur fjöldi fyrirlestra um ýmis áhugaveð málefni. Margir þeirra tengjast bygg- ingum góðærisins. Til dæmis verð- ur fjallað um hljóðhönnun í Tónlistar- húsinu, hafnargerð í Landeyjahöfn og botnrás Ufsarstíflu Kárahnjúkavirkj- unar. Einnig verður áhugaverður fyr- irlestur um ofur-létt mannvirki. Einar telur þetta mjög áhugavert fyrir Ís- lendinga þar sem þessi leið opni nýja möguleika í arkitektúr og fyrir notk- un á léttum efnum eins og vikri frá Ís- landi. „Svo munum við velja hús góð- ærisins,“ segir Einar og á þar við Steinsteypuverðlaunin 2010 sem for- seti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun afhenda í lok dags. Staða byggingariðnaðarins verður einnig í brennidepli. „Við munum horfa í kristalskúluna og reyna að sjá hvað er fram undan,“ segir Einar en meðal ann- ars mun Sverrir Bollason hjá VSÓ Ráð- gjöf fjalla um helstu niðurstöður rann- sóknar á byggingamarkaði. Þá verða umræður um stöðu byggingariðnað- arins sem meðal annars Katrín Júlí- usdóttir iðnaðarráðherra, Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, Haukur Magnússon, framkvæmda- stjóri tæknisviðs Íslenskra aðalverk- taka, og Sverrir Kristinsson, fasteigna- sali á Eignamiðlun, munu daga þátt í. Steinsteypudagurinn stendur yfir frá klukkan 9 til 17 í dag en nánari upp- lýsingar má nálgast á vefsíðunni www. steinsteypufelag.is solveig@frettabladid.is STEINSTEYPUFÉLAG ÍSLANDS: HELDUR ÁRLEGAN STEINSTEYPUDAG Velja mannvirki góðærisins FORMAÐUR STEINSTEYPUFÉLAGSINS Einar Einarsson segir mikinn áhuga ríkja á steinsteypu enda sé steypan allt í kringum okkur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Tíu ár eru liðin frá því Reykjaneshöllin, fyrsti yfir- byggði knattspyrnuvöllurinn á landinu, var tekin í notkun. Boðið verður til afmælishá- tíðar af því tilefni í dag. Á þeim tíu árum sem höll- in hefur verið nýtt hafa hátt í 800 þúsund iðkendur komið þar við. Meðal annars hafa eldri borgarar nýtt húsið á morgnana til göngu. Reykjaneshöll markaði spor í knattspyrnusögu Ís- lands en eftir byggingu hennar spruttu upp fleiri slíkar hallir í sveitarfélög- um víða um land. Boðið er upp á kleinur milli klukkan 8 og 11 fyrir gesti og gangandi. Klukkan 17 leika Njarðvík og Reyn- ir um þriðja sætið á afmæl- ismóti Reykjaneshallar. Klukkan 19 verður móttaka með veitingum og ávörpum og afhendingum gjafa og klukkan 20 leika síðan Kefla- vík og Grindavík úrslitaleik afmælismótsins. Reykjaneshöll fagnar tíu árum Gestum og gangandi verður boðið upp á kleinur í dag. MYND/REYKJANESBÆR Sögubíllinn Æringi verður tveggja ára í næstu viku. Ær- ingi var vígður við leikskól- ann Tjarnarborg þann 22. febrúar 2008. Síðan hefur hann ferðast á milli leikskóla og frístundaheimila og boðið börnum upp á sögustund. Ær- ingi er fallega skreyttur að utan af myndlistarmanninum Brian Pilkington en sögukon- an Sóla sér um lesturinn. Forsaga þess að farið var af stað með sögubílinn var að Sigrún Jóna Kristjánsdóttir, starfsmaður Sólheimasafns, fór á ráðstefnu í Suður-Kóreu árið 2006. Þar hlýddi hún á fyrirlestur dansks kollega sem sagði frá nýbreytni í starfssemi bókasafns síns. Þar hafði starfsfólkið látið innrétta og skreyta gám til að börn gætu átt notalega stund með bókum. Gámur- inn var færður á milli staða í sveitarfélaginu á traktor og kerru og hafður í nokkra daga á hverjum stað. Í kjöl- farið var ráðist í að kaupa bíl. Hann er upphitaður og geng- ur allan ársins hring. Afmælisveislan hjá Ær- ingja stendur yfir vikuna 22.-28. febrúar. Hann mun ferðast um eins og venjulega en þó enn þá meira skreytt- ur. Sunnudaginn 28. febrú- ar verður hann við aðalsafn Borgarbókasafnsins milli klukkan 14 og 15. - ve Æringi á afmæli SÖGUBÍLLINN ÆRINGI Heldur upp á tveggja ára afmæli. Þennan dag fyrir áttatíu árum hófst svokölluð Stóra bomba þegar Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, heimsótti Jónas Jónsson frá Hriflu sem þá var dómsmálaráðherra en hann lá þá veikur heima hjá sér í Sambandshúsinu. Fljótlega fóru að ganga miklar sögur í Reykjavík sem og á landinu öllu um fund þeirra Helga. Jónas skrifaði þá stóra grein í Tímanum, málgagni Framsóknar- flokksins, hinn 26. febrúar og var hún opið bréf til Helga. Fyrirsögn greinarinnar var einfaldlega Stóra bomban og af þessari fyrirsögn dregur málið nafn sitt. Í bréfinu lýsti Jónas undrun yfir því að Helgi dæmdi hann geðveikan án þess að hafa rannsakað sig. Grein- in átti stóran þátt í því að snúa almenningsálitinu upp á móti Helga Tómassyni og fylgismönn- um hans. Helgi svaraði honum í annarri grein í Morgunblaðinu. Eftirmál stóru bombunnar stóðu árum saman. Helga var hins vegar vikið úr starfi yfirlæknis á Kleppi 30. apríl. Að sögn Tímans fór Helgi með látum og er sagt að hann hafi boðið hverjum sjúklingi sem vildi að fara. Mörg önnur mála- ferli spruttu upp af stóru bomb- unni og vann t.a.m. Helgi Tóm- asson mál gegn ríkissjóði vegna ólögmætrar brottvikningar frá Kleppi. Heimild: Wikipedia ÞETTA GERÐIST: 19. FEBRÚAR 1930 Stóra bomba hefst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.