Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 19. febrúar 2010 3 „Það má alltaf gera betur. Með því að fá viðskiptavini í lið með sér er hægt að tryggja að bókaúrval- ið sé alltaf í takt við það sem þeir vilja lesa og fletta í gegnum,“ segir Dögg Hjaltalín, bóksali erlendra titla í Bókabúð Máls & menningar á Laugavegi. Bókabúðin hefur nú tekið upp á því að leyfa viðskipta- vinum sínum að stýra úrvalinu í erlendu deildinni með framtaki sem ber heitið „Stjórnaðu úrvalinu“. Dögg segir tilganginn með framtakinu vera þann að leyfa viðskiptavinunum að eiga sinn þátt í innkaupum búðarinnar. Nú geti viðskiptavinirnir sjálfir ráðið hvaða bækur þeir hafa til að velja úr og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Við vorum að fá yfir eitt þúsund nýja erlenda titla í vikunni og við teljum okkur bjóða upp á besta og fjölbreyttasta úrval erlendra bóka hér á landi,“ segir Dögg. „En af fyrirspurnum viðskiptavina búðar- innar má ætla að áhugasvið fólks liggi mjög víða og að sjálfsögðu eru viðskiptavinirnir best til þess fallnir að velja titlana sjálfir. Við höfum komið upp boxi í erlendu deildinni þar sem fólk getur skilið eftir óskir sínar sem við fylgjum svo eftir,“ segir hún ánægð með hið nýja framtak. Nokkrir heppnir viðskiptavin- ir sem skilja eftir nafn og netfang með ábendingum sínum geta svo átt von á bókaglaðningi frá Bóka- búð Máls & menningar. - kg Viðskiptavinir velja sjálfir Bóklestur er Íslendingum í blóð borinn og margir nýta helgar undir það áhugamál. Með nýju átaki Bókabúðar Máls & menningar gefst viðskiptavinum færi á að stýra úrvalinu í erlendu deild verslunarinnar. „Af fyrirspurnum viðskiptavina búðarinnar má ætla að áhugasvið fólks liggi mjög víða,“ segir Dögg Hjaltalín. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Alla jafna eru það börnin sem klæða sig upp á öskudaginn en í kvöld geta þeir sem eldri eru klætt sig upp fyrir dansleik á Gamla bauk. Húsvíkingar og nærsveitamenn geta gert sér glaðan dag um helg- ina en í kvöld verður efnt til ösku- dagsballs á Gamla bauk. Eru gestir hvattir til að mæta í grímubúning á dansleikinn og mun DJ Unnur sjá um tónlistina. Þeir norðlensku herramenn sem vilja síðan gera vel við konu sína á konudaginn geta einnig boðið henni á Gamla bauk en alla helg- ina verður boðið upp á sérstakan konudagsmatseðil sem inniheldur meðal annars karrílagaða sjávar- réttasúpu, nautamedalíur með pip- arsósu og skyramisú í eftirrétt. Öskudagsball á Bauknum Öskudagsball verður haldið í kvöld á Gamla Bauk á Húsavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Nýtt íslenskt leikrit, Blóðsystur, verður frumsýnt af unglingadeild Leikfélags Kópavogs annað kvöld. Unglingadeild Leikfélags Kópa- vogs frumsýnir nýtt íslenskt leik- rit, Blóðsystur, annað kvöld, laug- ardaginn 20. febrúar, í Leikhúsinu við Funalind 2. Handritið var unnið í spuna- vinnu og eru höfundar þess Guð- mundur Lúðvík Þorvaldsson, sem jafnframt leikstýrir verkinu, Víðir Örn Jóakimsson aðstoðarleikstjóri og unglingarnar í hópnum sem eru átta talsins. Félagsmenn Leikfé- lags Kópavogs hjálpuðu síðan til við gerð leikmyndar, búninga og lýsingu. Blóðsystur fjallar um „nokkr- ar guðhræddar stúlkur sem ekki eru allar þar sem þær eru séðar og hinn ráðagóða Sigurð vampíru- bana,“ að því er segir í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar. Næstu sýningar eftir frumsýningu verða miðvikudaginn 24. febrúar og fimmtudaginn 25. febrúar en áhugasömum er bent á heimasíðu Leikfélagsins, kopleik.is og hægt er að panta miða á midasala@kop- leik.is. - jma Unglingadeild frum- sýnir nýtt leikrit Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir Blóðsystur annað kvöld. Félag um átjándu aldar fræði stendur fyrir málþingi undir yfirskriftinni Lækna- vísindi og heilbrigðismál á átjándu og nítjándu öld í Þjóðarbókhlöðu, fyrir- lestrarsal á annarri hæð, á morgun. Fyrirlesturinn hefst klukkan 13.00 og verða flutt fimm erindi en málþingið stendur til 16.30. Erindin sem flutt verða fjalla meðal annars um Yfirsetukvennaskólann sem stofnaður var árið 1749, viðhorf til ljósmæðra á fyrri hluta 19. aldar og lækningar í heitum laugum. Fundarstjóri er Kristín Bragadóttir, sviðsstjóri við Landsbókasafn Íslands – háskólabókasafn en eftir hvert erindi, sem tekur um tuttugu mínútur, gefast tíu mínútur til fyrirspurna og umræðna. Útdrættir úr erindum liggja frammi á málþinginu. Veitingar verða á boðstólum í hléi. - jma Heilbrigðismál á 18. og 19. öld MÁLÞING UNDIR YFIRSKRIFTINNI LÆKNAVÍSINDI OG HEILBRIGÐISMÁL Á ÁTJ- ÁNDU OG NÍTJÁNDU ÖLD FER FRAM Í ÞJÓÐARBÓKHLÖÐUNNI Á MORGUN. Flutt verða erindi um yfirseturkvennaskólann, viðhorf til ljósmæðra á fyrri hluta 19. aldar og lækningar í heitum laugum. Bergstaðastræti 4 – 101 Reykjavík – Sími: 562-0335 Gullsmíðaverkstæði Árna Höskuldssonar lokar 1. mars næstkomandi Opnunartími 13:00 til 18:00 virka daga 40% afsláttur af öllum vörum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.