Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 32
 19. FEBRÚAR 2010 FÖSTUDAGUR4 Músíktilraunir eru einhver frjó- samasta gróðrarstía nýsköpunar og nýliðunar í Íslensku tónlistar- lífi. Óteljandi eru þeir tónlistar- menn sem þar hafa fyrst stigið á svið fyrir alþjóð. Fyrir utan þær hljómsveitir sem sköpuðu sér nafn að afloknum sigri, allt frá Greif- unum til Mínuss. Þegar horft er til baka yfir þátttakendalistana er gaman að sjá hvernig tónlist- arstefnur og stílar hafa átt sín blómaskeið en síðan horfið aftur. Stuðpopptímabilið í upphafi, stutt en snörp dauðarokksbylgjan um 1990 og svo rappið um aldamótin, sem reyndar átti endurkomu í sig- urvegara síðustu keppni, hjá Skag- firðingunum í Bróður Svartúlfs. Það er líka ánægjulegt til þess að vita að fjölmiðlar hafa einatt sýnt keppninni verðskuldaða at- hygli, gjarnan kynnt keppendur fyrirfram og fjallað ítarlega um hvert undankeppniskvöld. Skráningar fara nú fram raf- rænt á vef keppninnar, www. musiktilraunir.is. Undankeppnir fara fram í Íslensku óperunni 15.- 18. mars og sjálft úrslitakvöldið verður svo í Listasafni Reykjavík- ur í Hafnarhúsinu laugar- dagskvöldið 27. mars. Þá bætist enn ein hljómsveit- in í hina glæsilegu röð sig- urvegara, sú tuttugasta og áttunda. Stúdíó Sýrland er líklega þekkt- asta hljóðver landsins. Starfsem- in er þó öllu víðtækari en margur heldur. Fyrirtækið er með hljóð- ver á þremur stöðum á höfuðborg- arsvæðinu, eitt í Danmörku og svo fullkominn búnað til hljóðupptöku á vettvangi (mobile.) Þá er talsetn- ing barnaefnis snar þáttur í rekstr- inum. Einnig annast Sýrland fram- kvæmd á námi í hljóðtækni fyrir Tækniskólann, 60 eininga nám sem kennt er á þremur önnum. Nám- skeið í hljóðupptökum og talsetn- ingu eru haldin reglulega. Í Sýr- landi er einnig hönnunar- og fram- leiðsludeild sem m.a. framleiðir CD- og DVD-diska. Sveinn Kjartansson og Þórir Jó- hannsson keyptu fyrirtækið árið 2007. Sveinn segir reksturinn hafa gengið prýðilega þennan tíma og sífellt sé verið að leita leiða til að bæta þjónustuna og auka framboð- ið. Hljóðverin á Íslandi eru fjög- ur auk þriggja talsetningarhljóð- vera. Sýrland í Skúlatúni skipar sérstakan sess í íslenskri tónlist- arsögu. Það opnaði árið 1987 og þar hafa mörg helstu verk íslenskr- ar dægurtónlistar verið tekin upp. Sýrland í Hafnarfirði á sér merki- lega sögu. Þar var fyrsta alvöru- hljóðver á Íslandi, Hljóðriti, opnað árið 1975. ÚTIBÚ Í DANMÖRKU Á síðasta ári opnaði Sýrland útibú í Danmörku. Innréttað var fullkom- ið hljóðver á gömlu sveitasetri í grennd við Árósa. Tónlistarmenn geta komið og dvalið í ró og næði við upptökur eða æfingar. Allt að 20 manns geta dvalið í einu í tveim- ur íbúðum sem eru á staðnum, en Sýrland í Danmörku er það sem kallast „residential studio“. STÆRSTA HLJÓÐVER Á ÍSLANDI Nýjasta viðbótin er fullkomið hljóðver í Sýrlandi í Vatnagörð- um, í sal sem áður hýsti myndver Saga Film. „Það er búið að breyta salnum þannig að hljóðvistin þar er orðin einkar þægileg,“ segir Sveinn. Þar er frábær aðstaða til að taka upp hljómsveitir af öllum stærðum og gerðum til dæmis allt frá litlum kammerhópum og upp í fullmannaða sinfóníuhljómsveit eða lítil djasskombó upp í stórsveit- ir. „Svo er þetta gráupplagt fyrir rokkhljómsveitir sem vilja hafa rúmt um sig.“ Verið er að leggja lokahönd á uppsetningu á stjórn- herberginu (control room.) Keypt- ur var Cadac-hljóðblöndungur (mixer) og segir Sveinn að í honum séu einhverjir bestu hljóðnemafor- magnarar sem völ er á að hans mati. Hann hentar mjög vel til upptöku á akústískum hljóð- færum. Við hönnun stjórnher- bergisins var gert ráð fyrir að það hentaði vel fyrir vinnslu á tónlist og eins hljóðvinnslu á bíómyndum. „Þetta rennur saman hér. Við horfðum til þess að hér er tekið upp mikið af tón- list fyrir bíómyndir og við vildum því að í rýminu væri möguleiki á að hljóðvinna kvikmyndir jafnt og tónlist,“ segir Sveinn Kjartansson. Þá er í Vatnagörðum stór konsert- flygill sem mikill fengur er að fyrir fjölmarga tónlistarmenn. CAPUT SÝRLAND SESSION ENSEMBLE Sýrland býður, í samstarfi við Caput-hópinn, upp á þjón- ustu við tónskáld um flutning og upptökur á tónlist þeirra. „Við höfum verið að þróa þetta samstarf í nokkurn tíma og á síðasta ári fullmótuðum við þessa hugmynd og hrintum í framkvæmd. Við köll- um þessa einingu Caput- Sýrland Session Ensemb- le. Caput-hópurinn hefur á að skipa frábærum hljóð- færaleikurum og við teljum okkur vera með frábæra að- stöðu. Þessi þjónusta nýt- ist öllum þeim tónskáldum sem eru að leita eftir flutn- ingi og upptökum á klassísk- um hljóðfærum. Þetta getur átt við um kvikmyndatónlist, dæg- urtónlist og fleira. Við höfum þegar unnið nokkur verkefni sem hafa komið mjög vel út,“ segir Sveinn og bætir við að þetta samstarf sé ekki síður hugsað fyrir erlend tónskáld og framleiðendur. Stúdíó Sýrland stækkar við sig ● Tekur í notkun stórt hljóðver í Vatnagörðum. Sveinn Kjartansson, yfirmaður tæknimála hjá Sýrlandi, og S. Björn Blöndal í hinu nýja hljóðveri í Vatnagörðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SIGURVEGARAR MÚSÍKTILRAUNA 1982 DRON 1983 Dúkkulísurnar 1984 Engin keppni haldin vegna verkfalls kennara 1985 Gypsy 1986 Greifarnir 1987 Stuðkompaníið 1988 Jójó 1989 Laglausir 1990 Nabblastrengir 1991 Infusoria 1992 Kolrassa krókríðandi 1993 Yukatan 1994 Maus 1995 Botnleðja 1996 Stjörnukisi 1997 Soðin fiðla 1998 Stæner 1999 Mínus 2000 XXX Rottweilerhundar 2001 Andlát 2002 Búdrýgindi 2003 Dáðadrengir 2004 Mammút 2005 Jakobínarína 2006 The Foreign Monkeys 2007 Shogun 2008 Agent Fresco 2009 Bróðir Svartúlfs XXX Rottweilerhundar unnu Músíktilraunir 2000. Hljómsveitin Jakobínar- ína kom hins vegar, sá og sigraði á Músíktilraunum fimm árum síðar. Hjaltalín ásamt kammersveit við upptökur á plötunni Terminal í Sýrlandi Vatnagörð- um. Platan var tekin upp í Sýrlandi Vatnagörðum og Hafnarfirði (Hljóðrita). M YN D /H Ö RÐ U R SV EI N SS O N Skráning hafin í Músíktilraunir ● Hin árlega hljómsveitakeppni Músíktilraunir er að hefjast. Skráningar standa nú yfir og lýkur þeim 1. mars. Keppnina sjálfa er óþarft að kynna, enda hátt í þrjátíu ára samfelld saga að baki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.