Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 4
4 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 5° 1° 1° 5° 3° 3° 1° 1° 20° 4° 15° 6° 18° -7° 5° 14° -4° Á MORGUN 5-10 m/s, hvassara SA-til. MÁNUDAGUR 5-15 m/s, hvassast SA-lands. -2 -2 -2 2 2 0 -1 2 -4 -4 -8 10 10 13 12 10 7 10 8 15 12 9 -3 0 -2 -4-4 -2 -2 -4-4 -3 HELGARHORFUR Veðrið um helgina verður keimlíkt því sem verið hefur, áfram norðaust- lægar áttir ríkjandi með éljum um norðan- og aust- anvert landið en suðvestanlands verður nokkuð bjart. Það dregur lítillega úr frosti í dag en um helgina verður frost víðast á bilinu 0-8°C. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður NÍGER, AP Líklegt þykir að valda- rán hafi verið framið í Níger í Vestur-Afríku. Hermenn með alvæpni réðust inn í forsetahöll- ina um miðjan dag, og hafði ekk- ert spurst til Mamadou Tandja forseta í gærkvöldi. Reykur barst frá forsetahöll- inni eftir um 20 mínútna skotbar- daga milli hermanna og lífvarða forsetans. Vitni sagði hermenn- ina hafa fært forsetann á brott. Níger var svo til útilokað frá samfélagi þjóðanna eftir að for- setinn breytti stjórnarskrá til að halda völdum og fá sjálfum sér alræðisvald í hendur í desember síðastliðnum. - bj Byssuskot í forsetahöll Níger: Valdarán líklega framið VIÐURKENNING Hilmir Hjálmars- son hjá Sveinsbakaríi bar sigur úr býtum í keppni um Köku árs- ins sem Landssamband bakara- meistara efnir til árlega í sam- starfi við Nóa-Síríus. Alls bárust tíu kökur í keppn- ina og þurfa innsendar kökur að vera fallegar, bragðgóðar og lík- legar til vinsælda. Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um helgina en hefð er fyrir því að kakan sé kynnt um konudags- helgina. Sigurkakan í ár er sam- sett úr dökkum súkkulaðibotni, hvítum botni, núggatmús og hjúp- uð með dökkum Konsum orange- súkkulaðihjúp. Kaka ársins valin: Nóg af súkku- laði og núggat MEÐ SIGURKÖKUNA Hilmir Hjálmarsson sigraði í keppninni um köku ársins. BANDARÍKIN, AP Dalaí Lama, leið- togi útlagastjórnar Tíbeta á Ind- landi, segist ánægður með þann stuðning sem hann fékk frá Bar- ack Obama Bandaríkjaforseta. Þeir hittust í Hvíta húsinu í Washington í gær, þrátt fyrir harða andstöðu kínverskra stjórnvalda. Að loknum fundin- um sagði Robert Gibbs, talsmað- ur Bandaríkjaforseta, að Obama hafi lýst yfir stuðningi sínum við „varðveislu hinna einstæðu trúar- bragða, menningar og tungumáls Tíbeta og mannréttindavernd þeirra“. - gb Dalaí Lama hitti Obama: Ánægður með stuðninginn DALAÍ LAMA Í WASHINGTON Obama forseti lýsti yfir eindrægnum stuðningi við málstað Tíbeta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EFNAHAGSMÁL Fulltrúar íslenskra stjórnvalda óskuðu eftir yfirlýs- ingu frá bandarískum stjórnvöld- um um stuðning við sjónarmið Íslands í Icesave-málinu á tveggja tíma fundi með fulltrúa banda- rískra stjórnvalda 12. janúar. Þeir Einar Gunnarsson, ráðu- neytisstjóri utanríkisráðuneyt- isins, og Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, funduðu með Sam Watson, sem stýrir sendiráði Bandaríkjanna hér á landi þar sem sendiherra hefur ekki verið skipaður. Í trúnaðarskjali sem sent var frá sendiráðinu til bandarískra stjórnvalda, og birt var á síðunni Wiki leaks í gærkvöldi, er haft eftir Einari að fari allt á versta veg í Icesave-málinu gæti Ísland orðið gjaldþrota strax á næsta ári. Einar og Kristján sögðu íslensk stjórnvöld þurfa alþjóðlegan stuðn- ing í baráttu sinni við Breta og Hollendinga. Watson sagði á móti bandarísk stjórnvöld ætla að halda hlutleysi í málinu. Í minnisblaðinu er í framhaldinu haft eftir þeim Einari og Kristj- áni að slíkt hlutleysi væri í raun ómögulegt þegar tvö stór lönd væru að kúga lítið land. Í skjalinu kemur einnig fram að Watson hafi fundað með Ian Whiting, sendiherra Bretlands á Íslandi. Haft er eftir Whiting að bresk stjórnvöld hafi fengið mis- vísandi skilaboð frá íslenskum stjórnvöldum. Fyrst hafi þau talað fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu en svo vilji þau nýja samninga. - bj Fulltrúar íslenskra stjórnvalda báðu Bandaríkjamenn um stuðning vegna Icesave: Óttuðust þjóðargjaldþrot 2011 EINAR GUNNARSSON KRISTJÁN GUY BURGESS GENGIÐ 18.02.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 230,3209 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128 128,62 199,77 200,75 173,81 174,79 23,349 23,485 21,631 21,759 17,76 17,864 1,4088 1,417 196,06 197,22 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is NEYTENDUR Full ástæða er til að nýta heimild í nýjum lögum um neytendalán til að setja skilyrði fyrir veitingu smálána, að mati Neytendastofu. Slík skilyrði myndu meðal annars skylda veitendur svo- kallaðra SMS-lána til að gera lán- takendum gleggri grein fyrir kostn- aði við lántökuna. Efnahags- og viðskiptaráðuneyt- ið undirbýr nú frumvarp sem inn- leiða á nýja tilskipun Evrópusam- bandsins um neytendalán. Þar er meðal annars að finna heimild til að setja sérstök lán undir 200 evrum, 35 þúsund krónum, sem hingað til hafa verið undanskilin lögum um neytendalán, segir Tryggvi Axels- son, forstjóri Neytendastofu. Starfsmenn Neytendastofu hafa þegar verið í sambandi við efna- hags- og viðskiptaráðuneytið vegna þessa, en endanleg ákvörðun verð- ur tekin þar. Verði smálánin felld undir hefð- bundin ákvæði laga um neytenda- lán þurfa forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem þau veita að gefa viðskiptavinum mun ýtarlegri upplýsingar en nú er gert, segir Tryggvi. Til dæmis þurfi að upplýsa hver kostnaðurinn við lántökuna er á ársgrundvelli með svokall- aðri árlegri hlutfallstölu kostnaðar við lánið. Slíka hlutfallstölu þurfa önnur fyrirtæki sem veita lán allt- af að upplýsa sína lántakendur um í dag, segir Tryggvi. „Þetta mun auka vernd neytenda, en á endanum er valið þeirra,“ segir Tryggvi. Kjósi neytandinn að taka lán á okurvöxtum sé það ákvörðun hans. Tryggvi segir það á verksviði efnahags- og viðskiptaráðuneyt- isins að ákveða hvort sett verði sérstök lög um að starfsemi smá- lánafyrirtækja verði gerð starfs- leyfisskyld. Í dag þurfa fyrirtæki sem veita smálán ekki að fá starfsleyfi þrátt fyrir að standa í lánastarfsemi. Í svari Fjármálaeftirlitsins við fyr- irspurn Fréttablaðsins kemur fram að slík fyrirtæki teljist ekki fjár- málafyrirtæki þar sem þau fjár- magni útlán sín ekki með innlán- um. Því þurfi þau ekki að sækja um leyfi til lánastarfsemi til eftir- litsins. Í dag býður eitt fyrirtæki upp á svokölluð SMS-lán, en heimildir Fréttablaðsins herma að fleiri íhugi nú að fara út í slíka lánastarfsemi. Til að taka slík lán þarf að skrá sig á vefsíðu fyrirtækisins, og senda svo SMS til að fá skyndilán allt að 40 þúsund krónum í fimmtán daga. brjann@frettabladid.is Má setja skilyrði fyr- ir veitingu smálána Nýleg tilskipun ESB heimilar að sett séu skilyrði um veitingu smálána. Myndi skylda smálánafyrirtæki til að sýna lántakendum kostnað á ársgrundvelli. Þarf að stoppa í göt á lögum um fjármálafyrirtæki, segir forstjóri Neytendastofu. SKYNDILÁN Hægt er að taka allt að 40 þúsund króna lán með því að senda SMS- skilaboð hjá eina fyrirtækinu sem býður upp á smálán hér á landi. DÓMSMÁL Tveir karlmenn á þrí- tugsaldri hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í nokk- urra mánaða fangelsi fyrir kanna- bisræktun og vörslu fíkniefna. Mennirnir voru teknir í mars á síðasta ári, þar sem þeir ræktuðu 503 kannabisplöntur í Engihjalla í Kópavogi. Annar þeirra hafði áður verið tekinn með sex plönt- ur á öðrum stað. Þá hafði fund- ist maríjúana og tóbaksblandað kannabisefni hjá honum. Annar mannanna var dæmdur í níu mán- aða fangelsi en hinn fimm. - jss Héraðsdómur Reykjavíkur: Dæmdir fyrir kannabisræktun Minni verðmæti en í fyrra Heildarafli íslenskra fiskiskipa, metinn á föstu verðlagi, í janúar síðastliðnum var 8,9 prósent minna en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Umtalsvert færri tonn voru veidd í ár, eða 55.445 tonn samanborið við 71.520 tonn í janúar í fyrra. SJÁVARÚTVEGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.