Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 20
BÍLAÞVOTTI er gott að sinna um helgar. Sumir sjá sjálfir um þvott- inn, aðrir leyfa bónstöðvum að sjá um vinnuna. Nú getur fólk á suðursvæði Vestfjarða í fyrsta sinn nýtt sér slíka þjónustu því nýlega opnaði bón- og þvottastöð á Patreksfirði. Hátíðin Fóður og fjör var fyrst haldin árið 2008 og var svar veit- ingastaða á landsbyggðinni við matarhátíðinni Food & Fun í Reykjavík. Fjölmargir veitinga- staðir um allt land tóku þátt fyrstu tvö árin en nú virðist áhuginn hafa fjarað út, nema hjá kokkunum á veitingastaðnum Við pollinn á Ísa- firði sem ætla að halda uppi merkj- um hátíðarinnar um helgina. Hlutverk hátíðarinnar var að kynna íslenskt hráefni til matar- gerðar auk þess að kynna hvað um er að vera á hverju landsvæði. Eigendur veitingastaðarins Við pollinn, Eiríkur Gísli Johansson og Halldór Karl Valsson, tóku við rekstrinum í ágúst 2007. Eirík- ur segir að frá upphafi hafi hátíð- inni verið vel tekið. Fyrstu tvö árin komu gestakokkar, en í ár sjá þeir sjálfir um matreiðsluna. Eiríkur sagðist ekki vita til þess að fleiri veitingastaðir tækju þátt í ár. Hann hefur þó trú á að hátíðin geti vaxið og dafnað, en veitinga- staðir á landsbyggðinni séu ekki með síðri matseðla eða kokka en í Reykjavík. „Það verður bara að blása í lúðra á næsta ári og þjappa liðinu saman aftur, það hefur aldrei skort samstöðu hjá lands- byggðarfólkinu.“ Fóður og fjör-matseðillinn verð- ur frá fimmtudegi til laugardags, en á laugardaginn mun Megakukl skemmta mannskapnum en band- ið spilar lög Megasar. Elvar Logi Hannesson leikari mun vera í far- arbroddi sem Megas. Eiríkur segir að síðustu ellefu árin hafi saltfisk- rétturinn á matseðlinum verið langvinsælastur. „Enda erum við með besta saltfisk í heimi sem er framleiddur hér fyrir vestan,“ segir hann glaðlega. Á matseðli helgarinnar verður einmitt útfærsla á saltfiski í formi saltfiskpitsu, sem verður í forrétt ásamt bláberja og brennivínssorb- et. Í aðalrétt er sveppa- og spínat- fyllt lambarúlla með soðkartöflu og rauðvínssósu og að lokum er rabarbara-creme brulé með rabar- baraís. En hverjir sækja Fóður og fjör? „Það eru aðallega heimamenn,“ segir Eiríkur. „Breiður hópur fólks sem vill borða góðan mat og skemmta sér.“ - sgá Vilja halda uppi merkj- um Fóðurs og fjörs Áhugi veitingastaða á hátíðinni Fóður og fjör virðist hafa dvínað. Kokkar á ísfirska veitingastaðnum Við pollinn ætla þó að vera með sérstakan matseðil og ýmsar uppákomur undir merkjum Fóðurs og fjörs. Nýir eigendur tóku við rekstri veitingastaðarins Við pollinn árið 2007. Listakonan Dodda Maggý hefur sýnt í Listasafni Reykjavíkur undanfarið en síðasti sýningar- dagur er á sunnudaginn. Lucy nefnist myndbands- og hljóð- innsetning Doddu Maggýjar sem er fimmtándi listamaðurinn til að sýna í D-salar verkefni Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Í verkinu kannar listamaðurinn hugmyndina um hljóðskynjun út frá mannsröddinni og mannslík- amanum. Dodda Maggý hefur sýnt á samsýningum víða um heim. Hún lauk námi frá Listaháskóla Íslands, MFA gráðu frá The Royal Danish Academy of Fine Arts og síðar sömu gráðu úr samræmdu námi listaháskóla á Norðurlöndun- um með áherslu á hljóðverk. Sýn- ingarstjóri er Yean Fee Quay. Sýningarlok á verkum Doddu Maggýjar eru á sunnudag. Næsti listamaður til að sýna í D-salnum er Katrín Elvarsdóttir en sýning hennar verður opnuð 25. febrúar. Sýningarlok á Lucy Dodda Maggý sýnir í D-sal Hafnarhúss- ins. Sálrænn stuðningur Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið Sálrænn stuðningur þriðjudaginn 1. mars kl. 17-21 í Hamraborg 11, 2 hæð. Þátttökugjald er 5000 krónur. Leiðbeinandi er Margrét Blöndal. Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 www.redcross.is/kopavogur opið virka daga kl. 10-16 Skráning er til 13. okt. Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Þátttakendur læra að gera sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning og umhyggju. i r Innifalið er þátttökuskírteini og námskeiðsgögn. Frekari upplýsingar fást í síma 554 6626 með tölvupósti á kopavogur@redcross.is. Skráning er til 25. febrúar. Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar fá ókeypis á námskeiðið og félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið fá 10% afslátt. OUTLET – LAUGAVEGI 94 Opnunartími: mán. til fös. 11:00 – 18:00. Laug. 11:00 – 16:00. MC PLANET Outlet • Laugarvegur 94 • 101 Reykjavík. • Sími 552 8090 LOKADAGAR ÚTSÖLUMARKAÐS STÓRLÆKKAÐ VERÐ 3000 kr. 5000 kr. 7000 kr. 9000 kr. Búðin lokar á laugardag ! Næst síðasti dagur Nýtt kortatím abil s g Mjódd UPPLÝSINGAR O
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.