Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 49
FÖSTUDAGUR 19. febrúar 2010 21 Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, stjúpsonur og bróðir, Rögnvaldur Ámundason, sem lést að heimili sínu 15. febrúar, verður jarðsunginn föstudaginn 19. febrúar frá Grafarvogskirkju kl. 15.00. Anatta Ámundason Ámundi Rögnvaldsson Benoný Þorsteinn Rögnvaldsson Eva Jónsdóttir Benoný Þ. Gunnarsson Helga Ámundadóttir og fjölskylda Ásdís Ámundadóttir og fjölskylda Hrönn Ámundadóttir og fjölskylda Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Þorvaldsson rafvirkjameistari, Stóragerði 9, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala, Landakoti þriðjudaginn 9. febrúar. Útförin verður gerð frá Grensáskirkju föstu- daginn 19. febrúar kl. 15.00. Guðrún Jónsdóttir Sigrún Sigurðardóttir Magnús R. Jónasson Vilborg Sigurðardóttir Guðmundur Gunnlaugsson Ólöf Sigurðardóttir Jón Sigurðsson Sigríður Kristjánsdóttir afa- og langafabörn. Okkar elskulega móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Sveinbjörg H. Arnmundsdóttir Skógarseli 43, Reykjavík, lést á Landspítalanum að morgni 16. febrúar. Inga Þóra Geirlaugsdóttir Jón Dalbú Hróbjartsson Kári Geirlaugsson Anna J. Guðmundsdóttir Hörður Geirlaugsson Sigrún Gísladóttir Þuríður Erna Geirlaugsdóttir Laufey G. Geirlaugsdóttir Sigurbjörn Þorkelsson Geirlaug B. Geirlaugsdóttir Kristján Harðarson barnabörn og barnabarnabörn. Útförin verður í Hallgrímskirkju mánudaginn 1. mars 2010, kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sveinusjóð – sem stofnaður var til uppbyggingar sumarbúðastarfi KFUM og KFUK í Ölveri. Kennitala 420369-6119. Reikningsnúmer 0701-05-302000. Einnig er tekið við minningargjöfum í þjónustumiðstöð KFUM og KFUK við Holtaveg eða í síma 588 8899. Elskulegur faðir okkar, bróðir, fóstur- sonur, tengdafaðir og afi, Sigurður Þorvaldsson lést á gjörgæsludeild Landspítalans Hringbraut, föstudaginn 12. febrúar. Útförin fer fram 25. febrúar kl 11.00 í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Hátúni 2. Jarðsett verður í Hruna sama dag. Fjölskylda Sigurðar þakkar auðsýnda samúð og hlýhug í sinn garð. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjörgæslunnar fyrir hlýju á erfiðri stundu. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Kiwanisklúbbinn Geysi. Fyrir hönd aðstandenda, Aðalheiður Svana Sigurðardóttir Bárður Jón Grímsson Viktor Svan Sigurðarson Hlynur Smári Sigurðarson Aron Snær Sigurðarson Erna Hannesdóttir Ingibjörg Erla Björnsdóttir Björn Júlíusson Jóhanna, Bjarki, Bríet Ósk og Svanbjörn Bárðarbörn Ernir Leó Hlynsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir og amma, Lóa Hallsdóttir Löngumýri 36, Selfossi, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands miðvikudaginn 17. febrú- ar. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 26. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahús Suðurlands. Agnar Hólm Kolbeinsson Kolbeinn Agnarsson Guðríður Jónsdóttir Kristrún Agnarsdóttir Róbert Agnarsson Sigrún Ósk Ómarsdóttir Ásdís Helga Agnarsdóttir Janis Leonovs og barnabörn. Móðir okkar, Jóna Einarsdóttir frá Leirulækjarseli, Arnarkletti 12, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00. Börn, tengdabörn, ömmu- og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, dóttir, systir og barnabarn, Sigrún Kristbjörg Tryggvadóttir Snægili 12, Akureyri, lést 13. febrúar. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju þriðjudaginn 23. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð sem hefur verið stofnaður til styrktar sonum hennar 0302-13-495 kt. 050663-6639. Patrik Orri Jóhannsson Geir Örn Jacobsen Arna Ósk Geirsdóttir Viðar Gunnarsson Tryggvi Pálmason Viðar Geir Viðarsson Rakel Ósk Viðarsdóttir Arna Lind Viðarsdóttir Pálmi Hrafn Tryggvason Pétur Orri Tryggvason Sunna Margrét Tryggvadóttir Geir Örn Ingimarsson Herborg Káradóttir Stella Björt Gunnarsdóttir hefur komið á laggirnar nýju tískubloggi sem nefn- ist Starb Tískublogg. Tískublogg njóta aukinna vinsælda bæði hér á landi sem og erlendis. „Ég ákvað að byrja að blogga af því að ég hef alltaf haft gríðarlegan áhuga á tísku og hef gaman af því að lesa svona tískublogg og mig langaði að prófa sjálf. Ég skrifa í raun um allt milli himins og jarðar á blogginu, kem með góðar ábendingar um hvar hægt sé að gera góð kaup, skrifa um ein- staka hönnuði og svo set ég stundum inn mínar eigin myndir og stílisering- ar því ég vil einnig reyna að koma mér á framfæri á því sviði,“ útskýrir Stella Björt, sem er á lokaönn á félagsfræði- braut í Borgarholtsskóla. Hún segist ávallt hafa haft mikinn áhuga á tísku og nefnir í því samhengi að þegar hún var barn vildi hún aðeins fá mjúka pakka að gjöf. Í september hyggst hún halda utan og er ferðinni heitið til Lundúna þar sem hún ætlar að stunda nám við London College of Fashion og læra stíl- iseringu. Stella Björt skrifar allar færslur sínar á ensku og segir hún það ekki flækjast mikið fyrir sér. „Ég er með- limur á vefsíðu sem kallast Chictop- ia.com sem er nokkurs konar samfé- lag tískuáhugamanna. Margt af því fólki heimsækir síðuna mína og þess vegna ákvað ég að skrifa á ensku. Það er auðvitað aðeins erfiðara heldur en að skrifa á íslensku, en enskukunnátta mín er ágæt,“ segir Stella Björt sem hyggst blogga áfram svo lengi sem hún hefur tíma til og á meðan fólk les síð- una. Slóðin á síðu Stellu Bjartar er www. stellabjort.blogspot.com. - sm Nemi heldur úti tískubloggi BLOGGARI Stella Björt Gunnarsdóttir, nemi við Borgarholtsskóla, heldur úti skemmtilegu tískubloggi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Hópnum Mindgroup hefur verið boðið að sýna leikritið Góðir Ís- lendingar á leiklistar- hátíðinni Ný leikrit frá Evrópu (Neue Stücke aus Europa) í Wiesbaden. Þetta er virtasta alþjóð- lega leiklistarhátíð heims og einbeitir hún sér eingöngu að nútímaleikrit- um. Hátíðin verð- ur haldin í tíunda sinn dagana 17.-24. júní. Um það bil þrjátíu sýn- ingum er boðið til há- tíðarinnar frá löndum Evrópu. Öll leik- rit hátíðarinnar eru flutt á móð- urmáli viðkom- andi sýningar og þýdd jafn óðum á þýsku. Íslendingar til Þýskalands LEIKSKÁLD Jón Atli Jónasson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.