Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 26
4 föstudagur 19. febrúar
núna
✽ fataskápurinn
VETRARSÓL Nú er sólin lágt á lofti og um að
gera að setja upp skvísugleraugun. Þessi eru frá dior
og fást í Gleraugnasmiðjunni.
Hvernig myndir þú lýsa
þínum stíl? Margbreytilegur.
Það er eiginlega ekkert sjáan-
legt mynstur þegar það kemur
að stílnum mínum. Einn dag-
inn er ég klædd eins og skógar-
höggsmaður, þann næsta eins
og portkona.
Hverjir eru uppáhalds-
hönnuðirnir þínir? Christop-
her Kane, Martin Margiela og
að sjálfsögðu Bóas (8045) og
Mundi.
Hvar finnst þér sniðugast að
versla í Reykjavík? Þar sem
maður býst síst við að finna
eitthvað flott. Ég fer til dæmis
í búðir sem eru mjög ólíkar
mínum stíl því það vill oft verða
að það sem ég fíla lendir á út-
sölurekkanum. Annars versla ég
mest í Hjálpræðishernum þar
sem hann er á leiðinni heim úr
háskólanum. Galdurinn er að
kíkja oft, þá finnur maður alltaf
eitthvað frábært á endanum.
Uppáhaldsverslun erlendis?
Ég versla ekki í útlöndum. Þá
fyrst myndi íslenska efnahags-
kerfið hrynja fyrir alvöru.
Hver er tískufyrirmyndin
þín? Ég held satt best að segja
að ég eigi enga slíka. Ætli að
allir séu ekki bara mínar tísku-
fyrirmyndir. Nema kannski Lil
Kim.
Frá hvaða áratug sækir þú
mestan innblástur? Engum
sérstökum, svona þegar ég pæli
í því. Ég er dálítið eins og braut-
arpallurinn í Harry Potter, ein-
hvers staðar á milli.
Hvað er að þínu mati alveg
bannað þegar það kemur að
stíl? Það er alveg bannað að
halda að eitthvað sé bannað.
Nema stuttar leggings. Það er
bannað.
Hvað er á óskalistanum
akkúrat núna? Ég veit það
um leið og ég sé það. Þess
vegna loka ég alltaf augunum
í dýrum verslunum. Annars var
ég að stroka gult naglalakk af
óska listanum þar sem ég fann
eitt slíkt í Megastore í Smára-
lind. Maður finnur nefnilega frá-
bærustu hlutina á furðulegustu
stöðunum. - amb
Steingerður Sonja Þórisdóttir nemi
Eins og brautarpall-
urinn í Harry Potter
1 Pils: Sonia Rykiel úr Hjálpræðishernum. Kjóll (notaður sem
bolur): Top Shop. Belti: Kolaportið. Sokkabuxur: Konur og
Menn (Ísafirði). Skór: Manía.
2 Kápa: Glamúr (Faldurinn að framan tekinn upp og fest-
ur með belti). Gallabuxur: Cheap Monday. Skór: Nostalgía.
Belti: Kolaportið.
3 Jakki: Hjálpræðisherinn. Buxur: Hjálpræðisherinn. Bolur:
Hjálpræðisherinn. Belti: Kolaportið. Skór: Manía.
4 Uppáhaldshlutirnir sem voru myndaðir voru Jeremy Scott
sólgleraugu úr Liborius og leðurjakki úr Zara.
FR
É
TTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
21 3
4
Öflugar og ódýrar brynjur
frá SIXSIXONE
Motocross hanskar í úrvali
Motocrossbuxur
frá FLY
Herrajakkar
Dömujakkar
Hjálmar í úrvali
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…