Fréttablaðið - 19.02.2010, Page 10

Fréttablaðið - 19.02.2010, Page 10
10 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR VR krefst greiðsluaðlögunar sem nær til almennra skulda og veðskulda, þ.e. bæði íbúðalána og bílalána. Velvild ykkar og framlög gerðu gæfumuninn. Bestu þakkir til allra sem lögðu starfsemi samtakanna lið fyrir jólin. Reykjavíkurdeild Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Rauði krossinn í Reykjavík og styrktaraðilum ómetanlega hjálp og óeigingjarnt starf við jólaaðstoðina UTANRÍKISMÁL „Finnist ekki sann- gjörn úrlausn í skuldamálum tapa allir,“ segir breski stjórnmála- maðurinn Diana Wallis, en hún er varaforseti Evrópuþingsins. Wallis hélt erindi í Háskólanum í gær undir yfirskriftinni „Icesa- ve, Ísland og Evrópusambandið – hvers skuld er þetta annars?“ Í máli hennar kom þó fram að mikilvægt væri að horfa til ábyrgðar bæði þeirra sem lána og taka lán þegar tekist er á um skuldir og kvaðst hún vona að lausn sem allir gætu sætt sig við varðandi Icesave væri nú að verða til í viðræðulotunni í Lund- únum. Wallis ræddi einnig um hug- myndir um að aðild að Evrópu- sambandinu (ESB) kynni að hjálpa Íslandi og þá sér í lagi með upptöku evrunnar. „En ég hef alla tíð bent á að það sé engin skyndi- lausn. Og kannski er það ekki einu sinni lausn. Ef þið viljið ganga til liðs við okkur þá verður það að vera af mörgum fjölbreyttum ástæðum. Ekki bara út af leit að vari í stormi,“ sagði hún og benti á fordæmi Grikklands sem nú á í þrengingum. „Ef evrusvæðið á að virka þá þarf að framfylgja þar ströngum reglum.“ Þá sagði Wallis að þótt aðildar- umsókn Íslands að ESB væri að forminu til aðskilið mál frá Ice- save, þá réði það kannski dálítið stemningunni. Bretar og Hollend- ingar gætu mögulega beitt neit- unarvaldi þegar umsókn lands- ins verður tekin fyrir í mars, en það taldi hún engu síður ólíklegt án víðtækara samráðs við önnur ríki. „Möguleikinn er hins vegar til staðar og þess vegna vona ég að skynsamleg lausn finnist í yfirstandandi viðræðum.“ Ísland segir Wallis hins vegar hafa forskot því þar er hafið upp- gjör og endurskoðun vegna fjár- málakreppunnar. Bretar hafi frestað slíkri naflaskoðun, þótt hennar væri sárlega þörf, fram yfir næstu kosningar. „Erfið reynsla ykkar kann að vera öðrum mikils virði og dæmi sem læra má af,“ sagði hún og kvað heiminn allan þurfa að endurmeta áhættumat á fjármálamörkuðum, jafnt innanlands sem utan. Wallis sagði hins vegar óþarft fyrir Íslendinga að bera kvíð- boga fyrir Evrópusamstarfi. Kjósi þjóðin að taka þátt hafi hún margt að bjóða, svo sem sérþekk- ingu í sjávarútvegi, í orkumálum og málefnum norðurheimskauts- ins. „Evrópusambandið bíður hins vegar ekki með opna arma, þið þurfið að sýna að þið viljið taka þátt,“ segir hún og varar við flýti í aðildarferlinu. „Þið þurfið að átta ykkur á í hvaða átt er stefnt og vera sátt við þá stefnu.“ olikr@frettabladid.is DIANA WALLIS Varaforseti Evrópuþingsins, Diana Wallis, segir að Ísland yrði langt því frá áhrifalaust á Evrópuþinginu, enda möguleikar þingmanna þar til að vinna málum brautargengi oft meiri en þingmanna þjóðþinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Varar við miklum flýti í aðild að ESB Bretar og Hollendingar gætu beitt neitunarvaldi þegar ESB tekur fyrir aðildar- umsókn Íslands, segir Diana Wallis, varaforseti Evrópuþingsins. Hún segir slíkt þó ólíklegt og vonast eftir skynsamlegri niðurstöðu í yfirstandandi Icesave-viðræðum. ALÞINGI Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, segist vera hlynnt því að allar upplýsingar um aðdraganda stuðnings Íslands við Íraksstríðið verði gerðar opinberar. Þetta sé þó ekki sérlega brýnt, enda liggi allar upplýsingar um málið þegar fyrir. Rætt var um tvær þingsálykt- unartillögur um málið á Alþingi í gær. Önnur snýr að opinberun allra upplýsinga um aðdragand- ann að ákvörðuninni, sem fyrir liggur að var tekin af Davíð Odds- syni og Halldóri Ásgrímssyni. Hin snýr að skipun þingmannanefndar sem falið yrði að rannsaka aðdrag- andann. Að þeirri tillögu standa 27 þingmenn úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sem mælti fyrir síðari tillögunni, sagði að mikilvægt væri að fá botn í það hvernig tveir menn gátu tekið svo stóra ákvörðun einir síns liðs. Þorgerður Katrín samsinnti því, en benti á að það sama þyrfti að ganga yfir aðrar umdeildar ákvarðanir sem ekki hefðu verið bornar undir þing eða þingnefnd- ir. Tiltók hún Icesave-samningana í því samhengi. Þorgerður sagði að á sínum tíma hefði verið fyllilega eðlilegt að styðja innrásina, enda hefði hún verið gerð af okkar helstu banda- lagsþjóðum. „Allar þær upplýs- ingar sem við höfum í þessu máli, það er sjálfsagt og eðlilegt að þær verði dregnar fram í dagsljósið. En þær liggja allar fyrir. Það er búið að ræða þetta út í hið óendan- lega hér í þinginu fram til þessa og ef menn vilja einfaldlega fara í þessa vinnu aftur þá bara gera menn það.“ Þorgerður furðaði sig á for- gangsröðinni hjá stjórnarliðum á þessum umbrotatímum, og sagði málið smjörklípu, hugsaða til að dreifa athyglinni frá því að ríkis- stjórninni gengi illa. - sh Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir Íraksrannsókn smjörklípu, en vill þó fá allar upplýsingar upp á borðið: Segir allt um stuðninginn við Íraksstríð liggja fyrir ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR Varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill að allar upplýsingar um aðdragandann að stuðningi Íslands verði gerðar opinberar. DÓMSMÁL Erla Hlynsdóttir, blaða- maður á DV, hefur verið dæmd í Hæstarétti til að greiða Helgu Har- aldsdóttur, eiginkonu Guðmundar Jónssonar, kenndum við Byrgið, 300 þúsund krónur í miskabætur og 100 þúsund til þess að standa straum af kostnaði við birtingu dómsins. Hér- aðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Erlu til að greiða Helgu 100 þúsund krónur í miskabætur. Forsaga þessa er sú, að Helga höfðaði mál til ómerkingar ummæla í fjórtán stafliðum, sem birtust í grein í DV í ágúst 2007. Tilefni greinarinnar var rannsókn á mál- efnum Guðmundar, eiginmanns Helgu, sem var sakfelldur með dómi Hæstaréttar í desember 2008 fyrir að hafa ítrekað haft kynferð- ismök við konur, sem á þeim tíma voru vistmenn á meðferðarheimil- inu Byrginu, sem Guðmundur veitti forstöðu. Viðmælendur DV voru fyrrver- andi starfsmaður Byrgisins og ein þeirra kvenna sem hann var dæmd- ur fyrir að hafa beitt kynferðislegri misneytingu. Helga stefndi þeim og blaðamanninum sem viðtalið var merkt. Hæstiréttur taldi ekki ástæðu til að ómerkja þrettán ummælanna, sem birtust í viðtalinu. en ómerkti hin fjórtándu þar sem haft er eftir fyrrverandi skjólstæðingi Byrgis- ins að „… ekki við hæfi að sú sem veiðir fyrir hann vinni við grunn- skóla“. Hæstiréttur dæmdi Helgu til að greiða 600 þúsund í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti vegna viðmælenda DV. „Þetta eru vonbrigði,“ sagði Erla um dóminn. Hún kvaðst hafa vænt- ingar til yfirstandandi endurskoð- unar menntamálaráðuneytisins á prentlögunum. - jss Í DÓMSAL Helgu voru dæmdar 300 þúsund í miskabætur, en var dæmd til að greiða 600 þúsund í málskostnað. Ein ummæli af fjórtán um eiginkonu Guðmundar í Byrginu ómerkt í Hæstarétti: Blaðamaður greiði 400 þúsund Ef þið viljið ganga til liðs við okkur þá verður það að vera af mörgum fjölbreyttum ástæðum. Ekki bara út af leit að vari í stormi. DIANA WALLIS VARAFORSETI EVRÓPUÞINGSINS STOLNIR SKÓR Um það bil 1.200 skópör bíða þess á lóð lögreglustöðv- arinnar í Seúl í Suður-Kóreu, að réttir eigendur sæki þau. Skónum var stolið á útfararstofu, en sökudólgurinn hugðist selja þau í eigin verslun með notaða skó. Hann hefur verið handtek- inn. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.