Fréttablaðið - 19.02.2010, Qupperneq 12
12 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
ÞJÓNUSTA Stjórn Íslandspósts hefur
samþykkt fyrir sitt leyti að flytja
póstdreifingarmiðstöðina á Hvols-
velli til nágrannabæjarins Hellu.
Guðmundur Oddsson, formaður
stjórnarinnar, segir endanlega
ákvörðun vera í höndum Ingi-
mundar Sigurpálssonar, forstjóra
Íslandspósts.
Ástæða fyrirhugaðs flutnings er
sú að á Hvolsvelli hefur Íslands-
póstur deilt húsnæði með Eld-
stó Café & Hús leirkerasmiðsins,
sem hefur gert kauptilboð í allt
húsnæðið.
Guðmundur segir að flutningur-
inn á Hellu muni ekki koma niður á
þjónustunnni á Hvolsvelli. Íslands-
póstur verði áfram með afgreiðslu
þar og hafi náð samkomulagi við
Landsbankann um að hún verði í
húsnæði bankans á Austurvegi.
Hann segist telja að flutningur-
inn á Hellu sé besti kosturinn en
tekur fram að um tímabundna
lausn sé að ræða, hugsaða til um
það bil þriggja ára. Fyrri sam-
þykktir stjórnar Íslandspósts um
að vera með póstdreifingarmið-
stöð á Hvolsvelli standi.
Íslandspóstur hefur átt í við-
ræðum við eigendur fyrirtækis-
ins Raffoss á Hellu um að leigja
af þeim húsnæði. Þorgils Gunn-
arsson, hjá Raffoss, segir að gerð
hafi verið drög að leigusamningi
þó ekkert hafi verið undirritað.
Hann hafi byrjað að innrétta húsið
fyrir nokkrum vikum en nú sé allt
stopp því hann hafi ekkert heyrt
frá Íslandspósti í þrjár vikur.
Örn Þórðarson, sveitarstjóri
Rangárþings ytra á Hellu, seg-
ist vonast til að málið fái farsæla
lausn. Hann telji að tímabundið sé
best að hafa póstdreifingarmið-
stöðina á Hellu.
„Ég vona að þetta mál fái far-
sæla lendingu,“ segir Örn.
Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri
Rangárþings eystra á Hvolsvelli,
segir að sveitarstjórnin hafi bent
Íslandspósti á hentugt húsnæði á
Hvolsvelli en engin svör hafi bor-
ist. Hann segir vissulega bagalegt
að missa póstdreifinguna á Hellu,
jafnvel þó að flutningurinn sé
hugsaður til skamms tíma.
„Það er klúður ef þeir ætla að
flytja á Hellu og koma síðan aftur
á Hvolsvöll seinna,“ segir Elvar.
„Auðvitað er maður hræddur um
að starfsemin komi ekki aftur
en við verðum að treysta því að
Íslandspóstur standi við orð sín
og byggi upp á Hvolsvelli í fram-
tíðinni.“
trausti@frettabladid.is
Póstdreifingarmiðstöð flutt
frá Hvolsvelli til Hellu
Formaður stjórnar Íslandspósts telur best að flytja póstdreifingarmiðstöð Íslandspósts frá Hvolsvelli til
Hellu. Tímabundin lausn. Sveitarstjórinn á Hvolsvelli segist hræddur um að missa starfsemina alfarið.
HELLA Útlit er fyrir að póstdreifingarmiðstöð Íslandspósts flytji frá Hvolsvelli á Hellu.
GUÐMUNDUR
ODDSSON
ÖRN
ÞÓRÐARSON
FLÓÐ Í GRIKKLANDI Viðvörunarskilti
á mótum járnbrautarteina og akvegar
rétt stóð upp úr vatnsflóðinu í þorpinu
Lavara á Grikklandi, þar sem áin Evros
hafði flætt yfir bakka sína.
NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Sala á sýklalyfjum
hérlendis dróst saman um 5,6 pró-
sent í fyrra. Þetta kemur fram í
grein Haraldar Briem sóttvarna-
læknis í nýju hefti Farsóttafrétta.
Í grein sinni segir Haraldur
skýringar á samdrættinum í sýkla-
lyfjasölunni ekki vera að fullu ljós-
ar. „Hafa þarf í huga að sýklalyf
eru almennt ekki niðurgreidd af
hinu opinbera – sem kann að leiða
til minni notkunar lyfjanna.
Einnig kann að skipta máli aukin
vitund um mikilvægi skynsam-
legra notkunar sýklalyfja meðal
lækna og almennings,“ leggur Har-
aldur fram í Farsóttafréttum sem
hugsanlega ástæðu fyrir minnk-
andi notkun sýklalyfjanna. Þá
ítrekar Haraldur að ónæmi fyrir
sýklalyfjum sé vaxandi vanda-
mál. Þótt mikil notkun sýklalyfja
tengist útbreiðslu ónæmisins sé
þó enn margt á huldu um ástæð-
ur útbreiðslunnar. Mikilvægt sé að
fylgjast með notkun lyfjanna.
„Sýklalyf gegna mikilvægu hlut-
verki í meðhöndlun alvarlegra
sjúkdóma. Því er mikilvægt að þau
sé notuð á ábyrgan hátt og á rétt-
um forsendum,“ segir sóttvarna-
læknir. Enn fremur kemur fram
að notkun sýklalyfja á Íslandi sé
nokkuð mikil í alþjóðlegum saman-
burði, einkum ef miðað sé við hin
Norðurlöndin. - gar
Dýr lyf og aukinn skilningur á mikilvægi skynsamlegrar notkunar talin hjálpast að:
Minni sala sýklalyfja á Íslandi
HARALDUR BRIEM Sóttvarnalæknir
segir enn margt á huldu um útbreiðslu
ónæmis fyrir sýklalyfjum og undirstrikar
nauðsyn á ábyrgri notkun þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
INDÓNESÍA, AP Kýr af kyni Súm-
ötru-nashyrnings ber kálf í grið-
landi á samnefndri eyju í Indónes-
íu í maí. Súmötru-nashyrningurinn
er í útrýmingarhættu og segja
vísindamenn að þetta verði aðeins
fjórði kálfurinn af þessari tegund
sem borinn verður í griðlandi eða
dýragarði undanfarin 112 ár. Kýrin
á að bera 15. maí.
Súmötrunashyrningar eru
minnsta nashyrningategund heims
og ná ekki nema 120 til 145 senti-
metra hæð. Villtum dýrum af þess-
ari tegund hefur fækkað um helm-
ing á undanförnum árum og eru nú
um 200 talsins. Að auki hafast tíu
skepnur við í griðlöndum. - bs
Nashyrningskýr kálffull:
Fjórði kálfurinn
á rúmri öld
Ryksugur
- fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir.
Hátúni 6a . 105 Reykjavík
Sími 552 4420 . www.fonix.is
Hafðu samband
sími
Arion banki frestar
öllum uppboðsbeiðnum
út árið 2010
Arion banki mun fresta öllum uppboðsbeiðnum
vegna íbúðalána til sýslumanna út árið 2010.
Þannig gefst fleiri viðskiptavinum okkar færi á að
greiða úr málum sínum.
Íbúðalán
Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér fjölmargar lausnir okkar í lánamálum.