Fréttablaðið - 19.02.2010, Side 33
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2010
Tíu manns nýttu sér aðstöðuna á
MIDEM-básnum sem ÚTÓN stóð
fyrir, þar af voru fulltrúar frá
fimm fyrirtækjum. Sú nýbreytni
var á MIDEM núna að vörusýning-
in og Midem voru sameinuð. Þessi
ákvörðun var tekin með það í huga
að mæta nýjum tímum í tónlistar-
viðskiptum þar sem stafræn við-
skiptamódel skipa sífellt stærri
sess.
Aukin bjartsýni ríkir og var
meðal annars bent á að tekjur af
sölu í gegnum stafræna miðla hefðu
aukist um 12 prósent. Svíþjóð og
streymi var sérstaklega nefnt en
Spotify hefur fengið vind í seglinn.
Talað var um að stafræn sala og
tekjur af streymi hefðu aukist 10,2
prósent í Svíþjóð á síðasta ári. Þrátt
fyrir að heildarvelta hafi minnkað
á undanförnum árum gefur þróun
stafrænna viðskiptamódela og vöxt-
ur fyrirtækja í þeim geira ástæðu
til ákveðinnar bjartsýni.
BREYTINGAR KALLA Á NÝJA NÁLGUN
Um 7.000 manns alls staðar að úr
heiminum sækja Midem sem er
mikil fækkun frá því sem var fyrir
átta árum. Hins vegar er það mál
manna að Midem eigi áfram eftir
að skipa mikilvægan sess í tón-
listarviðskiptum. Ýmsar breyting-
ar hafa átt sér stað sem auðvelda
fólki tengslamyndun og aðgang að
þeim nýju fyrirtækjum sem eru
að koma á markaðinn. Meðal ann-
ars eru fimmtán nýsköpunarfyrir-
tæki kynnt sérstaklega sem hafa
þróað stafræna þjónustu. Lögð var
áhersla á að framtíðin bæri í skauti
sér fjölþættar lausnir þar sem
hvorki streymi né greitt niðurhal
yrðu einu kostirnir heldur þyrftu
þeir sem vilja selja og dreifa tón-
list að venjast því að nýta margar
ólíkar leiðir og snið.
HAFDÍS HULD VEKUR ATHYGLI
Midem hefur einnig aukið áherslu
á lifandi flutning. Ráðstefnan var
áður hefðbundin framsalsráðstefna
þar sem menn versluðu með upp-
töku- og útgáfurétt. Á sama tíma
og sá geiri hefur dregist saman
hefur orðið veruleg tekjuaukning
í lifandi flutningi. Samstarfsaðilar
Midem um tónleikahald eru Son-
icbids og völdu þeir meðal annars
Hafdísi Huld til að koma fram á
einu af kvöldunum sem þeir stóðu
fyrir. Midem hefur staðið fyrir slík-
um kvöldum sl. þrjú ár og greini-
legt er að þau hafa þróast á jákvæð-
an hátt. Hins vegar er enn ekki ljóst
hvort Midem verður fýsilegur stað-
ur fyrir tónleikabókara og hátíðir
að koma saman. Þar keppir ráð-
stefnan bæði við Eurosonic sem
fram fer í Hollandi í byrjun jan-
úar og ILMC sem fram fer í Lond-
on í mars. Báðar ráðstefnurnar eru
rótgrónar og vel heppnaðar og gæti
verið erfitt fyrir þá sem starfa í tón-
leikahaldi að sjá sér hag í að bæta
við nýrri ráðstefnu eða markaði í
þessum efnum.
Tónleikar Hafdísar Huldar tók-
ust hins vegar mjög vel. Hún hafði
fyrr um daginn komið fram á ís-
lenska básnum í sýningarhöllinni
þar sem góður rómur var gerður að
tónlist hennar.
Kerry Harvey-Piper, sem er
breskur umboðsmaður Hafdísar, var
með í för og sagðist hafa átt fjölda
jákvæðra funda um dreifingar- og
framsalssamninga. Fulltrúar þeirra
fyrirtækja sem sýndu Hafdísi Huld
áhuga töldu það mikinn kost að geta
séð listamanninn á tónleikum sam-
hliða kynningarfundum sem stað-
ið var fyrir. Kerry segir eftirfylgni
eftir fundina ganga vel og sameigin-
leg kynning sem ÚTÓN stóð fyrir á
básnum hafi verið góður stuðningur
við verkefni þeirra. Í sama streng
tóku fulltrúar Gogoyoko, Kima Rec-
ords og Smekkleysu sem sögðust
allir hafa getað nýtt sér aðstöðuna
vel og náð árangri á þeim fundum
sem þeir áttu.
Góður árangur á MIDEM
● Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri ÚTON, segir Íslendingum hafa verið
vel tekið á MIDEM.
Að sögn Önnu var góður rómur gerður að tónleikum Hafdísar Huldar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tónastöðin er með frábært úrval slagverks
og trommusetta og þar á meðal hin
einstöku Gretsch trommusett
Hjá okkur færðu faglega þjónustu,
byggða á þekkingu og áratuga reynslu.
ÓT NLISTA
SKÓL
PISTILL
● RAFRÆN TÓNLISTARVERÐLAUN Íslensku tónlistarverðlaunin hafa tekið upp samstarf við
tónlistarvefinn tónlist.is <http://xn--tnlist-bxa.is> sem er ætlað að auðvelda öllum sem gefa út tónlist
að leggja fram efni og þeim, sem fjalla síðan um innsent efni, að gaumgæfa það. Skráning efnis fyrir
Íslensku tónlistarverðlaunin fer nú fram í gegnum tónlist.is <http://xn--tnlist-bxa.is> og þangað fara
þeir sem vilja taka þátt, skrá verk sín og senda í framhaldinu diska til Tónlistarverðlaunanna á skrif-
stofu FÍH. Skráningin stendur yfir allt árið og það er von aðstandenda verðlaunanna að þannig verði
það sjálfsagður hluti af útgáfu diska og annarra hljóðrita að koma þeim á framfæri við verðlaunin. Nú
þegar hefur umtalsverð aukning orðið á því sem lagt er fram til verðlaunanna. Þegar þetta
fyrirkomulag nær fótfestu er það von aðstandenda að allt útgefið efni verði lagt fram.