Fréttablaðið - 19.02.2010, Page 54
26 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> PACINO Í STAÐ DE NIRO
Al Pacino hefur tekið við af
Robert De Niro sem aðalleik-
ari spennumyndarinnar Son
of No One. Myndin fjallar um
unga löggu sem fær það verkefni
að starfa í hverfinu þar hún ólst
upp. De Niro var orðaður
við hlutverkið en Pacino
hlaut það á endanum.
Aðalleikkona mynd-
arinnar verður Katie
Holm es.
Söngkonan Cheryl Cole
flúði Bretland í vikunni eft-
ir að fjölmiðlar greindu frá
framhjáhaldi eiginmanns
hennar, Ashley Cole. Breska
þjóðin stendur þétt við
bakið á sinni konu og hvetur
hana til að skilja.
Cheryl og Ashley Cole eru meðal
frægustu para Bretlands. Hann er
leikmaður Lundúnaliðsins Chelsea
og enska landsliðsins, hún er dóm-
ari í vinsælu þáttunum X-Factor og
syngur með stúlknasveitinni Girls
Aloud. En Ashley hefur hrapað
hratt niður vinsældalista bresku
þjóðarinnar eftir að götublaðið
The Sun greindi frá framhjáhaldi
hans á þriðjudaginn. Skömmu áður
hafði nektarmyndum af þessum
bakverði Chelsea verið lekið til
fjölmiðla en þær átti hann að hafa
sent til íturvaxinnar undirfatafyr-
irsætu. Ashley neitaði öllum sak-
argiftum, viðurkenndi vissulega
að hafa tekið af sér myndir en ein-
hverjir óprúttnir náungar, vinir
vina hans eins og hann komst að
orði, hefðu komist yfir símann og
sent myndirnar. En heldur syrti í
álinn hjá Ashley þegar ung ljós-
hærð snót bankaði upp hjá The
Sun og upplýsti í blaðaviðtali að
hún hefði fengið erótísk sms-skila-
boð frá knattspyrnuhetjunni og að
þau hefðu átt stundargaman uppi á
hótelherbergi landsliðsmannsins,
oftar en einu sinni.
The Sun gerði nýverið könn-
un meðal lesenda sinna og nið-
urstaða hennar var nánast ein-
róma; Cheryl ætti að losa sig við
Ashley fyrir fullt og allt. Aðeins
fimm prósent þeirra sem tóku þátt
vildu að Cheryl og Ashley ættu að
vinna í sínum málum. 25 prósent
tóku ekki afstöðu. Málið er allt hið
vandræðalegasta fyrir Chelsea og
jafnvel enska landsliðið því fyrir
skömmu var greint frá því að fyr-
irliði liðanna tveggja, John Terry,
hefði verið konu sinni ótrúr með
fyrrum kærustu samherja síns.
Carlo Ancelotti, framkvæmda-
stjóri Chelsea, sagði í fjölmiðlum
að honum væri sama hvar sínir
menn svæfu á næturnar. Fabio
Capello var ekki á sama máli og
hefur svipt John Terry fyrirliða-
stöðunni hjá enska landsliðinu.
Bretar standa við
bakið á Cheryl
SKILNAÐUR Í UPPSIGLINGU Víst er að
breskir fjölmiðlar eiga eftir að fylgja eftir
hverju spori sem Ashley og Cheryl Cole
taka á næstunni. Daily Mail spáir því að
skilnaður sé á næsta leiti.
Hátíðin Aldrei fór ég suður fer að vanda
fram á Ísafirði um páskana. Tilkynnt
hefur verið um fyrsta holl skemmti-
krafta sem fram kemur. Þar á
meðal er hljómsveitin Sólinn
frá Sandgerði, sem varð fræg í
Vaktarþáttunum. Ólafur Ragnar
var umboðsmaður sveitarinnar á
tímabili og hafði stórar vænt-
ingar. Nú kemur Sólinn
fram í fyrsta skipti opin-
berlega.
„Þeir hjá hátíðinni
höfðu nú bara sam-
band og vildu að Sólinn
tæki lagið, það var ekk-
ert flóknara en það,“
segir Kiddi Casio, e.þ.s.
Halldór Gylfason, söngv-
ari sveitarinnar og aðal-
sprauta. „Þetta er kærkomið því Sólinn
er frábær hljómsveit og það er gott fyrir
þennan grænmetisétandi lopapeysuskríl
sem verður þarna, að sjá einu sinni
almennilega hljómsveit sem FÓLK-
IÐ fílar.“
Júlíus Brjánsson á yfir höfði sér
lögbann vegna auglýsinga sem hann
lék í því karakterinn þótti minna
of mikið á pabba Ólafs Ragnars
í Vaktarseríunni. Halldór seg-
ist ekki vera búinn að fá leyfi
til að koma fram með Sólinni.
„Kannski verður Sólinn stöðv-
aður af, ég bara veit það ekki.
Ég spurði Jörund um leyfi og
hann gaf allavega grænt ljós.
Ég þarf að spyrja Jón Gnarr líka næst
þegar ég hitti hann. En ef þetta gengur vel
þá verður náttúrlega leigð rúta í sumar,
gefin út plata og jólalag og lokatakmarkið
er svo auðvitað að fara í Eurovision.“
Aldrei fór ég suður-hátíðin mun í ár
teygja sig út um allan bæ og myndlist,
uppistand og fleiri viðburðir verða um
allan Ísafjörð. Uppistandshópurinn Mið-
Ísland mætir, en rokkið verður sem fyrr
mest áberandi. Grugg-hljómsveitin Urm-
ull kemur fram í fyrsta skipti síðan um
miðjan 10. áratuginn, en í bandinu voru
gaurar sem síðar áttu eftir að láta til sín
taka í hljómsveitunum Buttercup, Ampop,
Dimma og Reykjavík! Í fyrsta hollinu var
einnig tilkynnt um að Bloodgroup, Hjalta-
lín, Morðingjarnir, Rúnar Þór, Dikta,
Pollapönk, Ólöf Arnalds og Hudson Wayne
kæmu fram. - drg
Sólinn frá Sandgerði á svið
HALLDÓR GYLFASON Eða Kiddi Casio,
söngvari Sólans frá Sandgerði.
Fyrsta lífvarðanámskeið á Íslandi
Öryggisvarðaskólinn
14 til 28 Nóvember 2009
Sími: 698 1666
k li i
Lífvarðanámskeið á Íslandi í mars
Terr security býður upp á
starfsmöguleika á heimsvísu
VÍGAMENN
Í VONDUM MÁLUM
Stórvirki Halldórs Laxness um fóst-
bræðurna Þormóð og og Þorgeir er
meistaralega skrifuð hetjuharmsaga
og bráðfyndin ádeila á hetjudýrkun
að fornu og nýju.
Leikverk byggt á bókinni
er sýnt í Þjóðleikhúsinu.
Í KILJU
MEÐ NÚTÍM
A-
STAFSETNI
NGU
SiÐblint ljúfmenni eÐa
auÐmjúkur fantur?
Snilldarlega skrifuð
k um nap
veruleika Indlands
„Þetta er æsileg lesning,
krassandi og kaldhæðin …“
Egill Helgason / Silfur Egils
„… klárlega ein af
bókum ársins.“
Hrafn Jökulsson / Viðskiptablaðið
BOOKER-
VERÐLAUNIN
2008
KOMIN Í KILJU