Fréttablaðið - 26.02.2010, Qupperneq 62
30 26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. vera með, 6. í röð, 8. meðal, 9.
bergmála, 11. tveir eins, 12. lyf, 14.
vörubyrgðir, 16. belti, 17. örn, 18.
kvabb, 20. klaki, 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. málmur, 3. verkfæri, 4. sumbl, 5.
þróttur, 7. hvellur, 10. skel, 13. temja,
15. krot, 16. rjúka, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. hafa, 6. rs, 8. lyf, 9. óma,
11. ll, 12. meðal, 14. lager, 16. ól, 17.
ari, 18. suð, 20. ís, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. króm, 3. al, 4. fyllerí, 5.
afl, 7. smellur, 10. aða, 13. aga, 15.
riss, 16. ósa, 19. ðð.
Háhyrningnum Tilikum var neitað um að koma
til Íslands árið 1992 þegar erlendir dýravernd-
unarsinnar óskuðu eftir því að fá að flytja
hann hingað. Tilikum hefur verið til umfjöllun-
ar í heimspressunni undanfarna daga eftir að
hann drap þjálfarann sinn, Dawn Brancheau, á
sýningu í SeaWorld í Orlando í vikunni.
Í grein í Morgunblaðinu frá árinu 1992 er
greint frá því að leitað hafi verið eftir leyfum
hjá íslenskum yfirvöldum fyrir því að flytja
Tilikum til landsins en því hafi verið hafnað
sökum sjúkdómahættu og af dýraverndunar-
sjónarmiðum. Sex árum síðar lenti hins vegar
Hollywood-stjarnan Keiko á flugvellinum í
Vestmannaeyjum.
Hallur Hallsson, sem vann að komu Keiko
til Íslands, kannast ekki við umsókn Tilikum
en hann segir að þeir sem stóðu að komu Keiko
hafi sótt um sín leyfi til landbúnaðarráðuneyt-
isins en ekki sjávarútvegsráðuneytisins eins og
háttur hafði verið á, háhyrningar séu nefnilega
spendýr en ekki fiskar. „Þetta var mikil vinna,
að fá Keiko til Íslands, það kom fjöldi fólks að
þessu verkefni og þetta var mjög kostnaðar-
samt,“ segir Hallur.
Tilikum var fangaður af skipsverjum Guð-
rúnar HF í október 1983 ásamt tveimur öðrum
háhyrningum í Berufirði og var um tíma til
sýnis í Sædýrasafninu í Hafnarfirði. Hann
var síðan seldur til Bandaríkjanna en íslensk-
ir háhyrningar voru feikilega vinsælir á fyrri
hluta áttunda áratugarins eftir að slíkar veiðar
voru bannaðar í Kyrrahafinu 1972. Vitað er um
sex íslenska háhyrninga sem hafa náð miklum
vinsældum í sjávardýragörðum, fjórir þeirra
eru enn á lífi. - fgg
Tilikum fékk ekki að koma til Íslands
VILDI KOMA TIL ÍSLANDS
Háhyrningnum Tilikum,
sem drap þjálfarann
sinn, var meinað að
koma til Íslands 1992.
Hallur Hallsson, sem
vann að komu Keiko,
segir mikla vinnu hafa
fylgt því að koma skepn-
unni til landsins.
„Það er Serrano. Quesadilla
með kjúklingi, það klikkar
aldrei.“
Brynjar Már Valdimarsson tónlistarmaður.
Fatahönnuðurinn Guðbjörg Jakobsdóttir
hefur dvalið á eyjunni Fogo við Nýfundna-
land þar sem hún vinnur að því að skapa
grunn að innbúi hótels sem rísa á á eyjunni.
Aðstandendur verkefnisins fengu til sín
sextán hönnuði, listamenn og handverks-
fólk víða að úr heiminum til að taka þátt í
verkefninu. Ástæðan að baki þess er meðal
annars sú að halda á uppi atvinnu á eyjunni
og því munu heimamenn taka fullan þátt
í allri undirbúningsvinnunni. Eyjan Fogo
er við strönd Nýfundnalands og voru íbúar
eyjunnar um 2.700 manns árið 2006.
„Þetta er tilraunaverkefni þar sem á að
hanna nútímalegt hótel á þessari eyju sem
úti á hjara veraldar. Samtökin sem standa
að þessu verkefni eru góðgerðarsamtök sem
eru að reyna að kveikja líf á eyjunni með því
að búa til stað fyrir listafólk til að vinna á
og kynna Fogo sem áhugaverðan áfangastað
fyrir ferðamenn,“ segir Guðbjörg. „Þátttak-
endur skipta á milli sín verkum eftir áhuga-
sviði og menntun og stefnt er að því að hafa
sem mesta samvinnu milli þátttakenda og
heimamanna. Einnig er stefnt að því að allt
hráefni komi sem mest frá eyjunni og að
eyjarskeggjar geti framleitt innanstokks-
munina að mestu sjálfir.“
Guðbjörg er ein fjögurra Íslendinga sem
taka þátt í verkefninu, en með henni eru
Dagur Óskarsson, Hafsteinn Júlíusson og
Páll Einarsson. Verkefnavinnunni lýkur um
mánaðamótin og er þá vonast til gunnhug-
myndir að útliti hótelsins verði tilbúnar. - sm
Hanna innbú hótels á eyjunni Fogo
STÖDD Á FOGO Guðbjörg Jakobsdóttir
fatahönnuður vinnur að hönnun innanstokksmuna
í hótel sem mun rísa á eyjunni Fogo.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég fékk stefnumót, en ekki
hvað?“ segir Guðmundur Heim-
ir Jónasson, 21 árs gamall versl-
unarstjóri í Fötex, sem sló í gegn
í danska stefnumótaþættinum
Dagens Mand á TV 2. Heimir
gerði sér lítið fyrir og heillaði
dönsku stelpurnar upp úr skón-
um með Skítamórals-slagar-
anum Ertu þá farin? við góðar
undirtektir bæði áhorfenda og
stúlknanna. „Ég veit ekki af
hverju ég valdi þetta lag, þetta
var bara það fyrsta sem kom upp
í hugann á mér,“ segir Heimir og
viðurkennir að hann hafi stein-
gleymt textanum, það hafi ekki
komið að sök því hvorki áhorf-
endur né stúlkurnar skildu hvað
hann var að syngja. „Sumt af því
sem ég söng meikaði engan sens,
eða við skulum segja að þetta hafi
bara verið önnur útgáfa af þessu
lagi, mín útgáfa,“ útskýrir Heimir
og hlær.
Heimir hefur verið búsettur í
Danmörku í tíu ár, flutti til Kaup-
mannahafnar með móður sinni
sem nú er flutt heim til Íslands
aftur.
Hann segir vinkonu sína á Jót-
landi hafa skráð hann til leiks í
þættinum. „Hún lýsti því yfir að
hún ætlaði að koma mér í þátt-
inn. Skömmu seinna var hringt
frá TV 2 og ég spurður hvort ég
vildi ekki koma í prufur. Þarna
var heill hellingur af strákum
og við fórum inn, fjórir saman.
Hinir þrír sögðust allir spila
fótbolta og eitthvað í þeim dúr
þannig að ég varð að koma með
eitthvað annað,“ útskýrir Heimir
sem lýsti því yfir í prufunum að
hann væri mikið fyrir að ríða út á
íslenskum hestum og semdi bæði
íslensk lög og texta.
Herbragðið virkaði fullkomlega
því skömmu seinna var Heimir
kominn í útsendingu. „Þetta var
svolítið fyndið því ég hef aldrei
sungið fyrir framan neinn.“ Þátt-
urinn gengur þannig fyrir sig að
hópur stúlkna á lausu fær að kjósa
hvort þær vilji fá stefnumót með
álitlegum piparsveini og þurfa
drengirnir að sanna sig fyrir
þeim með hæfileikum sínum.
Og Heimir vann sér inn stefnu-
mót, fór með laglegri snót á veit-
ingastaðinn Costume House í mið-
borg Kaupmannahafnar og átti
með henni notalega stund. Hann
segir hins vegar ekkert framhald
verða á því sambandi. „Nei, nei,
þetta endaði bara þarna.“ Eftir
situr hins vegar söngurinn og
hinn sérstaka útgáfa af sveita-
ballarómans Einars Bárðarsonar
sem Danirnir aldrei skildu.
freyrgigja@frettabladid.is.
HEIMIR JÓNASSON: KOM FRAM Í DÖNSKUM STEFNUMÓTAÞÆTTI
Heillaði danskar stelpur
með Skítamórals-slagara
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Hrefna Hallgrímsdóttir og
Linda Ásgeirsdóttir.
2 Þeir eru fjórir.
3 Stefan Füle. FÓR Á KOSTUM
Heimir Jónasson fór á
kostum í stefnumótaþætt-
inum Dagens Mand sem
sýndur er á TV 2. Hann
söng sveitaballarómans
Einars Bárðarsonar, Ertu
þá farin?, sem Skítamórall
gerði ódauðlegt.
Hin árlega ræðukeppni
framhaldsskólanema,
Morfís, dregur yfirleitt
dilk á eftir sér. Og
það mátti víst litlu
muna að upp
úr syði þegar
MH og FG
öttu kappi
á miðviku-
dagskvöldið.
Samkvæmt
heimildum Frétta-
blaðsins voru MH-ingar ákaflega
ósáttir við niðurstöðu eins dómara
sem dæmdi FG sigur á meðan tveir
samdómendur hans voru ekki á
sama máli og dæmdu MH sigur.
Þjálfari MH-inga er rapparinn Dóri
DNA en hann ku víst vera æfur yfir
þessu. Og eins og alþjóð veit er
aldrei gott þegar rapparar eru reiðir.
Það var mikill fögnuður
í Borgarleikhúsinu í
gær því leikkonurnar
Nína Dögg Filippus-
dóttir og Kristín Þóra
Haraldsdóttir áttu
þá báðar afmæli.
Hvorug þeirra vildi
þó gefa nákvæm-
lega upp árafjöld-
ann en þær voru
engu síður
hæstánægðar
með daginn.
Nína Dögg er þessa dagana að æfa
fyrir nýtt þýskt verk sem heitir Dúf-
urnar og Kristín Þóra er að koma
til baka eftir barneignarfrí og leikur
systur Orms í Gauragangi.
Fjölmargir hafa beðið spenntir
eftir Djúpu lauginni á Skjá einum
en tveir þættir hafa nú verið
sýndir. Áhorf á þættina hefur verið
bærilegt, í síðustu viku horfðu 5,4
prósent landsmanna á aldrinum
12-49 ára á þáttinn. Athyglisvert er
að eldri áhorfendur virðast áhuga-
samir fyrir þætti þeirra Röggu og
Tobbu. Alla vega er
Djúpa laugin
fimmti vinsælasti
þáttur Skjásins í
aldursflokknum
12-80 ára en
í sjöunda
sæti yfir þá
vinsæl-
ustu í
flokki
12-49
ára. - fgg, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki