Fréttablaðið - 24.03.2010, Side 4
4 24. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
KÆLISKÁPA
TILBOÐ
Ranglega var farið með starfsheiti
heimilisfólks í Fljótsdal í blaðinu í
gær. Anna Runólfsdóttir og Þorkell
Daníel Eiríksson eru bæði bændur
þar.
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í Rima-
hverfi í Grafarvogi undir morgun
aðfaranótt laugardagsins.
Um það bil tugur plantna var í
ræktun á staðnum, auk þess sem
plöntur voru til þurrkunar. Þá
voru á staðnum fræ og annað sem
notað er til framleiðslu kannabis-
efna. Haglabyssa fannst á staðn-
um svo og slatti af sverðum.
Fjórir menn voru handteknir
og færðir til skýrslutöku á lög-
reglustöð. Þeir voru allir á fer-
tugsaldri. - jss
Fjórir menn handteknir:
Ræktun, sverð
og haglabyssa
KANNABISPLÖNTUR Lögregla rann á
lyktina og fann ræktun og ýmislegt fleira
í Rimahverfi.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
22°
15°
9°
18°
19°
8°
8°
20°
12°
18°
14°
26°
2°
17°
16°
2°Á MORGUN
5-10 m/s, en strekkingur
á Vestfjörðum.
FÖSTUDAGUR
Stíf NA-átt NV- og A-til.
2
4
4
1
5
7
7
4
2
8
6
10
7
10
15
7
3
7
2
7
3
6
1 2
2
7
6
6
5
1
1
0
MINNKANDI
ÚRKOMA Síðdegis
verður yfi rleitt úr-
komulítið á landinu
en áfram smáskúrir
syðra. Á morgun
léttir til á suð-
vesturhorninu en
annars staðar verð-
ur þungbúið og
slydda norðaustan-
til. Svipað veður á
föstudag en bætir í
vind og kólnar.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
BRUNI Bakhús við Hafnarstræti
1 til 3, sem hýsti skemmtistaðinn
Batteríið, skemmdist mikið í eldi
í fyrrinótt. Tjónið hleypur á tug-
milljónum. Eldsupptök eru ókunn.
Tilkynning um eldinn barst á
sjöunda tímanum í gærmorgun
og var allt tiltækt slökkvilið sent
á staðinn. Mest sinntu rúmlega 30
manns slökkvistarfinu, sem lauk
um klukkan hálfátta. Slökkvilið
var að störfum fram að hádegi.
Svo virðist sem eldurinn hafi
kviknað á annarri hæð hússins og
breiðst hratt út. Mikil mildi þykir
að tekist hafi að koma í veg fyrir
að eldurinn læsti sig í nálæg hús,
sem mörg hver eru sögufræg,
til dæmis svokallað Fálkahús og
Kaffi Reykjavík.
Gaskútar voru í húsinu og
sögðust sjónarvottar hafa heyrt
sprengingar innan úr húsinu
áður en slökkvilið kom á staðinn.
Reyk kafarar fóru síðan inn, gengu
úr skugga um að enginn væri inn-
andyra og fjarlægðu þá gaskúta
sem eftir voru.
Húsið er sem áður segir illa farið
eftir brunann og tjónið mikið. Það
var nýverið endurbætt. Ekki ligg-
ur fyrir hvort hægt verði að lag-
færa húsið eða hvort það verður
rifið.
Lögregla rannsakar nú brunann.
stigur@frettabladid.is
Eitt elsta hús bæjarins
skemmdist í eldsvoða
Mildi þykir að eldur sem upp kom í bakhúsi við Hafnarstræti 1 til 3 náði ekki
að læsa sig í sögufræg hús í kring. Húsið er stórskemmt. Eldsupptök eru ókunn.
ILLA FARIÐ Húsið er stórskemmt eftir eldinn og ekki liggur fyrir hvort þarf að rífa það. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bakhúsið við Hafnarstræti 1 til 3
er hluti af húsasamstæðu sem
reist var á ofanverðri nítjándu
öld af danska kaupmanninum
Bryde. Bakhúsið var reist árið 1887
og notað sem pakkhús í fyrstu,
að sögn Guðjóns Friðrikssonar
sagnfræðings. Það stóð þá nánast
á hafnarbakkanum.
Árið 1914 keypti Ó. Johnson
og Kaaber húsið og nýtti sem
kaffibrennslu. Síðar á öldinni var
þar ýmis starfsemi, bæði verslanir
og skemmtistaðir.
Reist árið 1887
Ranglega var haft eftir Magnúsi
Tuma Guðmundssyni, prófessor í
jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands,
í Fréttablaðinu í gær um stærð
svæðisins sem hraun úr gosinu við
Fimmvörðuháls náði yfir. Hið rétta er
að hraunflæðið þakti 0,4 ferkílómetra
svæði.
LEIÐRÉTTING
RÁÐSTEFNA Hinir ýmsir þætt-
ir klámmenningar og áhrifa
þess í samfélaginu verða rædd-
ir á vegum nokkurra sviða
innan Háskóla Íslands á opnum
umræðufundi í hádeginu í fund-
arsal Þjóðminjasafns Íslands í
dag.
Klámvæðing og klámmenn-
ing hefur aukist hér á landi. Með
klámvæðingu er átt við að sífellt
sé daðrað við táknmyndir og til-
vísanir kláms í dægurefni og
mörkum hins „eðlilega“ og leyfi-
lega ögrað og þau víkkuð út. And-
staða gegn klámi byggist helst á
þeirri mynd sem þar er dreg-
in upp af konum og körlum og
gjarnan byggð á ofbeldi, eins og
segir í tilkynningu um fundinn.
- jab
Rætt um klám í Háskólanum:
Klám einkenn-
ist af ofbeldi
ERÓTÍSKUR DANS Klám og klámvæðing
er til umræðu á opnum fundi í Þjóð-
minjasafninu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
LÖGREGLUMÁL Hátt í fimmtíu útidyrahurðum
og gluggum er talið hafa verið stolið úr sex
tveggja hæða íbúðum af níu í raðhúsalengju
sem Byggingarfélagið Kjölur hefur verið að
reisa með hléum við Elliðavað í Norðlingaholti
síðastliðin þrjú ár.
Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri
Kjalar, segir starfsmenn hafa tekið eftir stuld-
inum þegar þeir komu til starfa eftir vikufrí á
mánudag.
Hann segir nokkra hljóta að hafa verið að
verki, þeir verið vel tækjum búnir og með
flutningabíl til að koma farminum á brott.
Stærstu gluggarnir eru um tvö til þrjú hundruð
kíló á þyngd, en þeir eru sérpantaðir rammar
með umgjörð og gleri í og pantaðir eftir máli
frá Danmörku. Fjóra menn þurfti til að koma
stærstu gluggunum fyrir og skrúfa þá í veggi
húsanna, að sögn Halldórs. Gluggar og hurðir í
húsin öll voru keypt í fyrra og kostuðu þrettán
milljónir króna.
Byggingarfélagið Kjölur var með fram-
kvæmdalán frá Landsbankanum og Frjálsa
fjárfestingarbankanum upp á 494 milljónir
króna í lok árs 2007, þar af þriðjung í erlendri
mynt. Halldór segir hafa verið samið við kröfu-
hafa um að koma húsunum í söluhæft ástand.
Árni Þór Sigfússon, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn á lögreglustöð 4, segir málið í rannsókn.
Skoða þurfi marga þætti. Meðal annars hvort
nágrannar hafi tekið eftir mannaferðum við
húsin. - jab
HÁLFKÖRUÐ HÚS Verktakinn Halldór stendur hér við
húsin sem í vantar glugga og hurðir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Milljónatap Byggingafélagsins Kjalar vegna þjófnaðar í nýbyggingum í Norðlingaholti:
Hurðum og gluggum stolið í tugatali
ELDGOS Fjarskiptafyrirtækið
Míla hefur sett upp tvær mynd-
bands tökuvélar í nánd við gos-
svæðið á Fimmvörðuhálsi og
opnað fyrir beina útsendingu í
gegnum vefsíðu fyrirtækisins.
Önnur myndavélin er á mastri
Mílu á Hvolsvelli. Hin er á Þór-
ólfsfelli, norðanmegin við Eyja-
fjallajökul, nær gossvæðinu en
vélin á Hvolsvelli, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Almenningur getur því fylgst
með gosinu á vef Mílu á mila.is/
eldgos.
Veður voru válynd þegar rýnt
var í útsendinguna í gær svo lítið
sást til jarðeldanna. - bj
Eldgos við Fimmvörðuháls:
Vefmyndavélar
vakta eldfjallið
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 23.03.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
227,5535
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,17 127,77
190,83 191,75
171,77 172,73
23,083 23,219
21,336 21,462
17,629 17,733
1,4068 1,4150
193,83 194,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR